Fréttablaðið - 31.12.2022, Síða 16

Fréttablaðið - 31.12.2022, Síða 16
Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Í pólitík- inni vex innihalds- rýrum öfgahóp- um fiskur um hrygg, ekki síst í Evrópu þar sem þeir þykja orðnir stjórntækir … Margir virðast mæla virði sitt í afköstum. Við réttlæt- um tilvist okkar með afrekum, titlum, fjölda svaraðra tölvupósta, ferða- lögum og maraþon- hlaupum. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Þú færð þessa flottu tækjatertu á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna ÖFLUGAR TÆKJATERTUR Í MÖRGUM GERÐUM skot 38 SEK 4 5 72 Í dag stöndum við á bjargbrún nýs upphafs. Eins og alvitrir sögumenn eigin lífs leggjum við drög að næsta kafla. Hvað ætlar þú að gera árið 2023? Gera þér glaðan dag, gera það gott, gera betur í dag en í gær? Fátt er skemmtilegra en að leggja drög að nýrri atburðarás. Stundum væri okkur þó hollara að leggjast í endurskoðun á þeim söguþræði sem við höfum þegar skapað. Í ár var þess minnst að áratugur er liðinn frá andláti bandaríska rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Noru Ephron, sem lést 71 árs að aldri. Ephron hóf feril sinn sem dálkahöfundur í New York. Er Ephron varð einstæð móðir ákvað hún að færa sig yfir á ábatasamari vettvang. Hún gerðist hand- ritshöfundur og leikstjóri í Hollywood og er nú þekkt fyrir kvikmyndir á borð við „When Harry met Sally“ og „Sleepless in Seattle“. Ephron starfaði eftir einkunnarorðum: „Everything is copy“ – allt er umfjöllunarefni. Hún hélt því fram að rynni kona á banana- hýði væri hlegið að henni en segði hún frá því að hún hefði runnið á bananahýði væri hlegið með henni – „vertu hetja sögunnar frekar en fórnarlamb,“ sagði Ephron, sem skrifaði sann- sögulega skáldsögu um eigin hremmingar þegar hún komst að því, kasólétt, að eigin- maður hennar, Watergate-blaðamaðurinn Carl Bernstein, ætti í ástarsambandi við vinkonu hennar. Ephron var samkvæm sjálfri sér og enda- lok sögu sinnar skrifaði hún eftir lögmáli bananahýðisins. Í ritgerðasafni sem kom út árið 2006 lýsti Ephron því yfir að helsti ávinn- ingur dauðans væri að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af hárinu á sér. Sama ár hafði hún greinst með krabbamein. En þótt Ephron leitaðist við að fá fólk til að hlæja með sér breiddi hún aldrei yfir hrá- kaldan veruleikann. „Það eru fáir kostir við að eldast,“ sagði Ephron í sjónvarpsviðtali stuttu fyrir andlát sitt. „Hvers virði er viska ef maður man ekki neitt? Tími til lesturs ef maður sér ekkert? Þess vegna er mikilvægt að neyta síðustu máltíðarinnar áður en um er að ræða síðustu máltíðina. Annars gæti maður sólundað henni í eitthvað eins og túnfisk- samloku.“ Um seinan Hvað ætlar þú að gera árið 2023? Halda veislur, ganga á fjöll, stefna á stöðuhækkun, skrá þig á námskeið? Margir virðast mæla virði sitt í afköstum. Við réttlætum tilvist okkar með afrekum, titlum, fjölda svaraðra tölvupósta, ferða- lögum og maraþonhlaupum. En hverja stund sem við gerum eitt gerum við ekki annað. Árið 1986 var Ephron beðin um að skrifa nokkur orð í kennslubók um ritstjórn texta. Við verkið komst Ephron að því að yfirferð væri ekki aðeins mikilvægur þáttur við að skrifa heldur einnig við að lifa. „Endurskoðið núna, áður en það er um seinan.“ Þótt Ephron sæi lítinn ávinning við að eldast viðurkenndi hún að lokakafli lífsins hefði kennt henni eitt besta bragð á sviði rit- stjórnar. „Er þetta það sem ég vil gera í dag?