Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 257. tölublað . 110. árgangur .
Sigraðu
innkaupin
3.–6. nóvember
ÞRÁIR
BREYTINGAR
Í RÚSSLANDI BARÁTTAN UM NORRÆNU
TRYGGÐU TITILINN
MEÐ SIGRI Á
ERKIFJENDUNUM
JÓNAS BÆJARSTJÓRI 28 OG 29 VALGEIR MEISTARI 62MASHA Í PUSSY RIOT 64
Gísli Freyr Valdórsson
Karítas Ríkharðsdóttir
Nokkuð er tekist á um hugmyndafræði og innra
starf Sjálfstæðisflokksins í kappræðum fram-
bjóðenda til formanns í flokknum. Þeir Bjarni
Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Guðlaugur Þór Þórðar-
son, umhverfisráðherra, sem skorað hefur
Bjarna á hólm, eru gestir Dagmála í dag. Þátt-
urinn er aðgengilegur í opinni dagskrá á mbl.is.
Í umræðum um það hvort núverandi flokka-
kerfi, þar sem margir flokkar hafa náð inn kjörn-
um fulltrúum á Alþingi, sé komið til að vera eða
ekki, má heyra mismunandi skoðanir þeirra
Bjarna og Guðlaugs Þórs. Þegar sá síðarnefndi
tilkynnti um framboð sitt sl. sunnudag hafði
hann orð á því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefði
minnkað á undanförnum árum og rakti það beint
og óbeint til forystu flokksins. Aðspurður um
þetta í Dagmálum segir Bjarni að úrslit í kosn-
ingum hafi tekið mið af raunverulegum aðstæð-
um hverju sinni. Hann benti á að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði náð inn 21 þingmanni í kosn-
ingunum 2016. Það hefði alla jafna gefið færi á að
mynda tveggja flokka stjórn en aftur á móti hafi
enginn einn flokkur haft burði til að mynda
stjórn með Sjálfstæðisflokknum á þeim tíma.
Vantar alla trú
Guðlaugur Þór segist aftur á móti skynja upp-
gjafartón í forystu Sjálfstæðisflokksins og vísaði
þar til orða Bjarna. Hann bendir á að tími
óvæntra kosningaúrslita sé ekki liðinn, enda sjá-
ist það í kosningum beggja megin Atlantshafs-
ins. „Fólk sættir sig ekki við þá stöðu sem flokk-
urinn er í. Það vantar alla trú. Ég vona að við
séum ekki búin að missa trúna á því að geta gert
betur,“ segir Guðlaugur Þór í viðtalinu.
„Ég er ekki að segja það,“ svarar Bjarni að
bragði og segir mótframbjóðanda sinn vera með
útúrsnúning.
„Það dugar ekki að segja að við ætlum að vera
langstærsti flokkurinn. Þetta er bara innihalds-
laust upphróp. Ef þú ætlar að gera þetta, þá
þarftu að vera með plan. Markmið án þess að
vera með plan er ekkert annað en draumur. Og
planið sem ég er með er að vinna markvisst að
því að skila árangri fyrir fólk, þannig að það sjái
það að við séum traustsins verð og að við skilum
árangri sem bæta lífskjör og lífshamingju í land-
inu.“
Guðlaugur Þór svarar því til að áætlun sín feli
það í sér að valdefla fólk innan flokksins og
leggja áherslu á að flokkurinn sé breiðfylking.
„Við þurfum að vera fastari á grunngildum Sjálf-
stæðisflokksins, það er sú uppskrift sem við höf-
um haft frá því að flokkurinn var stofnaður og
alla jafna gengið mjög vel,“ segir Guðlaugur
Þór.
Bjarni segist ekki gera ágreining um það að
vera föst á grunngildum. „Það þarf samt að taka
svona yfirlýsingar og þýða þær yfir í stefnumál,
pólitísk mál sem varða nútímann,“ segir hann.
Tekist á um innra starf
Morgunblaðið/Eggert
Dagmál Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson bjóða sig fram í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins sem kjörinn verður á landsfundi.
- Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson takast á í Dagmálum
- Ólík sýn á raunverulega aðstöðu og tækifæri Sjálfstæðisflokksins
MFormannsslagur »2 og 4
„Ég var orðinn mjög slæmur en átti
ekki að komast í aðgerð fyrr en í
fyrsta lagi í vor,“ segir Gísli Wiium,
lögregluvarðstjóri, sem varð eittþús-
undasti sjúklingurinn til að gangast
undir liðskipti hjá Klíníkinni. Hann
var með ónýtt hné, mjög kvalinn og
vart vinnufær. Fremur en að bíða
sárþjáður í allan vetur fór Gísli í að-
gerð á eigin kostnað. „Þetta er í
fyrsta skipti á ævinni sem ég þarf á
skurðaðgerð að halda. Þá þarf ég að
borga hana sjálfur þótt ég sé búinn
að leggja í opinbera púkkið í fimmtíu
ár! Mér finnst heilbrigðiskerfið hafa
svikið mig og aðra í sömu stöðu.“
Hjá Klíníkinni verða gerðar um
320 liðskiptaaðgerðir á þessu ári en
þær voru 247 í fyrra. Gert er ráð fyr-
ir um 500 liðskiptaaðgerðum 2023,
að sögn Hjálmars Þorsteinssonar
bæklunarlæknis. Um 2.100 eru á
biðlista eftir liðskiptaaðgerð. »6
Morgunblaðið/Eggert
Klíníkin Gísli Wiium var útskrifaður
með nýtt hné af Klíníkinni í gær.
Var settur
á biðlista
til vors
- Keypti hnjáaðgerð
_ Landsvirkjun hefur sótt um virkj-
unarleyfi til Orkustofnunar vegna
Búrfellslundar. Er það í fyrsta
skipti sem sótt er um slíkt leyfi fyr-
ir fullbúnum vindmyllulundi hér á
landi. Einar Mathiesen, fram-
kvæmdastjóri vinds og jarðvarma
hjá Landsvirkjun, upplýsir þetta í
aðsendri grein í blaðinu í dag.
Búrfellslundur var færður í nýt-
ingarflokk rammaáætlunar í júní
sl., þegar Alþingi samþykkti upp-
færða flokkun virkjunarkosta. Um-
fang Búrfellslundar hefur verið
minnkað úr 200 MW í 120 MW. Ein-
ar telur mögulegt að tengja Búr-
fellslund við raforkukerfið fyrir
árslok 2025. »43
Vilja virkjunarleyfi
fyrir Búrfellslund