Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 20
Við verð-
um að
vanda
okkur
betur við
val á vald-
höfum.
n Í árslok
Ólafur
Arnarson
birnadrofn@frettabladid.is
Ármótunum fagnað víða
Upp er runninn gamlársdagur. Síðasti dagur
ársins. Sumir segja þennan dag skemmti-
legasta dag ársins, aðrir þann leiðinleg-
asta. Líkt og Halldór Gylfason leikari segir
í viðtali í blaðinu verða sumir sorgmæddir
á áramótum. Ástæðan er líklega sú að á svo
stórum tímamótum er eðlilegt að líta yfir farinn veg
og rifja upp árið sem er að líða.
Sumt getur verið erfitt að horfast í augu við, sumu
sjáum við eftir og sumt skömmumst við okkar fyrir. En
við þurfum samt að gangast við því sem við höfum gert,
sama hvort það er óþægilegt eða ekki.
Ég vona að allir fari yfir sitt ár á þessum tímamótum.
Fagni því góða og finni fyrir stolti yfir því sem gekk
vel. Svo vona ég að allir horfist í augu við það slæma,
líti í eign barm og kjósi að gera betur. Leiti sér aðstoðar
ef þörf er á og biðjist afsökunar. Stingi ekki höfðinu í
sandinn og endurtaki sömu gjörðirnar og mistökin ár
eftir ár. n
Gleðilegt nýtt ár
Ég vona að
allir fari
yfir sitt ár á
þessum
tíma-
mótum.
Dr. Football pitsu
Eftir hátíðarmatinn síðastliðnar
vikur er kjörið að fá sér pitsu.
Í þreytunni á nýársdag er
jafnvel góð hugmynd að
fá hana heimsenda. Við
mælum sérstaklega með
pitsunni Dr. Football
á Pizzunni en hún er
einstaklega bragðgóð.
Á henni er kjúklingur,
Pico De Gallo, rauð-
laukur, sriracha-sósa
og hvítlauksaioli. Svo
er Pizzan auðvitað þekkt
fyrir góðar og vel kryddaðar
brauðstangir.
Við mælum með
Áramótaheit
Klassísk áramótaheit, svo sem að
borða hollari mat, hreyfa sig og eyða
minni tíma í símanum geta verið
bæði leiðinleg og kvíðavaldandi.
Við mælum því með áramótaheit-
um sem gera árið 2023 bærilegra og
skemmtilegra. Til dæmis að smakka
nýtt nammi á hverjum laugardegi,
prófa nýtt borðspil, taka upp Tik-
Tok-myndband eða vera í náttfötum
heilan dag einu sinni í mánuði. n
María Heba Þorkelsdóttir
„Ég er mjög heimakær á
gamlárs,“ segir leikkonan
María Heba Þorkelsdóttir.
„Við eldum góðan mat, eins
og fylgir tilefninu. Ég set upp
rauðan varalit. Það tilheyrir
líka.“
María Heba er ekki mikið
fyrir flugelda en hún á hund
sem hún segist elska meira
en raketturnar. „Svo þegar
hinir vitleysingarnir fara út
og skjóta upp þá held ég mig
innandyra,“ segir hún. „Það er
furðulega hátíðleg stund að
horfa á gamla árið hverfa á
sjónvarpsskjánum og hið nýja
koma inn. Ég er oftast ein á
þessu augnabliki og ég kemst
við í hvert sinn, tárast, finn
fyrir hverfulleika alls sem er
og sættist við það flökt,“ segir
María Heba.
„Þetta er góð stund og sönn
og líka dýrmæt. Ég ein, með
sjálfri mér, á dýrasta augna-
bliki ársins. Svo koma þau
hin inn og við skálum og það
er frábært. Eftir skál og knús
syngjum við í karókí. Bara af
því það er fáránlega skemmti-
legt og núna á ég græjurnar,“
segir hún.
Thor Aspelund
„Gamlárskvöld hjá okkur
er mjög hefðbundið,“ segir
Thor Aspelund tölfræðingur.
„Tengdafjölskyldan er hjá
okkur og það verður kalkúnn.
Það er orðin 20 ára venja.
Mjög staðlað,“ segir hann.
Thor segist sérstaklega
spenntur fyrir áramótunum
nú þar sem þetta eru fyrstu
áramótin eftir að hann varð
afi en hann og eiginkona hans,
Arna Guðmundsdóttir læknir,
eignuðust nýlega sitt fyrsta
barnabarn.
„Svo er skaupið og flug-
eldar í miklu hófi enda erum
við með nýjan hund. Kannski
hópganga upp á Landakots-
tún fyrir suma sem vilja meiri
læti,“ segir Thor.
Gunnar Skírnir og Sæmundur Brynjólfssynir
Tvíburarnir og raunveruleika-
stjörnurnar Gunnar Skírnir og
Sæmundur Brynjólfssynir eru
staddir á Tenerife þar sem þeir
hafa varið jólunum og nú ára-
mótunum með fjölskyldunni.
