Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 66

Morgunblaðið - 03.11.2022, Side 66
MENNING66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Komið og skoðið úrvalið Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Hvíldarstólar o.m.fl. Klassísk gæðahúsgögn á góðu verði D áin heimsveldi er nýjasta bók Steinars Braga. Um er að ræða vísindaskáld- sögu sem gerist á jörðinni og nágrenni hennar í framtíðinni þar sem lífsskilyrði borgara eru verulega breytt. Óþekkt fyrir- brigði, „Kubburinn“, hefur komið sér fyrir nálægt jörðinni og helsta vísindafólk jarðar hefur, þegar meginefni sögunnar á sér stað, verið að rannsaka fyrirbrigðið í um 10 ár og reynt að eiga við það samskipti en með litlum árangri. Helsta sögupersónan er sænski skrásetjarinn Emil. Hann er dagdrykkjumaður sem hefur helst unnið sér það til ágætis að útbúa „dauðagrömm“ fyrir efnaða einstaklinga þar sem þeir fá tækifæri til þess að kveðja sína nánustu með eins konar þróuðu instagrammávarpi. Emil hefur sem sé ekki afrekað mikið en af óþekkt- um ástæðum hefur hann fengið það verkefni af yfirvöldum að taka viðtal við þann eina aðila sem hef- ur farið inn í „Kubbinn“ og komið þaðan aftur út, vísindamanninn Pí. Við fylgjumst með ævintýralegu ferðalagi hans frá jörðinni yfir til himna þar sem Pí býr ásamt allra efnuðustu jarðarbúum, Pró- sentinu. Fjölmargt kynngimagnað gerist á leiðinni og spennan eykst stöðugt eftir því sem lengra líður á lestur bókarinnar. Höfundur fléttar inn í söguna umfjöll- un um margt af því sem telja má að í heiminum í dag og hæðist með hárbeittri kímnigáfu að ýmsum gildum og verðmæta- mati nútímamannsins. Hann lýsir andstyggð stéttaskiptingar og auðsöfnunar og hve fátækt fólk þarf að fórna eigin velferð fyrir hagsmuni hinna betur settu. Þá er eitt meginstef sögunnar skil efnisheims og rafræns heims og möguleg hætta á að mennskan sé að hverfa í sífellt tæknivæddari heimi þar sem vélar með gervi- greind taka við hlutverkum mann- fólks með tilfinningar og hlýju. Raunar veltir höfundur jafnframt upp hvort réttlætanlegt sé og eðli- legt að berjast fyrir tilvist manna í ljósi þess hve mannskepnan er grimm og tillitslaus. Dáin heimsveldi er ekki einföld bók sem hægt er að glugga í með takmarkaðri athygli, slompaður á sundlaugarbakkanum. Lesandi þarf í upphafi sögu að hafa sig allan við að setja sig inn í vísinda- skáldsöguheim Steinars Braga. Takist lesanda það er hann kom- inn inn í magnaðan ævintýraheim þar sem atburðarás rennur áfram áreynslulaust, spennan eykst stöð- ugt og endar í ófyrirséðri stórkost- legri fléttu. Dáin heimsveldi er ein besta bók Steinars Braga. Áhugafólk um vísindaskáldsögur eða skylt efni ætti ekki að láta þessa fram hjá sér fara. Í raun ættu allir sem hafa áhuga á vönduðum bókmenntum að lesa þessa bók. Ófyrirséð stór- kostleg flétta Morgunblaðið/Sigurgeir S. Steinar Bragi „Höfundur fléttar inn í söguna umfjöllun um margt af því sem telja má að í heiminum í dag,“ segir rýnirinn í umsögn sinni. BÆKUR PÁLL EGILL WINKEL Vísindaskáldsaga Dáin heimsveldi Eftir Steinar Braga. Mál og menning 2022. Innb. 368 bls. Þ egar vakin er athygli á mannshvarfi sperra menn eyrun. Leysist mál- ið varpa menn öndinni léttar. Annars er hætta á að það fenni hægt og sígandi í sporin nema hjá nánustu ættingjum hins horfna. Beri einhver eða einhverj- ir sök á hvarfinu er hugsanlegt að viðkomandi sofi ekki rótt þar til yfir lýkur. Þetta er helsta umfjöllunar- efni Katrínar Jakobsdóttur og Ragnars Jónassonar í spennu- sögunni Reykjavík. 