Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 31
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 4. janúar 2023. Allar
nánari upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfniskröfur er að finna
á starfatorg.is. Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll
áhugasöm til að sækja um. Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð
staðsetningu.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Vertu í bandi 12 stig!
» Lögfræðingur á svið fjarskipta og netöryggis
Hefur þú velt því fyrir þér hvernig lífið væri ef Ísland væri án fjarskipta
í einn sólarhring? Vissulega gæti verið ágætis tilbreyting að losna við áreiti
hversdagsins en veruleikinn er sá að bæði einstaklingar og þjóðir heims
eru svo háð fjarskiptum að erfitt er að ímynda sér tilveruna án þeirra. Í nýju
ráðuneyti er unnið að því að Ísland verði fyrsta gígabitaland heimsins en
um leið þarf að sjá til þess að netöryggi sé til fyrirmyndar.
Til að efla teymið sem starfar að þessum málum í ráðuneytinu leitum við nú
að lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á alþjóðasamstafi um málefni
fjarskipta og netöryggis og hefur reynslu og þekkingu sem nýtist við inn-
leiðingu Evrópugerða og samningu lagafrumvarpa.
» Evrópusérfræðingur á stafrænni vegferð
Ísland er í dyggu samfloti með öðrum Evrópuþjóðum þegar kemur
að upplýsingasamfélaginu, gervigreind, stafrænni þróun, aðgengi að
upplýsingum og öruggri notkun gagna. Á sama tíma og ýmis tækifæri felast
í breytingum á þessu sviði koma upp ýmsar áleitnar spurningar sem snerta
siðferði og persónuvernd. Mikil stefnmótun mun eiga sér stað á þessu sviði
og sömuleiðis innleiðing á Evrópugerðum og alþjóðlegum skuldbindingum.
Við leitum nú að einstaklingi sem hefur burði til að hugsa fram á veginn,
hefur reynslu af alþjóðlegu samstarfi og brennandi löngun til að leggja sitt
af mörkum á sviði stafrænnar þróunar. Viðkomandi tæki þátt í ýmis konar
Evrópusamstarfi fyrir hönd Íslands.
Okkar hlutverk
er að leysa krafta úr læðingi
Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins er að leiða saman það afl sem býr í háskólastarfi, vísindum, nýsköpun, iðnaði, fjarskiptum
og upplýsingatækni og stuðla þannig að því að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar.
Ráðuneytið fer með þau viðfangsefni sem varða málefni upplýsingasamfélagsins, fjarskipti og netöryggi, notkun opinberra gagna til nýsköpunar
og umbóta fyrir atvinnulíf, rafræna auðkenningu, traustþjónustu og tæknilausnir á sviði gervigreindar. Við leggjum metnað okkar í að þessar
grunnstoðir þekkingarsamfélagsins séu öflugar og traustar og í góðu samræmi þarfir samfélagsins.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR