Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Vegna skipulagsbreytinga
Stefni að því að selja öll veiðarfæri og fleira á sérstöku tilboðsverði.
Stangir og hjól frá Hardy og Greys. Vöðluskór með skiptanlegum sólum frá Hodgman.
Neoprenemittisvöðlur og skór fyrir strandveiðar, sjóveiðistangir frá Penn, sjóveiðisett frá ABU og sjóviði öngla.
Neoprene vöðlur til lax og silungsveiða í stærð no. 11(45), öndunarvöðlur og vöðluskór og Belly bátur frá Snowee.
Úrval spúna til lax, silungsveiða og strandveiða. Stangir til strandveiða og hjól.
Spúna og flugubox ásamt ýmsu veiðidóti til lax og silungsveiða.
Letingjar á mjög hagstæðu verði.
Opið verður frá 13:00 til 16:00
3. og 4. nóvember
neikvætt, hann stelur og lýgur og
erfitt er að hafa mikla samúð með
honum. Jafnvel þótt margir geti ef-
laust tengt við þá stöðu sem hann var
í sem ungur maður að fjármagna
húsbyggingu á erfiðum tíma með
fjölskyldu til að sjá fyrir. Er Konráð
að breytast í einhvern skíthæl hjá
þér?
„Ég lagði upp með að segja sögu af
lögreglumanni sem er enginn dýr-
lingur heldur breyskur maður en
samt þannig að þú færð ekki endi-
lega mikla andúð á honum. Hann
hlaut mjög erfitt uppeldi hjá ofbeld-
isfullum föður sem var glæpamaður
og ég býst við að Konráð sé alltaf að
glíma við þá djöfla sem fylgja honum
frá þeim tíma, hvort sem það er í
einkalífinu eða sem lögreglumaður.“
Glyshallir og risahótel í bænum
Í bókum þínum læðast oft með lýs-
ingar á staðháttum og skoðanir á
samfélaginu sem mann grunar að
séu komnar beint eða óbeint frá þeim
sem ritar. Í Kyrrþey kemur til að
mynda fram að Konráð leiðist orðið
að koma niður í miðbæ því „sá vina-
legi og handahófskenndi miðbær
sem hann þekkti og geymdi eitthvað
af sál Reykjavíkur var horfinn undir
glyshallir hinna efnameiri og risa-
hótel túrismans sem ekki stóðu í
neinum tengslum við sögu borg-
arinnar“. Skömmu síðar segir að
Grjótaþorpið sé „eins og vin í þeirri
túristaeyðimörk sem nýi miðbærinn
var orðinn“. Kannastu við þetta?
Þetta rímar alla vega eilítið við um-
mæli í viðtali við Morgunblaðið fyrir
nokkrum árum þegar þú sagðir að
nær ófært væri orðið um landið fyrir
fjölda ferðamanna.
„Já, og núna er það allt komið aft-
ur náttúrlega. Konráð er gamall
Reykvíkingur sem ólst upp í gamla
Skuggahverfinu og hefur allt annað
en jákvæðar skoðanir á því hvernig
það vinalega hverfi var eyðilagt með
ljótustu blokkum sem byggðar hafa
verið á versta stað sem hægt er að
hugsa sér. Þessi skipulagsáhugi hans
hefur svo víkkað og nær núna yfir
þróunina í nýja miðbænum sem hon-
um finnst ömurleg. Ég er aðeins að
búa til raunsæja persónu. Ég er ekki
frá því að margir á hans aldri hugsi
eitthvað svipað.“
Óvænt en ánægjulegt hóf
Það vakti athygli margra í vikunni
að blásið var til útgáfuboðs vegna
bókar Arnaldar. Í frétt um hófið var
honum lýst sem ófélagslyndum og
þótti tíðindum sæta að hann héldi
partí. Arnaldur segir að tilefnið hafi
verið ærið og því hafi hann slegið til.
„Ég á tuttugu og fimm ára rithöf-
undaramæli í ár. Það er langur tími
og það þótti upplagt að halda upp á
þann áfanga með útgáfuboði. Ég hef
annars aldrei gert neitt slíkt. Það var
feikigaman og mér fannst mikið var-
ið í að hitta allt það góða fólk sem
mætti,“ segir Arnaldur en hann fékk
25 ára gamalt viskí að gjöf við þetta
tækifæri og Salka Sól söng fyrir
gesti auk þess sem Jóhann Sigurðar-
son las upp úr Kyrrþey.
– Má búast við því að þú farir utan
til að kynna verk þín í kjölfarið? Ef
ég man rétt hættirðu því nær alfarið
því slíkar ferðir voru farnar að taka
tíma frá skrifunum sjálfum.
„Já, ég hef eiginlega lagt slík
ferðalög af. Bækurnar hafa nú selst í
18 milljón eintökum og það er varla á
það bætandi. Ég gerði mjög mikið af
því áður fyrr að þvælast um heiminn
að kynna íslenskar bókmenntir og
allt sem er íslenskt en núna vil ég
helst nota tímann í skriftir og spila
golf.“
Sáttur með Arsenal-liðið í ár
Og fyrst skáldið minnist á golf er
vert að beina sjónum að síðustu að
öðru áhugamáli Arnaldar sem er
enska knattspyrnan. Hann hefur
áður lýst því yfir að hafa verið stuðn-
ingsmaður Arsenal frá árinu 1970.
