Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.12.2022, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 31.12.2022, Qupperneq 45
Geimfarinn Kathy Sullivan hlaut Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar í ár, en þau voru veitt á Húsavík í gær. benediktboas@frettabladid.is Það er Könnunarsafnið á Húsavík sem veitir verðlaunin ár hvert, en þetta er í sjötta sinn sem þau eru af hent fyrir afrek í landkönnun og vísindastarfi. Kathy Sullivan er mikill Íslands­ vinur en hún á að baki þrjú geimf lug og hefur ferðast 356 sinnum umhverfis jörðina, eða nærri 14 milljón kílómetra í geimnum. Sullivan var í áhöfn geim­ skutlunnar Discovery sem kom Hubble­ sjónaukanum á braut um jörðu árið 1990. Þá setti geimskutlan hæðarmet er hún f laug í 621 kílómetra hæð yfir jörðu. Árið 2020 varð Sullivan fyrst kvenna til að kafa niður í Challenger­ dýpið í Maríanadjúpál, dýpsta parti hafsins sem er um 11 kílómetra undir sjávarmáli. Engin kona hefur þannig kannað staði með meiri hæðarmun, eða samtals 632 kílómetrum, 621 km yfir yfirborði jarðar og 11 km undir sjávarmáli. Árið 2013 skipaði Barack Obama Bandaríkjaforseti hana sem forstjóra NOAA, hafrannsókna­ og loftslags­ stofnunar Bandaríkjanna. Kathy sem er jarðfræðingur að mennt er mikill Íslandsvinur og hefur heimsótt Ísland við mörg tækifæri. Safnið verðlaunaði jafnframt land­ könnuðina Will Steger og J.R. Harris frá Bandaríkjunum, Dominique Gonçalves frá Mósambík, Geoff Green frá Kanada og Belén Garcia Ovide frá Spáni, en hún er forstöðukona Ocean Missions á Húsavík. Formaður dómnefndar var Jeff Blumenfeld, deildarforseti hjá The Explorers Club í Bandaríkjunum. n Landkönnuðir verðlaunaðir á Húsavík Kathy Sullivan við Laxá, neðan bæjarins Helluvaðs í Mývatnssveit, við uppáhaldsveiðistað geimfarans Neil Armstrong.  Myndir/ragnar Th. SigurðSSon Halldór Kiljan Laxness skrifaði grein í Morgunblaðið þennan dag árið 1970 sem hann nefndi Hernaðurinn gegn landinu. Greinin vakti margvísleg and­ svör og deilur í þjóðfélaginu. Hann var hættur að láta að sér kveða í flokkspóli­ tískum deilumálum á Íslandi en hélt þó áfram að skrifa um ýmis hugðarefni sín í blöðin. Í greininni tók hann sér stöðu sem umhverfissinni þar sem hann mót­ mælti meðal annars hugmyndum um stórvirkjanir, eins og framkvæmdir í Laxá við Mývatn og Norðlingaöldulón í Þjórsárverum. Greinin spratt upp úr umræðu um aukna stóriðju í landinu og átti þátt í því að ýmsar stórtækar hugmyndir um virkjanir voru lagðar á hilluna um sinn. Í grein sinni skrifar Halldór meðal annars um Laxá og Mývatn en greinina má sjá og lesa á vefsíðu Gljúfrasteins. „Laxár­ og Mývatnssvæðið er sérstæð­ asta og dýrmætasta vatnasvæði í heimi frá líffræðilegu og náttúrufræðilegu sjónarmiði séð. Við Mývatn bjuggu til skams tíma þesskonar menn, og við munum marga þeirra enn, sem á hverjum tíma Íslands­ sögunnar hefðu verið kallaðir mannval. Og svo hefði verið hvar sem var í heim­ inum. Þó þeir ynnu hörðum höndum og gætu aldrei orðið ríkir, þá voru þeir and­ legir höfðíngsmenn. Verðmæti þeirra voru ekta. Þeir orkuðu á mann einsog prófessorar frá einhverjum hinna betri háskóla, en stundum einsog væru þar komnir öldúngar er staðið hefðu upp af bekk sínum hjá Agli og Njáli til að ræða við okkur um sinn. Margir þeirra voru þjóðkunn skáld. Einn þeirra, Sigurður á Arnarvatni, hann orti um Mývatnsríkið þessar ljóðlínur: Hér á andinn óðul sín öll sem verða á jörðu fundin. Ég man þá tíð að sumum þótti þetta í meira lagi djúpt tekið í árinni; en núna þegar verið er að basla við að tortíma Mývatni finnum við að hver stafur í þessum vísuorðum er gull. Sannar var ekki hægt að segja það.