Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 28

Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 28
leyniuppskrift að tiramisù sem ég fékk hjá ítalskri mömmu vinar míns fyrir 25 árum. Á miðnætti skálum við fjölskyldan í kampa- víni, bæði áfengu og óáfengu og svo er ég með súkkulaðihúðuð jarðarber og oft macronskökur eða eitthvert spennandi konfekt. Ég skreyti mikið fyrir ármótin og er þá silfur oftast í aðalhlut- verki. Ég er mikil stemningskona og þar af leiðandi er þetta stemn- ingskvöld í uppáhaldi.“ Ertu búin að velja áramóta- dressið í ár? „Já, það er alltaf eitthvað pallí- ettutengt, ég hugsa að ég fari í gull- kjól sem ég keypti mér í Las Vegas hér um árið, eða svartan stuttan pallíettukjól, það á eftir að koma í ljós. Aðalmálið hjá mér er að vera með áramótaskraut, glimmer og glans.“ Kaupir þú f lugelda? „Já, við kaupum flugelda en bara brotabrot af því sem áður var. Við vorum ansi sprengjuglöð hér áður fyrr og ég var mikil f lugelda- manneskja, en svo einn daginn fannst okkur bara komið nóg af því að sprengja upp peninga í bílförmum, þar fyrir utan kemur mikið rusl af þessu og óþrifnaður, mér nægja nokkrar flottar kökur og sprengjur. Við kaupum ávallt f lugelda frá björgunarsveitinni því ég veit hvað þessi fjáröflun er þeim mikilvæg en við erum líka farin að huga að því að vera umhverfisvæn og sprengjum því miklu minna en áður.“ Hvað er ómissandi að gera á ára- mótunum? „Mér finnst svo gaman að sjá árið fara og nýtt birtast í sjónvarp- inu. Það er svo hátíðleg stund og minningarnar hellast yfir mann. Í seinni tíð hefur þessi hefð þurft að víkja því börnin mín vilja frekar vera úti að sprengja, spurning að vera bara með RÚV í símanum og ná þessu öllu þessi áramót.“ Hvað finnst þér standa upp úr á árinu sem er að líða? „Þakklæti og frelsi. Þakklæti fyrir heilsuna og allt fólkið mitt og bara þakklæti fyrir að búa á þessu landi, það eru forréttindi að vera frá Íslandi. Ég er líka þakk- lát fyrir frelsið okkar, frelsi sem við höfðum ekki fyrir ári síðan sökum heimsfaraldurs, nú getum við hist og glaðst saman. Maður fattar ekki fyrr en eftir á hvað það er gott að geta hitt vini sína, fólkið sitt og alla þá sem manni þykir vænt um og faðmað fólk, það er best. Áramótin marka alltaf nýtt upphaf og það er svo notaleg til- finning þegar nýja árið er komið, uppfullt af tækifærum og ævin- týrum. Ég verð samt pínu meyr á áramótum þegar ég fer yfir farinn veg og hugsa til ættingja sem eru fallnir frá en þá er svo gott að eiga góðar minningar um allt þetta fólk og skapa nýjar hefðir með þeim sem eru hér meðal okkar. Þegar nýja árið gengur í garð kemur alltaf einhver ákveðin ró og mikill friður yfir mig – einhver tilfinning sem ég get ekki lýst. Að lokum óska ég öllum gleðilegs nýs árs, árs sem verður uppfullt af hamingju, tækifærum og umfram allt góðri heilsu,“ segir Eva að lokum. n Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður verður að vinna á gamlárskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Eva Ruza Miljević tók á móti nýjum ævintýrum á árinu sem er að líða. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þema frá Portúgal Ólafur Örn Ólafsson, veitinga- maður og vínþjónn á Brút, borðar leifarnar á gamlárskvöld og horfir á skaupið með kampavínsglas í hönd. Býður upp á veislukræsingar frá því landi sem heimsótt var í ár. Hvernig verða áramótin þín? „Heima hjá mér hefur alltaf verið stórt matarboð með vinum og fjölskyldu, en starf veitinga- mannsins fer oft fram á þeim tímum sem annað fólk er í fríi svo ég reikna með því að veisluhöld falli á konuna mína, því ég verð á vaktinni á Brút, með fullt hús af fólki. Reikna þó með því að komast heim í leifarnar og Skaupið og skála við fólkið mitt í einhverju sjúklega næs kampavíni.“ Hvað verður borðað á gamlárs- kvöld og nýárskvöld? „Við höfum aldrei sama matinn á gamlárskvöld, heldur bjóðum til veislu frá því landi sem við ferðuðumst um á árinu sem er að líða, í ár verður sennilega mikið af alls konar fiski og ekki ólíklegt að það verði kveikt upp í kolagrillinu, því það verður Portúgal-þema í þetta sinn.“ Ertu búinn að velja áramóta- dressið í ár? „Ég verð sennilega bara í vinnu- fötunum, sem betur fer eru það voða falleg jakkaföt.“ Kaupir þú f lugelda? „Nei, mér leiðast flugeldar. Tók þó alveg þátt í því þegar börnin voru minni, en núna nenni ég því alls ekki. Eina sem ég skýt upp um áramót eru kampavínstappar. Hvað finnst þér standa upp úr á árinu sem er að líða? „Persónulega fannst mér best að geta aftur farið í ferðalög til útlanda með fjölskyldunni því það er það skemmtilegasta sem við gerum saman. Í vinnunni höfum við fengið alls konar viðurkenn- ingar og tilnefningar til verðlauna fyrir Brút, sem gerir það þess virði að eyða meira og minna öllum stundum í vinnunni.