„Við tvíbbarnir erum að fara út
að borða með fjölskyldunni á
veitingastað sem heitir Luuma
og er á Fanabe-ströndinni,“ segir
Gunnar. Hún er staðsett í Adeje á
suðvesturhluta Tenerife.
„Við horfum síðan á áramóta-
skaupið á íslenskum stað og
fylgjumst síðan með flugelda-
sýningunni á ströndinni og
drekkum kampavín,“ segir Sæ-
mundur.
Steinunn Ása
Þorvaldsdóttir
„Ég ætla að fagna áramót-
unum í litlum bæ í Suður-Nor-
egi sem heitir Sandefjord. Ég
kalla hann Friðsældarfjörð
því þar er svo friðsælt,“ segir
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir
sjónvarpskona. Sandefjord
er í um 90 kílómetra fjarlægð
frá Osló og þar búa um 65
þúsund manns.
Hún er spennt fyrir
kvöldinu sem hún ætlar að
njóta með góðum vinum. „Á
matseðlinum er hvítsúkku-
laðimús, sætkartöflumús og
kalkúnn,“ segir Steinunn. „Svo
verða ýmis skemmtiatriði í
boði,“ bætir hún við.
Steinunn er ekki mikið
fyrir flugelda og sprengir þá
alls ekki sjálf. „Njótum ára-
mótanna í friði frá flugeldum.
Gleðilegt ár!“
Gamlársdagur hefur í gegn-
um tíðina verið einn mesti
partídagur ársins. Nú fáum
við loks að halda upp á þessi
tímamót án allra takmarkana
svo það má búast við miklu
partístandi.
birnadrofn@frettabladid.is
Steinunn Ása verður í Sande-
fjord yfir áramótin og Gunnar og
Sæmundur á Tenerife, María Heba
og Thor halda hefðbundin áramót
heima á Íslandi. Öll ætla þau að
njóta hátíðarinnar og borða góðan
mat með sínu fólki en ekkert þeirra
er sólgið í flugelda. Hvað ætlar þú að
gera í kvöld? n
Ísland er skólabókardæmi um eyja-
hagkerfi sem stjórnað er af fólki
sem hefur annað að leiðarljósi en að
hámarka hag fjöldans og bæta lífs-
gæði í landinu.
Íslenska krónan kostar okkur
300 milljarða á ári. Kostnaðurinn
felst meðal annars í því að engin
alþjóðleg samkeppni er í banka- og
tryggingastarfsemi. Bankaþjónusta
og vátryggingar eru þær dýrustu
í Evrópu og íslenskir bankar og
tryggingafélög, sem seint verða talin
meðal þeirra bestu í heimi, skila
ofurhagnaði til eigenda sinna.
Misheppnað landbúnaðarkerfi
veldur því að íslenskir neytendur
borga hæsta verð í heimi fyrir mat-
vörur á sama tíma og bændur lepja
dauðann úr skel. Milliliðir og verk-
smiðjuframleiðendur svína- og
fuglakjöts maka krókinn í kerfi
sem rekið er á herðum neytenda og
bænda.
Því er haldið að okkur að við-
skiptafrelsi í landbúnaði og aðild að
ESB muni ganga af íslenskum land-
búnaði dauðum og ógna matvæla-
öryggi hér á landi. Sannleikurinn er
sá að rekstrarumhverfi landbúnaðar
innan ESB er bændum mun hagfelld-
ara en það óskapnaðarregluverk sem
gildir hér á landi.
Að undanförnu höfum við rekið
okkur á að innviðir Íslands eru moln-
aðir – duga kannski fyrir þá þjóð sem
hér bjó 1970. Síðan hefur fólksfjöld-
inn nær tvöfaldast.
Menntakerfið hefur dregist aftur
úr og heilbrigðiskerfið er sprungið.
Skortur er orðinn á heitu vatni á
eldfjallaeyjunni og stefnir í að við
náum ekki markmiðum okkar um
orkuskiptin vegna skorts á rafmagni.
Í marga áratugi hafa stjórnvöld
Framtíðin er í okkar höndum
brugðist fólkinu sem býr í þessu
góða og gjöfula landi. Núverandi
ríkisstjórn hefur enga aðra stefnu
en að sitja út kjörtímabilið Allt er
sett í biðflokk. Á nýju ári og þeim
sem á eftir koma verða kjósendur á
Íslandi að gera meiri kröfur en fram
til þessa til þess fólks sem býðst til að
stýra þjóðarskútunni.
Allt er þetta nefnilega undir okkur
sjálfum komið. Við verðum að vanda
okkur betur við val á valdhöfum.
Takist okkur það getum við skapað
gott og sanngjarnt samfélag jafnra
tækifæra og mannúðar. n
20 Helgin 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðHeLGin Fréttablaðið 31. desember 2022 LAUGARDAGUR