15 ára stúlka, enn eitt barnið í forgrunni nýrrar íslenskrar glæpasögu, hverfur sporlaust í Viðey sumarið 1956, málið er rifjað upp tíu árum síðar og aftur 1976 en það er ekki fyrr en 30 árum síðar að farið er ofan í það sem gerðist, spurninga spurt og gengið eftir svörum. Höfundar hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á Agöthu Christie og tileinka hinni ensku drottn- ingu sakamálasagna bókina. Það kemur ekki á óvart, því fyrirmyndin er augljós, þó þeim takist ekki að fara í fötin hennar frekar en öðrum. Stíllinn er góður og rennur vel, sagan er vel uppbyggð og strax í byrjun er tónninn gefinn, þegar ungur og óreynd- ur lögreglumaður fær aðfinnslur frá yfirmanni yfirmanns síns fyrir að spyrja þekktan og vel tengdan lögmann inn í pólitíkina óþægi- legra spurninga. Þegar skipun um þöggun kemur að ofan þýðir lítið fyrir nýliða að malda í móinn og hann lyppast niður. Þar fór lítið fyrir efnilegan mann og bíður hann þess ekki bætur. Góð sýn á afleiðingar ranglætis. Þrjátíu árum síðar er ungur blaða- maður á vikublaði, á svipuðum aldri og fyrrnefndur lögreglumaður var þegar hann tók við málinu án árangurs. Upprifjun hans á hvarfi barnsins vekur athygli og hann setur stefnuna hátt. Systir hans kallar hann stjörnublaðamann og er Valur því sennilega lang- fyrsti Íslendingurinn sem fær það viðurnefni, þó það komi ekki fram fyrr en nú! Systkinin Valur og Sunna, sem minnir í mörgu á Katrínu Jak- obsdóttur, eru frá Húsavík og í aðalhlutverkum. Lýsing á persón- unum er góð og ekkert vefst fyrir þeim. Klíkan úr Miðbæjarskólan- um er líka áberandi og einkenni og hættir einstaklinganna eru dregin fram á trúverðugan hátt. Mikið er gert úr helstu við- burðum ársins 1986 og hvað hafi helst verið í sjónvarpinu eins og sakamálaþættir með Columbo og Dalgliesh. Hugsanlega er það fyrst og fremst gert með erlenda lesendur í huga, en virkar of mikið af hinu góða fyrir innfædda án þess þó að trufla um of. Gangur sögunnar er stöðugur, hringurinn þrengist að hætti Agöthu en engu að síður er ýmsum spurningum ósvarað. Það bendir hugsanlega til þess að haldið verði áfram á sömu braut. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson Höfundarnir „Sagan er vel uppbyggð,“ segir gagnrýnandinn um Reykjavík, spennusöguna sem Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir skrifuðu saman. BÆKUR STEINÞÓR GUÐBJARTSSON Spennusaga Reykjavík Eftir Katrínu Jakobsdóttur og Ragnar Jónasson. Veröld 2022. Innbundin, 349 bls. Tekist á við samtrygg- ingu og valdablokkir Flamenco-sýningar Reynis og félaga Flamenco-gítarleikarinn Reynir Hauksson mun á næstu dögum í samstarfi við spænska gítarleik- arannn Jeronimo Maya setja upp tónlistar- og danssýningu víða um land þar sem íslenskri tónlist hefur verið blandað saman við flamenco-tónlist, að sögn Reynis á einstakan hátt og muni ólíkir menningarheimar vera sameinaðir á sýningum þeirra. Fyrsti viðburðurinn verður í Máli & menningu við Lauga- veg í kvöld, fimmtudag, kl. 21. Leikurinn verður endurtekinn í Gamla kaupfélaginu á Akranesi á sama tíma annað kvöld, föstudag. Loks koma Reynir og félagar fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði á laugardagskvöld kl. 20. Með gítarleikurunum Reyni og Jeronimo Maya koma fram hér á landi dansarinn Daniel Caball- ero, söngvarinn Miguel Jimenez og slagverksleikarinn Einar Scheving. Reynir hefur búið á Spáni síðustu árin þar sem hann hefur starfað sem flamenco-gítarleik- ari og hefur útsett mörg íslensk lög fyrir flamenco-gítar. „Mér finnst viðeigandi að taka þann tónlistararf sem ég kem úr inn í flamenco-tónlistina. Hún er svo mikill bræðingur af tónlistar- stefnum,“ segir hann. Gítarleikarinn Reynir Hauksson starfar sem gítarleikari á Spáni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.