“ n Áramótin marka alltaf nýtt upphaf og það er svo notaleg tilfinning þegar nýja árið er komið, uppfullt af tækifærum og ævin- týrum. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir Þandi út vængina á árinu Eva Ruza Miljević, skemmtikraftur og gleðigjafi með meiru, ætlar að reyna við Wellington-steikina án þess að ofelda hana. Hvernig verða áramótin þín? „Við Miljević-fjölskyldan erum alltaf saman á hátíðisdögum og í ár verður engin breyting á. Mér heyrist að móðir mín ætli að kasta gamlárskvöldi í fangið á mér, sem er gríðarlega mikil áhætta fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Hún „leyfði“ mér nefnilega að hafa þetta dýrmæta kvöld sitt árið 2019 eftir mikið suð og ég náði að klúðra Wellington-steikinni. Ég stillti óvart klukkuna 10 mínútum lengur en steikin átti að vera og við getum orðað það þannig að sem betur fer var nóg af sósu og meðlæti. Mamma hefur trú á mér, pabbi aðeins minni trú, en allir ætla að mæta með bros á vör. Ég hef reyndar áður verið viss um að gera ekki mistök í eld- húsinu, en svo fer allt til fjandans. En ég elska að elda og hanga í eldhúsinu, fá fólk í mat og er góður kokkur þegar vel tekst til. Ég er þeim hæfileika gædd að hafa alltaf rosalega mikla trú á sjálfri mér í öllu sem ég geri, sem er svo sem ágætt. Þarf bara að passa klukkuna á ofninum, læt kannski mömmu stilla hann til vonar og vara. Get þá kennt henni um ef eitthvað fer úrskeiðis. Svo er bara að vona það besta. Ég ætla allavega að skreyta mikið. Það gæti truflað athyglina ef eitthvað fer úrskeiðis. Á mið- nætti skálum við alltaf í alls konar búbblum og fáum okkur snakk og með.“ Ertu búin að velja áramóta- dressið í ár? „Ó, já, ég er alltaf klár með glimmerið og pallíetturnar á áramótum og í ár verður engin breyting á. Ég fann dressið í ár í Vila og það er silfur-pallíettupils og blússa í stíl og það glitrar allt saman fallega. Það þurfa reyndar ekkert að vera áramót hjá mér til að það glitri. Ég laðast vanalega að glitrandi hlutum og verð eflaust enn eins og gangandi jólatré þegar ég verð 90 ára.“ Kaupir þú f lugelda? „Það er alls ekki mín deild. Ég læt Sigga minn, pabba og börnin alveg um það. Ég elska bara að standa úti í innkeyrslu og stara upp í himin- geiminn þegar litríkar sprengjur prýða hann, en ég þori ekki að fara nálægt þessu.“ Hvað er ómissandi að gera á ára- mótunum? „Það er í raun ómissandi að horfa á litlu börnin birtast í mann- inum mínum og pabba. En þeir eru menn sem segjast alltaf ekki ætla að skjóta „þetta árið“ upp en enda spenntastir í hópnum og halda flugeldasýningu fyrir Kársnesið, brosandi með hlífðargleraugun á nefinu. Þeir byrja vanalega á litlum sprengjum fyrir matinn fyrir litlu börnin sem standa í glugganum, en eru held ég bara að sprengja þetta fyrir sjálfa sig og enga aðra.“ Hvað finnst þér standa upp úr á árinu sem er að líða? „Árið 2022 var ár risabreytinga hjá mér. Við mamma tókum ákvörðun í lok síðasta árs sem ég var skíthrædd við. En við ákváðum að selja blómabúðina okkar sem við höfum unnið að saman í 23 ár, og í lok febrúar afhentum við lyklana að litla barninu okkar. Ég ákvað að treysta alfarið á sjálfa mig og elta drauminn minn. Ég hellti mér út í skemmtibransann af fullum krafti en ég hef unnið við að skemmta síðan 2015 og alltaf með 100% vinnu í blómabúðinni líka. Mér fannst og finnst þetta mesta áhætta sem ég hef tekið í líf- inu, að hætta á föstum launum og í öruggri vinnu og treysta á að ég gæti búið mér til vinnu og verkefni. Ég sannreyndi setninguna sem er svo oft sögð: Þegar einar dyr lokast opnast aðrar.“ Það var dálítið það sem ég þurfti smá að treysta á líka, en ég hefði alveg getað sparað stresshnútinn í maganum því þessar nýju dyr galopnuðust og fleygðu mér af stað í geggjuð ævintýri. Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér síðan ég hætti að blómast og ég er svo endalaust þakklát fyrir það. Ég fann bara að eftir 23 ár í blómunum þurfti ég aðeins að fá að fljúga og elsku mamma var fuglaþjálfarinn. Sagði mér bara að þenja út vængina og fara af stað, sem ég gerði og er ótrúlega stolt af sjálfri mér fyrir að hafa gert.“ n Reikna þó með því að komast heim í leifarnar og Skaupið og skála við fólkið mitt í einhverju sjúklega næs kampavíni. Ólafur Örn Ólafsson Það þurfa reyndar ekkert að vera áramót hjá mér til að það glitri. Ég laðast vanalega að glitrandi hlutum og verð eflaust enn eins og gangandi jólatré þegar ég verð 90 ára. Eva Ruza Miljević Eva Dögg hefur mjög gaman að því að 2 kynningarblað A L LT 31. desember 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.