“ spurði Nora sig daglega síðustu æviárin. Vitn- eskju hennar um Kardashian-fjölskylduna fór aftur en í staðinn gafst henni aukið svig- rúm til að sinna kvikmyndagerð og vinum sem hún sendi smákökur í pósti. Eitt af síðustu ritverkum Ephron fyrir and- látið voru tveir listar. Annar listinn saman- stóð af því sem hún myndi sakna: Börnin mín, vor, haust, að lesa uppi í rúmi, hlátur, jólatré, vöfflur. Hinn innihélt það sem hún myndi ekki sakna: Tölvupóstur, hárþvottur, fermingarveislur, pallborðsumræður um konur í kvikmyndum. Í stað þess að horfa fram á veginn og útlista allt það sem við ætlum að gera árið 2023 ættum við ef til vill að líta yfir farinn veg og leggja heldur drög að öllu því sem við ætlum að láta ógert árið 2023. Gleðilegt ár, kæru lesendur. n Síðasta máltíðin Á miðnætti rennur ár öfganna sitt skeið á enda. Og enda þótt enginn viti hvað nýja árið ber í skauti sér, er jafn augljóst að menn minnast þess sem er að líða með nokkrum óhug og tómleika í hjarta. Ár öfganna í veðurfari hefur birt okkur meiri hitasveiflur en við höfum þekkt á eigin skinni. Hitinn í Evrópu fór næstum í fimmtíu gráður þar sem hann mældist mestur síðastliðið sumar, í Portúgal, með ógnandi og eyðileggjandi skógar- eldum sem kviknuðu raunar víðar um álfuna. Vestur í Bandaríkjunum hefur frostið undir lok ársins nálgast sextíu gráðurnar á norðanverðri austurströndinni, en það er fáheyrt – og sjaldan hafa fleiri látist þar af völdum kaldranans. Heima á Íslandi hafa öfgarnar í veðri verið áberandi, ýmist með snjóþunga eða óvanalega auðri jörð fram eftir vetri þegar hitamet var slegið í nóvember – og síðar kuldameti í frosta- mánuðinum strax á eftir. Öfgarnar á sviði mannréttindamála, ekki síst kvenfrelsis, eru líka sláandi, en afturkippurinn er augljós um allar jarðir, svo sem hvað varðar þungunarrof í Bandaríkjunum, fataval í Íran og grimmilega kúgun á hendur afgönskum konum. Í pólitíkinni vex innihaldsrýrum öfgahópum fiskur um hrygg, ekki síst í Evrópu þar sem þeir þykja orðnir stjórntækir, allt frá Svíþjóð niður til Ítalíu, en þar heldur fasísk kona um valda- taumana sem geldur varhug við réttindum hin- segin fólks, enda flokkur hennar reistur á grunni fasistaflokks Mussolini. Og jafnvel bara í gömlu höfuðborg Íslendinga, austur í kóngsins Kaupinhöfn, er komin til valda ríkisstjórn sem rýfur hefðina hvað gömlu flokkabandalögin varðar, sem hefði þótt jafn óhugsandi á árum áður og kærleiksríkt og endurtekið stjórnmálasamband Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins á Íslandi. Óhugnanlegustu öfgar ársins eru þó stríðs- rekstur Rússa í Úkraínu, en önnur eins grimmd og mannvonska af hálfu Evrópuþjóðar á hendur næstu nágrönnum sínum verður varla jöfnuð við annað en stríðsglæpi nasista í síðari heims- styrjöldinni. Enda er meginerindi Rússahers að eyðileggja sem mest af innviðum úkraínskrar þjóðar – og þyrma þar allra síst saklausum borgurum. Ár öfganna vekur okkur að lokum til umhugs- unar um að lýðræðið er að veikjast og stendur fráleitt jafn styrkum fótum og áður. Og ár öfganna kennir okkur akkúrat í þeim efnum hvað lýðræðisleg þjóðabandalög og varnarsam- starf þeirra er mikilvægt, en þar má aldrei sofa á verðinum. n Ár öfganna Skoðun Fréttablaðið 31. desember 2022 LAuGARDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.