Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 57

Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 57
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Hinrik Norðfjörð Útfararþjónusta Helena Björk Magnúsdóttir Útfararþjónusta MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 ✝ Þór Þorbergs- son fæddist 1. desember 1936. Hann lést 22. október 2022. Foreldrar hans voru Þorbergur Friðriksson (1899- 1941) stýrimaður og Guðrún Sím- onardóttir Bech (1904-1991) hús- freyja. Þau áttu heima í Reykjavík. Þór var þriðja barn, eldri voru Auður (1933-) héraðsdómari og Guð- rún Katrín (1934-1998) for- setafrú og húsfreyja á Bessa- stöðum, en yngri Þorbergur (1939-2014) verkfræðingur. Þór fór í Bændaskólann á Hvanneyri og lauk búfræði- prófi 1955 og framhaldsprófi 1960. Þór kvæntist Arnfríði Mar- gréti Hallvarðsdóttur, f. 1942. Foreldrar hennar voru þau Hallvarður Einar Árnason (1895-1969) stýrimaður og Guðrún Kristjánsdóttir (1903- 1986) húsfreyja. Arnfríður lif- ir mann sinn. Þór og Arn- fríður eignuðust sex börn: Þorberg, f. 1961, hagfræð- ing og þýðanda. Hann á tvö börn með Nönnu Þórarins- dóttur, f. 1958, þau Þór, f. sínum Heimi Garðarssyni, f. 1964, Högna Huldar, f. 2012. Guðrúnu, f. 29. mars 1972, menningarstjóra. Hún á tvö börn með Jóhanni Ásmunds- syni, f. 1968, Arnfríði Kríu, f. 2005, og Margréti Vörðu, f. 2013. Þóru Kristínu, f. 1980, að- ferðafræðing. Hún á tvö börn með sambýlismanni sínum Kolbeini Hólmari Stefánssyni, f. 1975, Auði Freyju, f. 2011, og Urði Magneu, f. 2015. Eftir að Þór lauk námi á Hvanneyri varð hann ráðs- maður við graskögglaverk- smiðju á Stórólfshvoli. Seinna fluttu Þór og Arnfríður til Selfoss og stofnuðu versl- unina Þórsbúð. Síðar vann Þór hjá ÍSAL. Í ársbyrjun 1972 fluttu þau hjón austur á Skriðuklaustur í Fljótsdal en Þór tók þar við bústjórn. Þór vann þar í ríflega áratug. Upp úr 1980 varð hann land- búnaðarráðgjafi á Grænlandi og sinnti báðum störfum um skeið. Um 1984 sagði Þór starfi sínu á Skriðuklaustri lausu. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur en Þór vann áfram á Grænlandi fram til 1990. Árið 1990 hóf Þór störf hjá Landsvirkjun og hafði umsjón með uppgræðslu og ræktun á virkjunarsvæðum og sinnti einnig rannsóknum. Þór vann þar uns hann fór á eftirlaun í árslok 2006. Þór verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, 3. nóv- ember 2022, klukkan 13. 1990, forritara og Sigríði Margréti, f. 1994, lækna- nema. Þór á eina stúlku sem fæddist 9. ágúst 2022 með sambýliskonu sinni Þórunni Lilju Arnórsdóttur. Hallvarð, f. 1962, d. 2009, sölumann og tón- leikahaldara. Hann eignaðist tvö börn. Með Telmu Lucindu Tómasson, f. 1962, eignaðist hann Tönju Berglindi, f. 1985, framleið- anda. Með Sigríði Hjaltdal Pálsdóttur, f. 1969, eignaðist hann Hauk Pál, f. 1992, forrit- ara. Tanja Berglind er gift Ólafi Pálssyni, f. 1981, og eiga þau Hrafnhildi Míu, f. 2013, Helenu, f. 2014, og Önnu Mar- en, f. 2021. Haukur Páll er kvæntur Luízu Pereira Cal- umby, f. 1992. Hallvarður kvæntist Hope Elísabetu Milli- ngton, f. 1957, sem lifði mann sinn. Ingibjörgu Svölu, f. 1966, myndlistarkonu. Eiginmaður hennar er Wu Shanzhuan, f. 1960. Valgerði, f. 1968, leikkonu, leikskáld og rithöfund. Hún á eitt barn með sambýlismanni Fyrir hálfri öld héldum við Guðrún Katrín í leiðangur um Austurland. Í húfi var heill jafnaðarmanna og samvinnu- fólks. Þingkosningar innan tíð- ar. Á brattann að sækja. Þungbúin ský. En á Skriðu- klaustri var sól í heiði. Þór á hlaðinu. Tilraunastjórinn. Bændavinur í þjónustu vísinda. Höfðingi á setrinu sem Gunnar skáld gaf þjóðinni. Bróðir Búbbu. Bjartur yfir- litum. Karlmannlegur. Kankvís. Með glampa í augum. Systkinin göntuðust að gömlum sið. Kær- leikurinn greinilega djúpstæð- ur. Á þeim fagnaðarfundi var frambjóðandanum nánast ofaukið. Við Þór urðum fljótt góðir vinir og félagar á vettvangi hugsjóna. Í sérhverjum kosn- ingum. Þó fyrst og fremst bróð- ir Búbbu. Ætíð hrókur fagn- aðar þegar fjölskyldan kom saman. Bændurnir á Héraði kunnu vel að meta kosti Þórs; fylgdu að mestu ráðunum sem fræðin buðu. Á skömmum tíma varð hann foringi í sveitum sem allt frá fyrri öld höfðu valið leið- toga af kostgæfni. Síðan hélt Þór til Grænlands. Löngu áður en hið stórbrotna land komst í tísku. Verkefnið að kenna innfæddum landbún- að, slá tún á sumrin og hirða um fé á dimmum vetrum. Verk- efnið erfitt. Strjálbýli og engir vegir. Fór á bátum til næstu byggða. Varð oft að bíða vikum saman eftir að veður leyfðu siglingu til baka. Grænlendingar voru í fyrstu tortryggnir. Höfðu um aldir skotið sel og róið á kajak. Lítt gefnir fyrir breytingar. Sáu þó fljótt kosti Þórs og gerðu hann að eðalvini. Foringjarnir héldu áfram að sækja hann heim í Reykjavík þegar sjálfstæðis- baráttan var komin á dagskrá. Að loknum frægðartíma á ströndum ísbreiðunnar kaus Landsvirkjun að nýta hæfni Þórs. Réð hann til að ræða við bændur um afréttir og land- kosti. Stjórnendurnir á efstu hæð önduðu nú léttara. Sáu hve listilega hann náði samningum í öllum sveitum. Þegar við Búbba fórum til Bessastaða lá beint við að Þór annaðist æðarvarpið. Var í ess- inu sínu á sérhverju vori. Koll- urnar tóku honum fagnandi. Kunnu að meta Þór – eins og allir. Hann var burðarstoð í fjöl- skyldunni. Vinurinn sem næsta kynslóð eignaðist, dætur okkar Búbbu og aðrir afkomendur Guðrúnar Bech, sjómannsekkju sem kom börnum sínum til manns og mennta. Nú eru þau öll dáin nema Auður. Við syrgjum Þór en varð- veitum í minningunni glaða daga. Vottum Fríðu og fjöl- skyldunni einlæga samúð. Þeirra missir er mestur. Ólafur Ragnar Grímsson. Hann hallaði höfðinu, hélt um pípuna, munnstykkið skorð- að milli tannanna, kímdi létt, horfði djúpt í augun og spurði: „Hvernig hefur þú það frænka?“ Þessi augu, sem sáu flest og vissu svo margt. Það var gott að tala við hann. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vinna á tilraunabúinu á Skriðuklaustri þrjú sumur og hálfan vetur. Það var mikið happ. Þór var bústjóri og Fríða ráðskona. Saman ráku þau fjöl- mennt myndarbú. Þór raðaði á útiverkin, sagði til og fylgdist með framvindu. Hann var góð- ur verkstjóri, tók sjálfur til hendinni, leiðbeindi, var hvetj- andi, drífandi og oft stríðinn. Honum fannst gaman að við værum bæði freknótt með gul- rótarhár. Það var oft glatt á hjalla, mikið spjallað og hlegið, en þegar veðurfréttir voru lesnar varð að vera alger þögn. Hjá þeim hjónum lærði ég til verka og lærði að vinna. Fyrir það er ég eilíflega þakklát. Við Oddur kveðjum frænda minn með djúpri virðingu. Ást- vinir allir eiga okkar samúð. Þóra „Búbbudóttir“ Þóra Þórarinsdóttir. Æskufélagi minn hann Dussi er farinn. Við vorum leikfélagar frá því ég man eftir. Við ólumst upp hlið við hlið frá barnsaldri. Systkinin á Bræðraborgarstíg 52 og Ásvallagötu 67 voru ákaf- lega samrýnd enda á svipuðum aldri. Dussi, eins og hann var alltaf kallaður, var mitt hlið- arsjálf allar götur þar til leiðir skildi vegna mismunandi skóla- göngu. Eftir það voru minni samskipti. Það var líf og fjör í þessum hluta Vesturbæjarins á þeim tímum. Margt brölluðum við Dussi sem ég læt ósagt svo barna- börnin og barnabarnabörnin taki ekki upp þá siði. Eitt vor- um við Dussi þó frægir fyrir og það var flökkueðlið. Ekki man ég hver stjórnaði þeim leið- öngrum en nokkrum sinnum var leitað til lögreglu til að hafa uppi á okkur. Eitt sinn fund- umst við meira að segja út við Ægisíðu og einu sinni á Frí- kirkjutröppunum, en það hafa verið löng spor fyrir litla fætur. Selsvörin var okkar griða- staður og bryggjurnar hjá Slippnum en hvort tveggja bannsvæði. Við Magga sendum öllum að- standendum Dussa okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Jón Eysteinsson. Þór Þorbergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.