“ n Þetta gerðist: 31. desember 1970 Kiljan fremstur í flokki umhverfissinna Halldór Kiljan Laxness. Ástkær mamma, tengdamamma, amma og langamma okkar, Guðrún Ingimarsdóttir áður Smárahlíð 5a, Akureyri, lést Þorláksmessudag 23. desember. Verður hún jarðsungin fimmtudaginn 5. janúar frá Glerárkirkju á Akureyri. Fyrir hönd aðstandenda, H. Brynja Sigurðardóttir Hafliði Gunnarsson Sævar Freyr Rut Jónsdóttir Heimir Snær Sigurðsson Guðlaug Heiðdís Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Lilja Gísladóttir Suðurlandsbraut 58, áður til heimilis Espigerði 4, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 28. desember. Útför hennar verður frá Lindakirkju klukkan 13.00, þriðjudaginn 3. janúar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir frábæra umönnun. Klemenz Hermannsson Gísli Klemenzson Birna Guðjónsdóttir Kristinn Klemenzson Margrét Steinþórsdóttir Guðlaug Björk Klemenzdóttir Jón Ásgeir Helgason barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Rósa Pálsdóttir kennari á Siglufirði og Akureyri, síðast til heimilis að Blöndubakka 1, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 22. desember síðastliðinn. Útför hennar verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.00. Eiríkur Páll Eiríksson Guðrún Jónasdóttir Hrafnkell Eiríksson Herdís Eiríksdóttir Brynjar Eiríksson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Sigurðsson Stillholti 19, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, laugardaginn 17. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Sigríður Vigdís Jónsdóttir Margrét Ágústa Jónsdóttir Loftur Ingi Sveinsson Sigurður Jónsson Heiða María Guðlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigmar Bjarni Ákason Hamraborg 34, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, 26. desember. Útförin fer fram frá Lindakirkju, Kópavogi, mánudaginn 2. janúar kl. 13. Ísabella Þórðardóttir Ásgeir Þór Sigmarsson Hansína Sturlaugsdóttir Eyþór Áki Sigmarsson Guðveig Guðmundsdóttir Áslaug Anna Sigmarsdóttir Grímur Thomsen Holm Stefánsson Rögnvaldur Erlingur Sigmarsson Sigurbjörg Kristinsdóttir Gunnar Ólafur Sigmarsson María Leifsdóttir Þórður Sigmarsson Karel Halldórsson Halldóra Matthildur Matthíasdóttir Guðrún Halldórsdóttir Reynir Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Auðunn Hlynur Hálfdanarson tæknifræðingur, lést á aðfangadag, 24. desember, á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum. Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík, fimmtudaginn 5. janúar kl. 13. Berta Sveinbjarnardóttir Sigríður Dögg Auðunsdóttir Valdimar Birgisson Hlynur Þór Auðunsson Eyrún Steinsson Helga Kristín Auðunsdóttir Sveinn Biering Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhannes Hólm Reynisson framkvæmdastjóri Fínpússningar, Vallarási 15, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 29. desember. Útför auglýst síðar. Ásdís Runólfsdóttir Sólveig Þóra Jóhannesdóttir Ólafur Þór Jóhannesson Aldís Arnardóttir Elsa Guðrún Jóhannesdóttir Jón Kjartan Kristinsson Óttarr Makuch Marcin Makuch Runólfur Ólafur Gíslason Haddý Fanndal Þórir Guðlaugsson Rannveig Erlingsdóttir Heiðar Már Guðlaugsson Brynhildur Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn FréttablaðiðLAUGARDAGUR 31. desember 2022 Tímamót 33L
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.