Fréttablaðið - 28.12.2022, Síða 44
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
595 1000 www.heimsferdir.is
80.450
Flug & hótel frá
Fyrir 2
á mann
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
TenerifeDraumaean
25. JANÚAR Í 7 NÆTUR
Menningarátök
ársins 2022
Ragnar Kjartansson sýndi Úkraínumönnum stuðning í verki með því að
loka sýningu sinni í Moskvu. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir
fóru vægast sagt óhefðbundnar leiðir í sinni list-
sköpun. Mynd/aðSend
Sem á himni er dramatísk sýning sem olli enn meira
drama í samfélaginu. Mynd/Jorri
Loftslagsaktívistar hafa ítrekað beint spjótum
sínum að þekktum listaverkum á árinu 2022.
Fréttablaðið/getty
Það má segja margt um árið 2022 en tíðindalaust var það alls
ekki. Fréttir ársins voru uppfullar af skandölum og var menn-
ingarlífið þar engin undantekning. Fréttablaðið fer yfir nokkur
helstu menningarátök ársins hér á landi og víðar.
tsh@frettabladid.is
Frá Moskvu með reiði
Ein stærsta sýning myndlistarmannsins Ragnars Kjartanssonar
á undanförnum árum, Santa Barbara, var opnuð í samtímalista-
safninu GES-2 í Moskvu í desember 2021. Daginn eftir að Rússar
réðust inn í Úkraínu 24. febrúar á þessu ári tók Ragnar þá ákvörðun
að slaufa sýningunni.
„Þetta safn var bara svona eins og partur af þessu gamla Rúss-
landi sem var til fyrir 24. febrúar. Þarna voru tengsl við vestræna list
og menningu og það bara endaði allt 24. febrúar. Þetta var eiginlega
engin spurning, við báðum þau bara vinsamlegast um að slaufa öllu
saman,“ sagði Ragnar í viðtali við Fréttablaðið í vor.
Fjölmörg mikilvæg verk var að finna á sýningunni eftir Ragnar og
aðra listamenn, þar á meðal frumeintak af bók Guðmundar Thor-
steinssonar, Muggs, um Dimmalimm. Áhyggjur voru uppi um afdrif
þessara verka en að sögn Ragnars tókst að koma þeim öllum úr
landi.
Ragnar aðstoðaði einnig við ævintýralegan flótta rússnesku
gjörningalistakonunnar og aðgerðasinnans Mariu (Möshu) Alyok-
hina, forsprakka Pussy Riot, frá Rússlandi. Það má því leiða að líkur
að hinn geðþekki listamaður Rassi Prump sé ekki hátt skrifaður hjá
Pútín og hans kónum núna.
Stolna styttan
Um miðjan apríl hvarf bronsstytta sem er af-
steypa af verkinu Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku
eftir myndhöggvarann Ásmund Sveinsson
af stöpli sínum á Laugarbrekku á sunnan-
verðu Snæfellsnesi. Hvarfið vakti furðu en enn
skrýtnari uppgötvun beið aðstandenda þegar
styttan skaut upp kollinum á sýningu Bryndísar
Björnsdóttur og Steinunnar Gunnlaugsdóttur í
Nýlistasafninu. Listakonunum var gefið að sök
að hafa tekið styttuna ófrjálsri hendi og komið
henni fyrir í nýju verki, eins konar geimflaug úr
brotajárni, sem þær nefndu Farangursheimild.
Ástæða þessa gjörnings var sú að þeim þótti
upphaflegt verk Ásmundar vera rasískt og vildu
vekja fólk til umhugsunar um það.
Gjörningur Bryndísar og Steinunnar olli fjaðra-
foki og ritdeilum víða í samfélaginu og voru lista-
konurnar kærðar fyrir þjófnað sem þær þvertóku
þó fyrir.
„Verkið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku kjarnar
í okkar huga hugmyndafræði sem ríkti í íslensku
samfélagi þegar styttan var gerð – og ríkir enn
í dag. Sú hugmyndafræði heitir rasismi,“ sagði í
yfirlýsingu sem Bryndís og Elín sendu frá sér.
Dramað í Þjóðleikhúsinu
Í byrjun september frumsýndi Þjóðleikhúsið
söngleikinn Sem á himni eftir Carin og Kay Pollak
byggðan á samnefndri kvikmynd. Verkið átti
að verða flaggskip leikhússhaustsins og marka
nýtt upphaf hjá Þjóðleikhúsinu eftir hamfarir
Covid-áranna.