Þegar þetta er ritað ber svo við að
Arsenal situr á toppi ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu. Aðdá-
endur liðsins hafa ekki átt að venjast
þessari stöðu svo árum skiptir. Jafn-
vel ekki síðan Arsene Wenger var
nýr í brúnni þar á bæ og spennu-
sagnaunnendur voru rétt að byrja að
kynnast rannsóknarlögreglumann-
inum Erlendi.
– Hvernig líst þér á Arsenal-liðið í
dag? Heldurðu að liðið verði meistari
í ár? Hefurðu farið á völlinn nýlega
eða ertu með áform þar um?
„Síðast þegar ég sá Arsenal á Em-
irates töpuðu þeir fyrir Man. City og
Freddie Ljungberg var með liðið.
Þetta var í desember 2019. Í næsta
leik tók Arteta yfir og núna loksins
hefur maður vonir um að liðið nái
einhverjum árangri. Fáir sem spila
betri fótbolta í dag en Arsenal.“
Vil nota tímann í skriftir og golf
- Lögreglumaðurinn Konráð glímir við sína fornu djöfla í nýjustu glæpasögu Arnaldar Indriðasonar
- Bækur Arnaldar hafa selst í 18 milljónum eintaka á 25 árum - Glyshallir og risahótel í miðbænum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðistund Arnaldur Indriðason fagnaði útgáfu nýjustu skáldsögu sinnar og áritaði bækur í vikunni.
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Aðdáendur rithöfundarins Arnaldar
Indriðasonar hljóta að sleikja út um
fyrir jólin. Nýjasta bók hans, Kyrr-
þey, kom út í vikunni og henni er lýst
sem „meistarastykki“ í fimm stjörnu
dómi í Morgunblaðinu. Rýnir segir
að Arnaldur sé með „alla þræði í
hendi sér, nálgast viðfangsefnið að
hætti fræðimanns og semur trúverð-
uga sögu með stíl sem er svo fagur
og seiðandi að það er eins og maður
falli í trans við lesturinn“.
Þetta þarf kannski ekki að koma á
óvart. Kyrrþey er bók númer 26 í
röðinni hjá Arnaldi á jafnmörgum ár-
um svo það er óhætt að segja að
hann sé orðinn nokkuð sjóaður í
þessum fræðum. Arnaldur hefur
eignast aðdáendur um heim allan og
alls hafa nú um 18 milljónir eintaka
selst af bókum hans á miklum fjölda
tungumála sem þær hafa verið þýdd-
ar á. Sjálfur er hann manna róleg-
astur yfir þessu havaríi öllu og byrj-
ar í samtali við Morgunblaðið á að
rifja upp hvernig landslagið sé breytt
frá því fyrsta bókin kom út árið 1997.
– Síðustu ár hafa sífellt fleiri höf-
undar reynt sig við þetta form með
misjöfnum árangri en ekkert lát
virðist á vinsældunum. Nú er svo
komið að meira að segja forsætisráð-
herra landsins blandar sér í slaginn
fyrir jólin. Eru það ekki alltaf hættu-
merki þegar pólitíkusarnir fara að
skipta sér af? Eða hvernig líst þér á
innkomu Katrínar Jakobsdóttur á
þennan markað?
„Það er rétt, margt og mikið hefur
breyst á þessum aldarfjórðungi og
helst það að glæpasagan hefur hlotið
þá viðurkenningu sem hún á skilið.
Þetta er skemmtilegt útspil sem vek-
ur enn meiri áhuga á íslensku
spennusögunni og er merki um hvað
hún hefur náð langt,“ segir Arn-
aldur.
Myrkar hliðar koma í ljós
Kyrrþey er fimmta bókin sem
hverfist um lögreglumanninn Kon-
ráð sem er kominn á eftirlaun en
gruflar í ýmsum málum, einkum og
sér í lagi er snúa að æsku hans sjálfs.
Nú virðist heldur betur vera farið að
draga til tíðinda í sögu Konráðs og
lesendur komast nærri sannleik-
anum um hvernig lát föður hans bar
að. Arnaldur er spurður hvort hann
sé farinn að búa sig undir að kveðja
Konráð eða á hann nóg eftir?
„Konráð á eitthvað eftir. Eitt mál-
ið í Kyrrþey heldur áfram í næstu
bók og fær lúkningu þar og tengist
vini Konráðs í lögreglunni sem heitir
Leó og er ekki allur þar sem hann er
séður. Hann er eins konar lærifaðir
Konráðs en spilltur og Konráð lætur
glepjast ef svo má segja enda frekar
veikur á svellinu í þeim efnum.“
– Eftir því sem bókunum um Kon-
ráð fjölgar fær lesandinn betur og
betur að kynnast forsögu hans. Þú
hefur áður talað um að afstaða les-
andans til Konráðs kunni að breytast
á milli bóka. Í þessari virðist flest
sem rifjað er upp úr fortíð hans afar