Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Málþing um Gísla J. Johnsen (1881-
1965), athafnamann í Vestmanna-
eyjum og síðar í Reykjavík, verður
haldið í Ráðhúsinu í Vestmanna-
eyjum á laugardaginn kemur, 5.
nóvember, og hefst kl. 13. Að mál-
þinginu standa nokkrir áhugamenn
og er
Vestmanna-
eyingurinn Helgi
Bernódusson,
cand. mag. og
fyrrverandi skrif-
stofustjóri Al-
þingis, einn
þeirra.
Gísli J. John-
sen fæddist 10.
mars 1881 í
Frydendal (seinna Bjarma) í Vest-
mannaeyjum. Hann lést árið 1965 í
Reykjavík og var jarðsettur í Hóla-
vallakirkjugarði. Á leiði hans er út-
höggvin brjóstmynd, sú eina í
kirkjugarðinum. Gísli er tvímæla-
laust einn merkasti athafnamað-
urinn í sögu Vestmannaeyja.
Varð gjaldþrota í kreppunni
„Gísli missti föður sinn ungur en
hóf innan við tvítugt verslun, útgerð
og ýmiss konar viðskipti. Varð hann
á skömmum tíma langsamlega um-
svifamesti athafnamaður í Vest-
mannaeyjum, hvort sem var í versl-
un, útgerð báta eða fiskvinnslu, allt
þar til hann varð gjaldþrota 1930 í
heimskreppunni. Um það leyti flutt-
ist hann til Reykjavíkur og hóf
strax atvinnurekstur þar og varð á
skömmum tíma meðal stöndugustu
stórkaupmanna í höfuðborginni,“
segir í samantekt Helga.
Gísli seldi meðal annars bátavélar
í verslun sinni og átti því áfram
töluverð viðskipti við Vest-
mannaeyinga og kom oft til Eyja
þar sem tvö börn hans bjuggu.
Hann var stórbrotinn persónuleiki
og lét margt gott af sér leiða í sam-
félaginu. Gamla sjúkrahúsið, nú
Ráðhús Vestmannaeyja, er eitt
helsta dæmi þess. Guðjón Sam-
úelsson húsameistari ríkisins teikn-
aði húsið sem var byggt 1927 og
gegndi sínu hlutverki til 1973 að
nýtt sjúkrahús var tekið í notkun.
Gísli var frumkvöðull að byggingu
sjúkrahússins og lagði til meg-
inhluta kostnaðarins sem var 240
þúsund krónur á sínum tíma.
Sannkallaður frumkvöðull
„Gísli var sannkallaður frum-
kvöðull í sjávarútvegi og verður
fjallað sérstaklega um þann merka
þátt á málþinginu. Gísli var áhuga-
samur um ljósmyndir, myndaði
sjálfur og safnaði ljósmyndum. Eru
myndir hans varðveittar á safninu.
Þar er líka talsvert af munum Gísla
og skjölum sem afkomendur hans
afhentu fyrir nokkrum árum,“ segir
í samantekt Helga.
Gísli reisti tvö þekkt glæsihús í
Reykjavík, Túngötu 7 sem nú hýsir
indverska sendiráðið og Túngötu 18
sem er embættisbústaður sendi-
herra Þýskalands.
Einn merkasti athafna-
maður Vestmannaeyja
- Málþing um Gísla J. Johnsen - Umsvifamikill á sinni tíð
Ljósmynd/GJJ
Kötlugos 1918 Gísli J. Johnsen var áhugasamur ljósmyndari og átti stórt
safn eigin ljósmynda og annarra. Talið er að hann hafi tekið þessa mynd.
Gísli J. Johnsen
Gengið hefur verið frá samkomu-
lagi um kaup fjárfestingarfélagsins
Kaldbaks, dótturfélags Samherja, á
Landsbankahúsinu við Ráðhústorg
á Akureyri. Landsbankinn hf. selur
Kaldbaki bygginguna fyrir 685
milljónr króna, en félagið átti
hæsta tilboðið af sjö sem bárust
þegar húsið fór í sölu.
Landsbankahúsið er um 2.400
fermetrar að flatarmáli og svip-
sterkt kennileiti í miðbæ Akureyr-
ar. Nýir eigendur segjast í yfirlýs-
ingu vilja beita sér fyrir því að
lifandi starfsemi verði í húsinu, því
Akureyri sé í sókn sem helsta þétt-
býli landsins utan höfuðborgar-
svæðisins. Einnig séu þeir meðvit-
aðir um tillögur Guðjóns Samúels-
sonar sem sýna húsið bæði hærra
og stærra en raunin varð við bygg-
ingu þess fyrir um 70 árum.
Bankaafgreiðsla verður áfram
við Ráðhústorg, í húsnæði sem
Landsbankinn mun leigja en átti
áður. sbs@mbl.is
Kaldbakur keypti Landsbankahúsið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Bankahúsið fær nýja eigendur.
VIKUR
Á LISTA
3
9
2
3
2
1
7
4
1
3
DAUÐALEIT
Höfundur: Emil Hjörvar Petersen
Lesari: Hjörtur Jóhann Jónsson
GRUNUÐ
Höfundur: Laila Brenden
Lesari: Lára Sveinsdóttir
MYRKRIÐVEIT
Höfundur: Arnaldur Indriðason
Lesari: Þorsteinn Bachmann
BJÖRNINN SEFUR
Höfundur: Emelie Schepp
Lesari: Kristján Franklín Magnús
AFÆTUR
Höfundur: Jussi Adler-Olsen
Lesari: Davíð Guðbrandsson
TÁLSÝN
Höfundur: Rannveig Borg Sigurðardóttir
Lesari: Birna Pétursdóttir
UNDIRYFIRBORÐINU
Höfundur: Freida McFadden
Lesarar: Katla Njálsdóttir, Erna Hrönn
Ólafsdóttir
SYSTURNAR
Höfundur: Laila Brenden
Lesari: Lára Sveinsdóttir
GÁTAN
Höfundar: Camilla Läckberg,
Henrik Fexeus
Lesari: Þórunn Erna Clausen
DAGBÓKKIDDAKLAUFA:
FLÓTTINN Í SÓLINA
Höfundur: Jeff Kinney
Lesari: Oddur Júlíusson
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
›
›
›
›
›
›
-
-
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI
VIKA 43
www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200
Siesta
10% afsláttur til
6. nóvember.
Afhending fyrir jól.
Á málþinginu um Gísla J. John-
sen í Ráðhúsinu í Vestmanna-
eyjum 5. nóvember kl. 13 verður
m.a. fjallað um frumkvöðulinn
Gísli J. Johnsen. Sagt verður frá
gjaldþroti Gísla í Eyjum 1930 og
upprisu hans sem athafna-
manns í Reykjavík.
Einnig verður sagt frá því
sem tengist Gísla í Safnahúsi
Vestmannaeyja og fjallað um
ljósmyndarann Gísla J. Johnsen
og sýndar myndir úr safni hans.
Auk þess verður sagt frá hús-
um hans Gísla J. Johnsens í
Vestmannaeyjum og Reykjavík
og verður gengið að húsinu
Breiðabliki, sem var reist fyrir
Gísla árið 1908.
Rekstur, hús
og myndir
MÁLÞING Í EYJUM