Verkið féll þó í grýttan jarðveg í menningarlíf-
inu og voru aðstandendur sýningarinnar og leik-
hússins harðlega gagnrýndir fyrir þá ákvörðun að
láta ófatlaðan leikara fara með hlutverk fatlaðs
manns í sýningunni. Heitar umræður sköpuðust
um verkið og hlutverk leikhússins eftir að Nína
Hjálmarsdóttir birti harðorða gagnrýni um Sem
á himni í Víðsjá þar sem hún sagði meðal annars:
„Verkið er eintóm froða, uppfull af illa skrifuðum
persónum og klisjukenndri framsetningu.“
Þó má segja að fjölmiðlastormurinn hafi leitt
eitthvað gott af sér enda boðaði Þjóðleikhúsið
til málþings um hlutverk listarinnar og inngild-
ingu jaðarhópa í samstarfi við ÖBÍ, Þroskahjálp,
Bandalag íslenskra listamanna, Sviðslistasam-
band Íslands og Listaháskóla Íslands þar sem
góð og þörf umræða átti sér stað.
Loftslagsaktívistar gegn listheiminum
Baráttan gegn hnattrænni hlýnun er að verða æ
örvæntingarfyllri, sem er kannski ekki skrýtið
enda er jörðin bókstaflega að steikjast fyrir
augum okkar, og eru mótmælendur nú byrjaðir
að beina spjótum sínum að ólíklegum söku-
dólgi, listheiminum.
Í október síðastliðnum voru tveir loftlags-
aðgerðasinnar á vegum samtakanna Just Stop
Oil handteknir eftir að hafa skvett súpu á
málverkið Sólblómin eftir Vincent van Gogh í
National Gallery í Lundúnum. Gjörningurinn
náðist á myndband og þar sjást tvær ungar kon-
ur, Phoebe Plummer og Anna Holland, skvetta
hvor sinni dósinni af Heinz-tómatsúpu á hið
sögufræga málverk áður en þær líma sig við
vegg safnsins.
„Hefur þú meiri áhyggjur af því að málverk
njóti verndar heldur en jörðin okkar og fólkið?“
sagði hin 21 árs Phoebe Plummer.
Sambærileg mótmæli hafa átt sér stað í
Vín þar sem mótmælendur hentu svörtum
olíukenndum vökva á málverk eftir Gustav
Klimt, í Róm þar sem mótmælendur réðust
með súpu á annað verk eftir van Gogh og í Den
Haag þar sem mótmælandi límdi höfuð sitt við
málverkið Stúlka með perlueyrnalokk eftir Jo-
hannes Vermeer. Verkin hafa í flestum tilfellum
ekki hlotið neinn skaða af en þó er ljóst að fyrir
margt fólk hafa þessir gjörningar þveröfug áhrif
og gera það afhuga loftslagsbaráttunni í stað
þess að vekja það til umhugsunar.
Kanye West gegn heiminum
Tónlistarmaðurinn Kanye West, eða Ye eins og
hann er kallaður, hefur ekki átt sjö daga sæla.
Samband hans við raunveruleikaþáttastjörnuna
Kim Kardashian beið skipbrot árið 2021 með
formlegum skilnaði í nóvember 2022 og hefur líf
Ye verið eins og lestarslys í beinni allt þetta skeið.
Ye hefur aldrei legið á skoðunum sínum en
undanfarna mánuði hafa fordómafull ummæli
hans um gyðinga og öfgafullar stjórnmálaskoð-
anir vakið hneykslan og reiði heimsbyggðarinnar.
Í byrjun október kom Ye fram á tískuvikunni í
París klæddur í bol merktum hægriöfga-slagorð-
inu „White Lives Matter“. Nokkrum dögum síðar
var Instagram-aðgangi Ye lokað eftir að hann
birti samtal við rapparann P. Diddy þar sem hann
ásakaði hinn síðarnefnda um að vera strengja-
brúða gyðinga. Segja má að Ye hafi um þetta leyti
gengið berserksgang á internetinu með and-
semitísk viðhorf sín. Um svipað leyti birti hann
tíst sem var túlkað sem ofbeldishótun gagnvart
gyðingum og olli því að Twitter-aðgangi Ye var
tímabundið lokað og nokkrum mánuðum síðar
mærði hann Adolf Hitler í spjallþætti samsæris-
kenningasmiðsins Alex Jones.
Þessi rússíbanareið Ye hefur ekki aðeins haft
áhrif á mannorð hans heldur valdið honum
milljarðatapi eftir að samstarfsaðilar á borð
við Adidas hafa yfirgefið tónlistarmanninn í
hrönnum. Margir eru því eflaust dauðfegnir að
hugmynd Arons Kristins Jónassonar úr ClubDub
um að reisa styttu af Ye við Vesturbæjarlaug varð
ekki að veruleika.
Kanye West á í einni blóðugustu skilnaðar- og
miðaldrakrísu í manna minnum um þessar mundir.
Fréttablaðið/getty
Önnur menningarátök sem má einnig nefna
n Brotthvarf Bókabílsins
n Lokun Stjörnutorgs
n LXS gegn RÚV
n Bókaþjófurinn bíræfni gómaður af FBI
n Balenciaga-tískuskandallinn
n Ráðning þjóðminjavarðar
16 Lífið 28. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðiðLífIÐ Fréttablaðið 28. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR