Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 58
58 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
✝
Sigurborg var
fædd á Ísafirði
22. janúar 1932.
Hún lést á Land-
spítalanum Foss-
vogi 22. október
2022.
Sigurborg var
dóttir hjónanna
Helga Finnboga-
sonar sjómanns og
verkamanns á Ísa-
firði, f. 9. júní 1885,
d. 21. mars 1969, og Sigurrósar
Finnbogadóttur húsmóður, f.
19. ágúst 1888, d. 24. júlí 1967.
Sigurborg var næstyngst 11
systkina. Nöfn þeirra eru: Guð-
mundína Jóhanna, f. 12.1. 1911,
d. 2.7. 1964, Jón Elías, f. 15.7.
1912, d. 2.2. 1998, Sigurbjörn
Gestur, f. 19.10. 1915, d. 10.6.
1916, Sigríður Friðgerður, f.
10.12. 1918, d. 8.11. 2016, Finn-
björg Ásta, f. 27.6. 1921, d. 10.7.
2005, Þorsteinn Helgi, f. 14.7.
1925, d. 19.5. 2011, Samúel, f.
7.3. 1927, d. 27.7. 1997, Svein-
björg Elísabet, f. 19.1. 1929, d.
2.8. 2016, Soffía Sigurlína, f.
25.1. 1930, Elías Gunnar, f. 29.5.
1935, d. 14.8. 1992. Soffía er ein
hennar er Víglundur Helgason,
f. 1973. Dætur Kristínar eru
Ágústa Borg, f. 2001, Una Borg,
f. 2006, og Freydís Borg, f.
2013. Börn Víglundar eru Vera,
f. 2004, og Krummi, f. 2009.
Elmar Helgi, f. 29.12. 1993,
sambýliskona hans er Svava
Hildur Bjarnadóttir, f. 1993.
Snæbjörn Börkur, f. 10.2. 1962.
Linda Björk, f. 21.7. 1968, unn-
usti hennar er Sverrir Árnason,
f. 1.12. 1958. Sonur Lindu er
Hugi, f. 17.11. 1995.
Sigurborg ólst upp á Ísafirði
og lauk gagnfræðaprófi þaðan.
Þar vann hún á elliheimili þar
til hún fór norður í Eyjafjörð
1954 og gerðist kaupakona á
Þormóðsstöðum í Sölvadal. Þar
kynnist hún manni sínum Þor-
móði. Þau bjuggu á Þormóðs-
stöðum og Akureyri til ársins
1965 þegar þau flytjast til
Reykjavíkur. Hún var heima-
vinnandi framan af búskap
þeirra, vann sumarstörf, þar á
meðal hjá Þvottahúsinu Grýtu
og Sælgætisgerðinni Amor. Ár-
ið 1980 hóf hún störf hjá prjóna-
stofunni Hildu hf. og jafnframt
því prjónaði hún lopapeysur og
seldi. Síðar starfaði hún hjá
Hagkaupum, bæði á grænmet-
istorgi og bakaríi. Þar vann hún
þar til hún fór á eftirlaun.
Útför Sigurborgar fer fram
frá Bústaðakirkju í dag, 3. nóv-
ember 2022, klukkan 13.
systkinanna á lífi.
Eiginmaður Sig-
urborgar var Þor-
móður Snæbjörns-
son, f. 5.7. 1927, d.
10.6. 2006, þau gift-
ust þann 27.1. 1968.
Foreldrar hans
voru Snæbjörn
Hjálmarsson, f. 8.1.
1899, d. 13.6. 1987,
og Laufey Guð-
mundsdóttir, f. 1.5.
1895, d. 2.2. 1982.
Börn Sigurborgar og Þor-
móðs eru Laufey Sigurrós, f.
22.11. 1956, eiginmaður hennar
er Hafsteinn Þ. Júlíusson, f.
14.2. 1946. Börn þeirra eru Þór-
unn Gyða, f. 26.6. 1978, og Haf-
þór Finnur, f. 3.9. 1984, dóttir
Þórunnar er Tanja Lind, f.
2011.
Helga, f. 17.6. 1959, sambýlis-
maður hennar er Ólafur Helgi
Hreinsson, f. 2.11. 1963. Börn
þeirra eru Bjarki Þór, f. 15.4.
1976, eiginkona hans er Inga
Rut Jónasdóttir, f. 1978. Börn
þeirra eru Hermann Óli, f. 2001,
og Hulda Líf, f. 2006. Kristín
Ýr, f. 2.6. 1983, eiginmaður
Þegar við systkinin settumst
niður og ræddum um ömmu okk-
ar komu margar hlýjar minning-
ar upp. Ætli það sé ekki þannig í
flestra augum að amma sé ein
mikilvægasta manneskja hvers-
dagsins. Allavega var amma okk-
ar það.
Í samtali okkar kom upp að öll
sáum við ömmu sem öryggið okk-
ar á einhverjum tímapunkti í líf-
inu. Hún var sú sem við fórum til
eftir skóla, sem tók upp lestrar-
bækurnar með okkur og kenndi
okkur að lesa og passaði alltaf að
við ættum nóg af ullarsokkum og
vettlingum – því engum mátti
verða kalt. Enda prjónaði hún af
einstakri snilld, allt til lokadags.
Amma var alltaf með faðminn
opinn. Hún var ekki kona margra
orða og líklega gerði hún sér aldr-
ei grein fyrir hvað hún var sterk í
þögninni sinni. En við systkinin
leituðum alltaf til hennar þegar
okkur vantaði ró. Eitt spælt egg
að hætti ömmu, smá graslaukur
yfir og spjall um allt og ekkert
voru ómetanlegar stundir. Oft
vissi hún að eitthvað gekk á lífi
okkar – en hún spurði aldrei. Hún
bara leyfði okkur að vera, vera
við og fela okkur fyrir umheim-
inum heima hjá sér.
Minningarnar um ömmu eru
svo ótal margar. Ekkert barna-
afmæli var haldið án draumtert-
unnar hennar og fjallsins af
pönnukökum sem hún varði heil-
um degi í að baka. Engin jól voru
án heita súkkulaðisins hennar –
og ef við kölluðum það kakó feng-
um við skammir fyrir. Amma óx
aldrei upp úr því að vera grallari
og hafði mikinn húmor. Ein jólin
var hún til dæmis beðin að skutla
kartöflunum yfir borðið og hún að
sjálfsögðu skutlaði þeim. Henti
einni af alkunnri snilld yfir borðið
og hló svo manna hæst á eftir.
Öll sem okkur systkinin
þekkja vita hvað amma var okkur
kær. Hún var fasti punkturinn í
tilveru okkar. Fasti punkturinn í
tilveru svo margra. Hún ól ekki
bara upp börnin sín fjögur, hún
nefnilega ól okkur barnabörnin
og barnabarnabörnin upp líka.
Hún passaði líka upp á heilt
hverfi, enda ótal margir sem
lögðu leið sína til ömmu í Borgó -
hvort sem það var til að fá eitt kex
og mjólkurglas eftir skóla eða
næla sér í nýprjónaða vettlinga.
Það er skrítið að syrgja ömmu
sína. Ömmu sem fékk tækifæri til
að lifa í 90 ár og góðu lífi megnið
af þeim tíma. Hún fékk að eldast
og búa heima hjá sér þar til
nokkrum vikum fyrir andlát. Hún
fékk það hlutskipti að eiga heim-
ilið sem var samastaður okkar
allra, fyrst í Borgargerðinu með
afa og svo núna síðast í Hæðar-
garðinum. Ef það átti að hitta ein-
hvern úr fjölskyldunni þá var
svarið alltaf „hittumst bara
heima hjá ömmu“ og þegar þang-
að var komið var oftast fullt hús.
Alltaf einhver að koma bara rétt
við á leið heim úr vinnunni. Það er
skrítið að eiga ekki þann sama-
stað lengur.
Amma var orðin gömul kona
og hringrás lífsins segir okkur að
á þessum aldri falli fólk frá. Sorg-
inni fylgja því góðar minningar
og þakklæti yfir því að hún fékk
að lifa á þennan hátt. En sorginni
fylgir líka ómældur söknuður, því
ekkert okkar þekkir lífið án
ömmu í Borgó.
Allt okkar líf hefur hún verið
öryggið okkar og akkeri.
Tilveran á eftir að vera skrítin
án hennar.
Bjarki Þór, Kristín Ýr og
Elmar Helgi.
Í dag kveð ég konu sem var
mér kær.
Ég var á barnsaldri þegar ég
kynntist Boggu. Hún var mamma
bestu vinkonu minnar. Ég var
uppburðalítill krakki og ekkert
sérstaklega fær í að fóta mig í til-
verunni. Feimin og vandræðaleg
við flest fólk og sérstaklega á
ókunnum heimilum.
En á heimili vinkonu minnar
leið mér strax vel og fannst ég
örugg. Reyndar leið mér svo vel
að ég nánast flutti inn um tíma.
Þannig andrúmsloft bjó Bogga
til. Með sinni afslöppuðu hlýju,
milda fasi, umburðarlyndi, húm-
or og glettni. Þar var alltaf auð-
velt að vera.
Enda sóttu fleiri þangað. Eld-
húsið hennar Boggu var alltaf
fullt af fólki. Mér er til efs að hún
hafi eldað margar máltíðir án
þess að fólk með heimilisfesti
annars staðar settist að snæðingi.
Fjölskylda, vinir, nágrannar og
ekki síst vinir barnanna og
barnabarnanna. Og þegar fréttist
af að von væri á hennar frægu
fiskibollum, þá margfaldaðist
gestafjöldinn.
Bogga var einstök hannyrða-
kona, eftir hana liggja mörg lista-
verkin. Og hún var örlát á þau.
Öll börn sem hún frétti að væru
væntanleg fengu einhverja dá-
semdina frá henni. Ég dáðist allt-
af að því hvernig henni tókst að
lesa sig í gegnum uppskriftir á
öllum mögulegum tungumálum
þótt hún talaði ekkert þeirra. Þar
kom þrautseigjan til og glögg-
skyggnin. Áhugi hennar á hann-
yrðum var svo smitandi að á ung-
lingsárum okkar sátum við flest
kvöld í stofunni hjá Boggu og
lærðum að prjóna, hekla og
sauma út. Í stað þess að vera úti
að dandalast eða einar uppi í her-
bergi. Við vorum bara ekki meira
töff en það og völdum frekar að
eyða kvöldunum með henni.
Þannig nærveru hafði Bogga.
Konur sem byggja upp fjöl-
skyldur og fólk njóta ekki alltaf
sannmælis eða mestu virðingar-
innar. Við eigum þeim samt allt
að þakka. Bogga var einmitt ein
slík. Það fór ekki mest fyrir
henni, en stuðningurinn, hlýjan,
mildin og kærleikurinn skipti öllu
fyrir fólkið í kringum hana.
Bogga var með sínum í liði. Ef þú
varst undir vængnum hjá henni,
þá áttirðu vísan stuðning. Og
vængurinn rúmaði marga.
Ég verð alltaf óendanlega
þakklát fyrir að fá að vera heim-
alningur hjá Boggu á mínum við-
kvæmustu árum. Þvílík gæfa í líf-
inu.
Góða ferð í sumarlandið mín
kæra, ég veit þú ferð strax að búa
í haginn fyrir þá sem á eftir
fylgja.
Elfa.
Sigurborg
HelgadóttirElskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og systir,
SIGRÍÐUR FINNBJÖRNSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
lést síðastliðinn sunnudag
á Landspítalanum.
Útför fer fram föstudaginn 4. nóvember
klukkan 15:00 frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
Halldór G. Hilmarsson
Björn Másson Sandra Liliana Magnúsdóttir
Kristján Másson Ásbjörg Ólöf Sigurðardóttir
Theodór Halldórsson Erna Leifsdóttir
systkini og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
VILHELMÍNU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Sogavegi 77.
Auðun Ólafsson Róbert Ólafur Jónsson
Sæmundur Ólafsson
Oddrún Ólafsdóttir Jón Páll Fortune
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
PÉTURS STEFÁNSSONAR
skipstjóra.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
krabbameinsdeildar Landspítalans
fyrir góða umönnun.
Þórunn Halla Guðmundsd.
Sigurveig Víðisdóttir Jóhann Jónsson
Sigríður Rósa Víðisdóttir Gunnar S. Olsen
Anna Aldís Víðisdóttir Ívar Sigurgíslason
Ósk Víðisdóttir
og fjölskyldur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
UNNAR SVANDÍSAR MAGNÚSDÓTTUR.
Magnús G. Benediktsson Birgitta Thorsteinson
Hólmfríður Benediktsdóttir Þorgils Ingvarsson
ömmu- og langömmubörn
Okkar uppáhalds,
BIRGIR INGIMARSSON
frá Siglufirði,
lést föstudaginn 21. október á
krabbameinsdeild Landspítalans.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
á morgun, föstudaginn 4. nóvember, klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvini Grensáss.
Birna Dís Benediktsdóttir
Vilborg Jónsdóttir
Helga Rún Viktorsdóttir
Brynjar Ýmir Birgisson Björg Þórsdóttir
Arnar, Birna Rún, Freyja Björk, Dúa, Lóa og Ása
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
ARNBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR,
ÖDDU,
Suðurgötu 96, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11E LSH og HERU fyrir yndislega
umönnun og ljúft viðmót.
Ástgeir Þorsteinsson
Sigurveig Ástgeirsdóttir Erlingur Örn Bartels Jónsson
Lína Dögg Ástgeirsdóttir Barry Lennon
Sigurður Ástgeirsson Harpa Kristín Hlöðversdóttir
barnabörn
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
stjúpi, tengdafaðir og afi,
KARL HARRY SIGURÐSSON,
lést föstudaginn 28. október.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10. nóvember klukkan 13.
Hrönn Helgadóttir
Helena Þuríður Karlsdóttir Guðjón Jóel Björnsson
Hanna Lillý Karlsdóttir Oddur Björn Tryggvason
Helgi Hermannsson
Heimir Hermannsson Hrafnhildur Ósk Sigurðardóttir
Björn Harry, Helena K.G., Þóranna Bjartey og Emma Hrönn
Elskulegur faðir minn, sonur, bróðir, mágur,
vinur og fósturfaðir,
HJÁLMTÝR SÆMUNDUR
HALLDÓRSSON
plötu- og ketilsmiður,
lést á heimili sínu laugardaginn 29. október.
Kári Sæmundsson
Guðný Hjartardóttir
Kristín Halldórsdóttir Haukur Sigurðsson
Guðni Halldórsson Hildur Mikaelsdóttir
Pétur Haraldsson
Henný Gestsdóttir
Jóhann Sigurðarson
Okkar elskaði eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS KRISTJÁNSSON,
Ásbrekku 3, Álftanesi,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn
27. október. Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. nóvember klukkan 13.
Halldóra Jónsdóttir
Loftur Sveinn Magnússon
Margrét Lilja Magnúsdóttir Ragnar Björgvinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar