Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 1

Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 1
BRASSARNIR KOMASTERK- IR TIL LEIKS HM Í KNATTSPYRNU 48 • Stofnað 1913 • 272. tölublað • 110. árgangur • LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/idBuzz Pantaðu þinn Volkswagen ID.Buzz núna. er mættur! Börnin fylgdust spennt með er ljósin voru tendruð Jólaþorpið í Hafnarfirði var opnað í gærkvöldi á Thorsplani er ljósin voru tendruð á Cux- haven-jólatrénu. Tréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Karlakór- inn Þrestir og Klara Elias voru á meðal þeirra sem fluttu tónlistaratriði en staðgengill sendiherra Þýskalands, formaður bæjarráðs og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörð- ur-Cuxhaven tendruðu ljósin á trénu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rætt um að gera skammtímasamning „„Við ætlum að gefa okkur tíma fram að mánaðamótum til að gera heiðarlega tilraun til að sjá hvort við getum náð þessu saman,“ seg- ir Vilhjálmur Birgisson, formað- ur SGS. Rætt hefur verið um gerð skammtímasamnings í viðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins. „Það er engin launung á því að það hefur verið rætt að gera kjarasamning fram til þarnæstu áramóta eða fram í janúar [2024], og þá erum við fyrst og fremst að horfa til þess að sjá viðbrögð Seðlabankans, verslunar og þjónustu, sveitarfé- laga og annarra, sem bera hér líka ríka samfélagslega ábyrgð. Það er ekwki hægt að varpa þessari ábyrgð eingöngu yfir á launafólk eins og ætíð er gert.”» 2 Eiginlega frekar lélegir rokkarar „„Bæði líkamlega og andlega er ég á miklu betri stað,“ segir Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, sem fór í áfengismeðferð fyrir 20 mánuðum og segir í samtali við Sunnudagsblaðið mikilvægt að tala opinskátt um ferlið. Hann viðurkennir þó að ekki hefði verið heillavænlegt að stökkva beint á tónleikaferðalag þegar meðferðinni lauk. „Ég var búinn að vera edrú í eitt ár þegar tónleikaferðin hófst og er mjög feginn að sá tími var liðinn. Ég veit ekki alveg hvernig það hefði virkað að stökkva beint á túr en þetta er heljarinnar ferðalag og verður alltaf skemmtilegra með hverjum deginum. Eftir að ég hætti að drekka erum við eiginlega frekar lélegir rokkarar. Strákarnir fá sér nú rauðvín og svona en þeir ná að halda þessu ágætlega í skefjum.“ Morgunblaðið/Hallur Már Túr Georg Hólm á tónleikum á La Zénith í París í byrjun nóvember. „Það er krefjandi áskorun að standa undir aukinni eftirspurn í jafn langan tíma og raun ber vitni. Það snýr ekki aðeins að því að afla heita vatnsins, heldur einnig flutningskerfinu til að dreifa því til notenda,“ segir Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hita- veitu hjá Veitum. Til að undirbúa fyrirtækið undir verkefni næstu ára er búið að kortleggja auðlindirnar og raða þeim eftir fýsileika. Hrefna segir að framkvæmdir við að afla viðbót- arvatns og auka flutningsgetu kosti milljarða á næstu árum. Kostunum er raðað eftir ýmsum mælikvörðun þar sem hagkvæmni og sjálfbærni vega þyngst. Efst á blaði er að bæta nýtingu lághita á höfuð- borgarsvæðinu. Þar er átt við mögu- lega nýtingu núverandi lághitasvæða, fyrst og fremst Reykjahlíðar, en einnig rannsóknir og vonandi framtíðarnýt- ingu á Kjalarnesi og í Geldinganesi. Rannsóknir eru hafnar á báðum svæð- um en ekki liggur fyrir hverju þau skila Veitum. Á sama tíma er verið að bæta tækni til að hámarka afköst núverandi kerfis. Þar ber hæst svokallaðar djúp- dælur sem gefa möguleika á að nýta meira vatn úr borholunum þegar á þarf að halda. Ekki eru áformaðar nýjar virkjan- ir á Hengilssvæðinu en ráðstafanir hafa verið gerðar til að sækja meira heitt vatn frá Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. HS Orka áformar virkjun á háhitasvæðinu í Krýsuvík og eru Veitur í samtali við fyrirtækið um kaup á heitu vatni, ef virkjun verður að veruleika. Langan tíma tekur að virkja. lVeitur horfa til lághitasvæðanna í Reykjahlíð, á Kjalarnesi og í Geldinganesi lHeitt vatn gæti komið frá Krýsuvík ef rannsóknir HS Orku leiða til virkjunar Leita hita á nýjum stöðum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Horft til meiri nýtingar …» 11 Ljósmynd/Veitur/Atli Már Hafsteinsson HitaveitaHeitavatnstankarnir eru helsta tákn hitaveitunnar. DÝRMÆT REYNSLA OG KYNNI AF TÖKULIÐI MASAHIRO MOTOKI 50

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.