Fréttablaðið - 28.12.2022, Síða 48
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Það er gaman að velta fyrir sér
orðum og orðræðu samtímans.
Það er alls konar tíska í orð-
notkun. Sum orð tolla í tískunni
og svo virðist sem orðið
„geggjað“ sé eitt af þeim. Önnur
orð og orðatiltæki eru dottin úr
móð (!), enginn segir „punkt-
uris“ eða „já, sæll“ lengur.
Það er sérstaklega skemmti-
legt að skoða og stúdera orð-
ræðu valdhafa. Velta fyrir sér
hvaða orðatiltæki eru vinsælust
á hverjum tíma og hvað stenst
tímann. Spá í af hverju fólk
talar oft úr takti við almenna
málvenju og hálfpartinn eigið
tungumál.
Innviðir voru um nokkra
hríð afar vinsælt orð, raunar
svo vinsælt að heilt ráðuneyti
var stofnað um það. Síðan hefur
reyndar lítið spurst til orðsins
og að einhverju marki merk-
ingarinnar líka.
Vinsæl orðræða hjá fólki sem
annað hvort hefur völd eða
telur sig að minnsta kosti hafa
tilkall til þeirra er að hnýta
framan við svör sín „ég hef
sagt …“. Við erum svo sem vön
því að einhver endurtaki sig við
okkur, sérstaklega í æsku: „ég
hef margoft sagt … þér að taka
til/ganga frá eftir þig“. En þessi
notkun er ekki vegna þess að sá
sem lætur þau frá sér telji ekki
á sig hlustað. Nei, þetta er yfir-
lætisleg orðræða þess sem telur
sig aðeins segja gáfulega hluti
og finnst eðlilegt að endur-
taka sem víðast. En auðvitað
er þetta bara hjákátlegt, því að
vitna í sjálfan sig er í besta falli
skondið, eiginlega sorglegt enda
verður það sem sagt er ekki
merkilegra við að viðkomandi
sé sammála sjálfum sér. n
Orð
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Vínartónleikar
Sinfóníunnar
5., 6. OG 7. JANÚAR
MIÐASALA Á SINFONIA.IS
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN Við minnum á að skilafrestur
jólagjafa er til 31. janúar 2023
Við þökkum samfylgdina gegnum
skafrenninginn, heiðríkjuna, hráslagann
og bongóblíðuna á árinu 2022.
Klæðum okkur vel á nýju ári.
Kveðjum enn
eitt ár í norðri.