Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 38

Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 38
38 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 3. nóvember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 144.06 Sterlingspund 166.52 Kanadadalur 106.39 Dönsk króna 19.251 Norsk króna 14.072 Sænsk króna 13.178 Svissn. franki 145.07 Japanskt jen 0.9792 SDR 185.5 Evra 143.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.9209 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bókunarvefurinn Airbnb tók á móti 47 þúsund bókunum í september sem er álíka fjöldi og í sama mánuði árið 2017. Fleiri bókanir voru gerðar í september 2018 og 2019 en svo varð eftirspurnarfall 2020 og 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta má lesa úr mælaborði ferða- þjónustunnar á vef Ferðamálastofu en tölur í gröfunum hér eru þaðan. Tölurnar fyrir þetta ár ná fram í september. Ef tímabilið frá janúar til september 2017 til 2022 er skoðað kemur í ljós að gerðar voru að með- altali 37, 45 og 42 þúsund bókanir á mánuði 2017, 2018 og 2019. Árin 2020, 2021 og 2022 voru svo gerðar 15, 19 og 36 þúsund bókanir að meðaltali á mánuði. Það sem af er ári hafa því að meðaltali verið gerðar fleiri bókanir á mánuði en samanlagt árin 2020 og 2021. Földi bókana helst í hendur við fjölda ferðamanna en árið 2018 var metár í því efni. Það sem af er þessu ári hafa flest- ar bókanir verið gerðar í ágúst, eða 65 þúsund alls, sem verður að óbreyttu stærsti mánuður ársins í útleigu Airbnb-íbúða. Meirihlutinn er úti á landi Þar af voru 17 þúsund bókanir á höfuðborgarsvæðinu, 17 þúsund bókanir á Suðurlandi, átta þúsund bókanir á Norðurlandi eystra, sex þúsund bókanir á Vesturlandi, fimm þúsund bókanir á Austurlandi, þrjú þúsund bókanir á Norðurlandi vestra, þrjú þúsund bókanir á Suður- nesjum og tvö þúsund bókanir á Vestfjörðum. Með öðrum orðum eru um 45 þúsund af þessum 62 þúsund bókunum utan höfuðborgarsvæðis- ins sem vekur at- hygli í ljósi þess að þar er mesta úrval íbúðarhús- næðis á landinu. Ný löggjöf um heimagistingu tók gildi í árs- byrjun 2017 en upp frá því var heimilt að leigja íbúðarhúsnæði í 90 daga á ári án þess að sækja um rekstrarleyfi og fyrir að hámarki tvær milljónir króna á ári. Tímabilið hér fyrir ofan er því samanburðarhæft hvað regluverkið varðar en ferðamönnum fjölgaði hratt á árunum 2012 til 2018 og myndaðist umframeftirspurn eftir gistirýmum víða um land. Jakob Rolfsson, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu, telur aðspurður ótímabært að spá því að toppnum sé náð í útleigu Airbnb-gistirýmis á Ís- landi. Nú viti fólk nákvæmlega að hverju það gangi, reglurnar séu skýrar og það veiti leigusölum ör- yggi. Þar með talið hvað varðar skattheimtu af leigunni. „Áður var þessum markaði líkt við villta vestrið. Ég held að það muni auka þessa skammtímagistingu, ef eitthvað er, að það séu komnar skýrar reglur,“ segir Jakob. Fleiri Bretar en spáð var Hann bendir jafnframt á að Bret- um hafi ekki fækkað mikið í október líkt og margir reiknuðu með, í kjöl- far niðursveiflu í bresku efnahagslífi. „Bretum hefur ekki fækkað en þeir voru 15% af öllum erlendum ferðamönnum í október sem er meira en margir reiknuðu með. Það þarf að aftur til ársins 2016 til að finna hærra hlutfall Breta í október en þeir voru þá 19,7% erlendra ferðamanna. Þeir voru um fjórðung- ur árin þar á undan en árið 2019 var hlutfall þeirra í október komið niður í 12,8%,“ segir Jakob en þessi niður- staða kann að skýrast að hluta af auknu flugframboði. Skilar heimilum meiri tekjum Á grafinu hægra megin hér fyrir ofan má sjá tekjur af útleigu Airbnb- gistirýma frá ársbyrjun 2015. Miðað er við tímabilið frá janúar til sept- ember hvert ár og er því samanburð- arhæft. Tekjurnar eru á verðlagi hvers árs en þær hafa að nafnvirði aldrei verið jafn háar og í ár eða um 11,8 milljarðar króna. Tekjurnar þetta tímabil 2019 voru hins vegar um 12 milljarðar á núvirði sé miðað við þróun verðlags frá desember 2019 til október 2022. Tekjur af Airbnb fara nærri metári - Fyrstu níu mánuði ársins skilaði útleiga Airbnb-íbúða 11,8 milljörðum - Á núvirði er 2019 enn metár Fjöldi bókana á gistingu í gegnum Airbnb á Íslandi Frá ársbyrjun 2017 til sept. 2022 Þúsundir bókana Heimild: Ferða- málastofa/Airdna 80 60 40 20 0 2017 2018 2019 2020 2021 2022 61 69 43 65 76 26 Tímabilið janúar til september 2015 til 2022 Milljarðar króna 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Útleiga Airbnb-gistirýma á Íslandi 1,1 4,5 9,0 8,5 10,4 2,4 5,1 11,8 Heimild: Ferðamálastofa Jakob Rolfsson Hagnaður Vogabakka nam í fyrra um 6,4 milljónum evra, eða um 920 milljónum króna á núverandi gengi, samanborið við tap upp á 2,2 millj- ónir evra árið áður. Tekjur félagsins námu um 6,7 milljónum evra en voru aðeins 25 þúsund evrur árið áður. Rekstrarkostnaður nam um 300 þús- und evrum. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár, en Voga- bakki er í eigu félaga sem aftur eru í eigu Árna Haukssonar og hjónanna Hallbjörns Karlssonar og Þorbjarg- ar Helgu Vigfúsdóttur. Vogabakki á meðal annars stóran hlut í fasteigna- félaginu Hásfelli, meirihluta í Múr- búðinni og í öðrum fasteignaverkefn- um auk hlutar í vefsíðunni Kjarnanum. Eigið fé félagsins var rúmar 27 milljónir evra í árslok, eða um 3,9 milljarðar króna á núverandi gengi. Félagið greiddi um 820 þúsund evr- ur í arð á síðasta ári. Morgunblaðið/Eggert Fjárfestar Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson. Högnuðust um tæpan milljarð - Vogabakki var með um 27 millj- ónir evra í árslok Þín útivist - þín ánægja Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is ASOLO Falcon herra Kr. 29.990.- HVÍTANE Merínó húfa Kr. 3.990.- FUNI unisex dúnúlpa Kr. 33.990.- REYKJAVÍK ullarúlpa Kr. 47.990.- BRIMNES meðalþykkir Kr. 2.150 HVÍTANES Merínó ullarpeysa Kr. 13.990.- GEYSIR ullarjakki Kr. 28.990.- HVÍTANES Merínó ullarbuxur Kr. 11.990.- GRÍMSEY hanska Kr. 2.990.- r sokkar .- VINDUR barna ullarúlpa Kr. 18.990.- S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.