Morgunblaðið - 03.11.2022, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.11.2022, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Dönsk stjórn- mál eru um margt notaleg, eins og dönsk tilvera kem- ur okkur harð- skeljunum hér norður frá stundum fyrir sjón- ir. Sveiflur í flokkakerfinu eru iðulega töluvert litríkar. Sá for- sætisráðherra sem þar hefur setið hvað lengst á síðari tím- um, Poul Schlüter, kom frá Íhaldsflokknum. Hann var for- sætisráðherra samfellt í 10 ár og 4 mánuði. Sveiflur í dönsk- um stjórnmálum eru miklar og margvíslegar og fékk Íhalds- flokkurinn illilega að kenna á því eftir brottför Schlüters úr stjórnmálum. Sá flokkur féll smám saman niður í fáeinar prósentur í fylgi. Mörgum útlendingum þótti dálítið skrítið að næstu þrír forsætisráðherrar Danmerkur skyldu allir heita Rasmussen. Poul Nyrup-, Anders Fogh- og Lars Løkke Rasmussen og sátu í ein 22 ár í embætti. Forsætis- ráðherratíðin hjá þeim síðasta, Lars Løkke, skiptist reyndar í tvö tímabil, fyrst 2 ár og svo aftur 4 ár en Helle Schmidt var forsætisráðherra í rúmlega 3 og hálft ár þar á milli, uns Rasmussen var mættur aftur. Eins fékk kímnigáfa Dana að njóta sín í heiti flokka, því að flokkurinn Venstre hefur lengi verið einn öflugasti hægri flokkurinn í landinu. Lars Løkke hafði verið forsætisráð- herra í þeim flokki, en hefur nú stofnað nýjan flokk eins og fyrrverandi flokkssystir hans, Inger Støjberg, hefur líka gert, eftir að hafa verið dregin fyrir Landsrétt, dæmd 2021 og setið inni í 6 mánuði, fyrir litlar sak- ir. Það var að minnsta kosti álit kjósenda, því hinn nýstofnaði flokkur komst inn með 14 þing- menn og var henni vel fagnað af þeim og stuðningsmönnum sín- um á kosningavöku flokksins. Løkke gerði aðeins betur og kom inn með 16 þingmenn. Hafði þetta allt auðvitað veruleg áhrif á gamla flokkinn þeirra, Venstre, og það afhroð sem hann varð fyrir. Hann mun hafa tapað 19 þingmönnum. Rasmussen sagði, þegar hann greiddi atkvæði sitt, að hann hefði engan hug á að verða forsætisráðherra aftur, en að hann vildi byggja brú milli flokkanna til hægri og vinstri og setja heilbrigðis- málin í forgang. Mette Frederiksen ýjaði að samstarfi með Moderaterne, hinum nýja flokki Rasmussens, um ríkisstjórn, sem hún myndi leiða og eins biðlaði Jakob Ell- emann Jensen í Venstre til Rasmussens, um samstarf við sína gömlu flokksfélaga, en svo virtist á kosninganótt sem sú glufa hefði lokast. Kosningabar- áttan snérist að miklu leyti um þrjá málaflokka: Lofts- lagsmál, verðbólgu og heilbrigðismál. Eins og fleiri hafa Danir áhyggjur af efnahagsmálum með stighækkandi verðbólgu og hækkandi vöruverði og 50 þúsund Danir fóru í kröfu- göngu í Kaupmannahöfn á sunnudaginn undir merkjum loftslagsmála. Það vantaði ekkert upp á spennuna í dönsku kosning- unum að þessu sinni, hún hélst bókstaflega til síðustu talna. Þegar eitt kjördæmi í Kaup- mannahöfn var ótalið en 99,8% atkvæða komin í hús vantaði rauðu blokk Mette Frederik- sen forsætisráðherra einn mann upp á að halda velli. Þeg- ar þau 0,2% sem upp á vantaði höfðu bæst við, skömmu fyrir miðnætti að íslenskum tíma, snerist taflið og rauða blokkin var komin í eins manns meiri- hluta. Með þessu missti Lars Løkke Rasmussen stöðu sína sem ótvíræður oddamaður á danska þinginu. Staða hans veiktist verulega og staða for- sætisráðherrans styrktist að sama skapi. Skyndilega voru henni allir vegir færir. Það breytir því þó ekki að hún skoðar nú stjórn á breiðari grunni og yfir miðjuna því að þrátt fyrir sigurinn er eins manns meirihluti ekki sérlega spennandi kostur. Athygli vekur að Rasmussen reyndi á kosninganótt að ræða við annan af þá væntanlegum fulltrúum Grænlands um að vinna með bláu blokkinni, þ.e. til hægri. Því var hafnað, sem skýrir svo ef til vill ummæli hans morguninn eftir í fjöl- miðlum. Hann sagði að það væru ekki dönsk atkvæði sem hefðu tryggt forsætisráð- herranum meirihlutann, það væru fulltrúar ríkjanna í Norð- ur-Atlantshafinu, Færeyja og Grænlands. Grænlensku full- trúarnir tveir eru ævinlega vinstra megin og því má segja að vinstri menn í Danmörku hefji leikinn á kjördag með tvo í forgjöf. „Ef þú horfir á Dan- mörku – ekki danska ríkið held- ur Danmörku – þá er ekki rauð- ur meirihluti,“ sagði Rasmussen. Berlingske Tidende segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem fulltrúarnir frá Norður- Atlantshafinu komi til umræðu í þessu sambandi og veltir því upp hversu lengi megi búa við að þeir ráði úrslitum um dönsku þingkosningarnar. Svarið er líklega að Danir muni búa við það á meðan þessir ná- grannar okkar eru hluti af danska ríkinu. Fróðlegt verður að sjá hvernig spilast úr í dönskum stjórnmálum núna} Litrík dönsk stjórnmál BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is N okkrar stofnanir ríkisins gera alvarlegar athuga- semdir við tillögur að strandsvæðaskipulagi fyrir Vestfirði og Austfirði. Telja að núverandi og ráðgerð atvinnustarf- semi, sérstaklega sjóeldi, þrengi að siglingaleiðum og ógni þar með ör- yggi sjófarenda. Unnið hefur verið að gerð strandsvæðaskipulags fyrir Vest- firði og Austfirði síðustu ár. Svæð- isráð auglýstu tillögur í upphafi sumars og barst fjöldi umsagna og athugasemda. Þannig bárust 124 at- hugasemdir við tillögu að strand- svæðaskipulagi á Vestfjörðum og 97 athugasemdir á Austfjörðum. Athugasemdirnar og umsagnirnar eru frá ýmsum stofnunum og sam- tökum sem og einstaklingum. Árekstur hagsmuna Samgöngustofa, Vegagerðin og Landhelgisgæsla Íslands gera sér- stakar athugasemdir við afmörkun siglingaleiða. Fram kemur hjá Landhelgisgæslunni að siglinga- leiðir hafi til þessa ekki verið skil- greindar sérstaklega í skipulagi. Meginreglan hafi verið sú að sjófar- endur hafi mátt telja allt hafið til siglingasvæðis. Telur Landhelgis- gæslan að öryggi siglinga sé ekki nægilega vel tryggt með þeim til- lögum sem fram koma í svæðaskipu- laginu. Samgöngustofa skrifar í um- sögn að ásókn í notkun strandsvæða fari vaxandi og um leið umferð stórra skipa til hafna landsins. Óhjá- kvæmilegt sé að hagsmunir rekist á, jafnvel svo að siglingaöryggi sé ógn- að. Segir Samgöngustofa að á ýms- um stöðum í drögum að strand- svæðaskipulagi rekist siglinga- öryggi og skipulögð eldisstarfsemi á. Seyðisfjörður og Reyðarfjörður eru nefnd sem dæmi fyrir austan og Ísa- fjarðardjúp fyrir vestan. Eldisstarf- semin sé hindrun fyrir siglingar eftir hefðbundnum leiðum. Eldi í hvítum ljósgeira Samgöngustofa segir að unnið sé að undirbúningi ákvörðunar sigl- ingaleiða þar sem þess er þörf. Hef- ur stofnunin fengið til liðs við sig sérfræðinga úr ýmsum áttum til að vinna að verkefninu. Í annarri umsögn sem Sam- göngustofa sendi inn síðar, eftir samráð við Vegagerðina sem fer með vitamál, er farið nánar yfir sigl- ingamálin. Þar er vakin athygli á því að sigling í hvítum ljósgeirum vita eigi að vera hindrunarlaus og örugg. Í tillögum að strandsvæðaskipulagi hafi sum eldissvæðin verið merkt í slíkum ljósgeirum, sömuleiðis hafi nokkur eldissvæði verið merkt ofan í hefðbundnar almennar siglinga- leiðir. Gerð er athugasemd við nokkur kvíaból í Ísafjarðardjúpi þar sem kvíar eru í hvítum ljósgeira frá vit- um auk þess sem eitt svæðið er sagt á hefðbundinni siglingaleið sem þá hafi verið skipulögð fjær landi. Skipulagt svæði í Álftafirði þrengi verulega að siglingaleið og þröngvi skipum upp á grynningar. Svipaðar athugasemdir eru gerðar í Önundar- firði, Dýrafirði, Arnarfirði, Tálkna- firði og Patreksfirði en þó aðallega vegna staðsetningar í ljósgeira vita. Á Austfjörðum eru mestu athugasemdirnar gerðar við stað- setningu eldiskvía og tilfærslu sigl- ingaleiða í Seyðisfirði og Reyðarfirði en einnig Mjóafirði, Fáskrúðsfirði og Berufirði. Telja að sjóeldi ógni öryggi sjófarenda Morgunblaðið/Eggert Berufjörður Þótt sjókvíar séu almennt við strendur fjarða þarf stundum að breyta siglingaleið. Stundum eru þær einnig í hvítum ljósgeira vita. Sjóeldisfyrirtækin og samtök þeirra telja mörg að tillögur að strandsvæðaskipulagi séu um of íþyngjandi fyrir starfsemi þeirra. Þau þurfi að hafa svig- rúm til að færa til kvíar og fjölga svæðum. Þannig segir í umsögn Arnarlax að langt sé gengið í friðun og mun lengra en vísindaleg rök eru fyrir. Arn- arlax og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja nauðsynlegt að breyta tillögunum og aug- lýsa að nýju. Skiptar skoðanir koma fram um hvort friða eigi Jökulfirði fyrir sjókvíaeldi en strandlengj- an er friðuð, eins og kunnugt er. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar styður friðun en Bæjarráð Bol- ungarvíkur telur mikilvægt að útiloka ekki fiskeldi í Jökul- fjörðum án ítarlegri rannsókna á áhrifum og telur rétt að vinna burðarþols- og áhættumat fyrir svæðið. Þrengt að sjókvíaeldi ÖNNUR SJÓNARMIÐ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ U m liðna helgi fór fram málþingið Samvinna í nútíð og framtíð á Bifröst í Borgarfirði sem haldið var í minningu Jóns Sigurðs- sonar, fyrrverandi ráðherra og formanns Framsóknarflokksins. Góðmennið, hugljúfinn, málamiðlarinn, skynsemismað- urinn; hinn ósvikni samvinnumaður. Ritstjór- inn, kennarinn, doktorinn, rektorinn og seðla- bankastjórinn eru allt orð sem hægt er að hengja á Jón. Þessi mikli hugsjónamaður var einnig íslenskufræðingur og var með meistara- gráðu í kennarafræðum, málefni sem hann lét sig sérstaklega mikið varða. Jón veitti mér innblástur í starfi mínu sem mennta- og menningarmálaráðherra og gerir enn. Mér er enn í fersku minni þegar ég las grein hans „Íslenska eða Ís-enska“ í fyrsta skipti – en hún birtist í Skírni árið 2017. Í greininni rekur hann þær áskoranir sem tungumálið okkar, íslenskan, stendur frammi fyrir. Inngangsorð Jóns í greininni kjarna stað- reynd málsins, en þau hljóma svo: „Móðurmálið, þjóðtung- an íslenska, lifir og dafnar, breytist og þroskast áfram ef al- menningur í landinu vill, svo lengi sem sú afstaða er almenn og því aðeins að svo sé. Framtíð þjóðtungunnar er undir þessu komin. Vilji almennings um þetta mótast ekki síst af fordæmi og fyrirmyndum svokallaðra málstétta. Þær eru sjónvarps- og útvarpsfólk, blaðamenn, sönglistafólk, kenn- arar, rithöfundar og skáld, kennimenn, sviðlistamenn og margir sem gegna forystu á opinberum vettvangi.“ Þetta eru orð að sönnu og hugvekja sem hefur hvatt mig áfram í störfum mínum – þar sem ég hef lagt áherslu á að taka málefni íslenskunnar föstum tökum og hefur margt áunnist. Árið 2019 samþykkti Alþingi þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál á Ís- landi og aðgerðaáætlun sem henni fylgdi. Meginmarkmið hennar var að íslenska væri notuð á öllum sviðum samfélagsins, íslensku- kennsla og menntun yrði efld á öllum skóla- stigum og að framtíð íslenskrar tungu í staf- rænum heimi yrði tryggð. Fjármunum var einnig forgangsraðað í að styðja við menn- ingu og skapandi greinar þar sem íslenska er aðalverkfærið, hvort sem um er að ræða bókaútgáfu, fjölmiðla eða annað. Til þess að setja umfang þeirra aðgerða sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili í samhengi, þá voru um 10 milljarðar króna settir í málefni íslensk- unnar. Okkur er alvara með því að snúa vörn í sókn fyrir móðurmálið okkar og það hefur svo sannarlega mikið vatn runnið til sjávar á aðeins fimm ár- um í þeim efnum. Það er margt sem kallast á við skrif og sýn Jóns við það sem stjórnvöld hafa hrint í framkvæmd. En betur má ef duga skal enda verkefnið stórt sem kallar á samvinnu okkar allra. Í ráðuneyti mínu er nú unnið að uppfærðri aðgerðaáætlun fyrir íslenskuna, þar sem meðal annars verður lögð áhersla á aukið aðgengi að íslensku í atvinnulífinu með stórauknu framboði á íslenskukennslu fyrir útlendinga og að íslenskan verði í fyrsta sæti í al- mannarými svo eitthvað sé nefnt. Framlag og vitund- arvakning öndvegismanns íslenskunnar, Jóns Sigurðs- sonar, mun hvetja okkur áfram í þeirri vinnu og koma tungumálinu okkar til góða um ókomna tíð. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Öndvegismaður íslenskunnar Höfundur er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.