Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 2

Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. gengum frá Lífskjarasamningnum árið 2019 þá gerðum við skynsamlega kjarasamninga sem öllum aðilum bar saman um að ættu að geta stuðlað að verðstöðugleika og lágum vöxtum til frambúðar. Það hefur ekkert breyst í þeim efnum. Við gerðum allt sem við gátum en samt sem áður stöndum við uppi með það núna í lok samningsins að verðbólgan er 9,4% og stýrivextir 5,75%. Það er alveg ljóst að ábyrgðin gagnvart því liggur einhvers staðar annars staðar en hjá launafólki.“ Þurfa að fá umtalsverða launahækkun Megináhersla verkalýðsfélaganna er á að verja kaupmáttinn „og til þess þurfum við að fá umtalsverða launahækkun,“ segir Vilhjálmur. „Ég hef ætíð sagt að það er hægt að gera það með fleiri þáttum en beinum launahækkunum. Það liggur fyrir að fjármagnskostnaður vegna húsnæð- iskaupa, kostnaður vegna leiguverðs, vegna hækkunar á matvöru og bens- íni og svo framvegis eru allt þættir sem rista djúpt í heimilisbókhaldi launafólks og þar af leiðandi skiptir það máli hvernig þessir aðilar haga sér. Ef þeir halda áfram sínum arð- semismarkmiðum sem ganga út á að græða meira í dag en í gær og ætlast til þess að launafólk standi undir því, þá verður því mætt af fullri hörku,“ segir Vilhjálmur. Spurður hver verði næstu skref ef árangur viðræðna verður ekki orðinn sjáanlegur þegar komið er fram í des- ember segir Vilhjálmur að það liggi ljóst fyrir að „ef við komumst ekkert áfram þá munum við eiga samtal við okkar félagsmenn, sem taka sjálfir síðan ákvörðun um næstu skref. Ég heyri á launafólki almennt að það er tilbúið til þess að láta sverfa til stáls ef ekki næst viðunandi samningur sem ver stöðu launafólks.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hefur gefið tón- inn í 80 ár Hljóðfæraverslunin Rín fagn- aði 80 ára afmæli í gærkvöldi. Boðið var upp á léttar veitingar og tónlistaratriði með Birni Thoroddsen, Guðrúnu Árnýju og félögunum Grybos og Jóhanni Agli úr Karma Brigade. Verslunin var opnuð árið 1942 við Njálsgötu af hjónunum Stefáni og Herdísi Lyngdal en þau hófu verslunarreksturinn með sölu á harmonikum og ýmsum hljóð- færum ásamt ljósum og litlum heimilistækjum. Dóttir þeirra, Elsa Guðrún Líndal, tók við rekstrinum ásamt eiginmanni sín- um, Magnúsi Eiríkssyni. Þau ráku Rín um árabil á Frakkarstíg og síðar í Brautarhotli þangað til árið 2011 er HljóðX keypti reksturinn og flutti búðina á Grensásveg 12 þar sem hún er nú. Fyrir afmælið í gær sögðu Bubbi Morthens, Ingó Geirdal úr Dimmu ogMagnús Kjartansson nokkar sögur úr Rín í myndböndum sem birtust á samfé- lagsmiðlumHljóðX Rín. breytingaskeiðs snýst um að styðja starfsfólk sem fer á blæðingar og gengur í gegnum breytingaskeið. Við horfum svolítið til Bretlands í þessu sambandi. Bretar hafa verið mjög vakandi fyrir stuðningi vegna tíðahringsins í skólum og á vinnustöðum og nú í seinni tíð einnig vegna breytingaskeiðs- ins,“ segir Ingi- björg. Hún segir að bresk þingnefnd skoði nú sérstak- lega hvernig hægt sé að styðja við fólk á breytingaskeiði á vinnumark- aði. „Fyrst stigu Bretar það skref að skólar þyrftu að hafa tíðavörur fyrir nemendur sem fara á blæðingar og síðan var það tekið upp á vinnu- stöðum. Nú eru þeir að horfa á breytingaskeiðið. Við viljum ekki að fólk heltist úr lestinni á vinnumarkaði ef hægt er að styðja það til áframhaldandi þátttöku í atvinnulífinu. Það getur verið nóg að vinnustaður veiti stuðning með því að breyta aðeins vinnutímanum eða leyfa tímabund- ið aðeins minna vinnuframlag. Bretar benda líka á kynjaþáttinn og nefna að þegar þær konur, sem finna mikið fyrir breytingaskeiðinu, ganga í gegnum versta hluta þess, séu þær oft langt komnar á sinni framabraut og í stjórnunarstöðum. Ef við missum konur úr stjórnunar- stöðum vegna þessara vandamála þá skekkist kynjahlutfallið á meðal stjórnenda enn meir,“ segir Ingi- björg. Togstreita getur komið upp á vinnustöðum þar sem fólk vinnur í sameiginlegu rými. „Manneskja á breytingaskeiði sem er í hitakófi getur þurft að berjast við aðra um að fá að vinna við opna gluggann. Eins getur það verið óþægilegt að geta ekki lokað sig af og þurfa alltaf að vera í augsýn þegar hitakófið hellist yfir,“ segir Ingibjörg. Breytingaskeiðið er oft álagstími með tilheyrandi svefntruflunum og skertu streituþoli. Afleiðingin er í sumum tilfellum sú að fólk og sér í lagi konur falla út af vinnumarkaði vegna áhrifa breytingaskeiðsins, segir Ingibjörg Loftsdóttir, sviðs- stjóri forvarna hjá VIRK starfsend- urhæfingarsjóði. Hún er í teymi sem stýrir verkefn- inu Heilsueflandi vinnustaður sem Vinnueftirlitið, VIRK og embætti landlæknis hleyptu af stokkunum í október í fyrra (https://vinnustadir. heilsueflandi.is/). Því er ætlað að tryggja að vinnustaðir hafi góð verkfæri til að skapa heilsueflandi umhverfi. Útbúnir voru átta gátlist- ar og í gátlista um starfshætti segir m.a.: „Boðið er upp á stuðning á vinnustað til að mæta þörfum vegna tíðahrings og/eða breytingaskeiðs.” Ingibjörg segir að gátlistarnir séu viðmið sem vinnustaðir geta mælt sig við en ekki er skylt að framfylgja. „Viðmiðið um að mæta þörfum vegna tíðahrings og/eða lBoðið verði upp á stuðning á vinnustöðumvegna breytingaskeiðslGetur skekkt kynjahlutföll Af vinnumarkaði á breytingaskeiði Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ljósmynd/Colourbox Opinn vinnustaður Starfsmaður á breytingaskeiði sem lendir í því að hita- kóf hellist yfir á erfitt með að vinna í opnu rými og þykir það oft óþægilegt. Ingibjörg Loftsdóttir Rætt hefur verið um gerð skamm- tímasamnings í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins (SGS) og SA en sú leið er ýmsum skilyrðum bundin af hálfu stéttarfélaganna. Gæti verið skynsamlegur „Það er engin launung á því að það hefur verið rætt að gera kjara- samning fram til þarnæstu áramóta eða fram í janúar [2024], og þá erum við fyrst og fremst að horfa til þess að sjá viðbrögð Seðlabankans, versl- unar og þjónustu, sveitarfélaga og annarra, sem bera hér líka ríka sam- félagslega ábyrgð. Það er ekki hægt að varpa þessari ábyrgð eingöngu yfir á launafólk eins og ætíð er gert. Skammtímasamningur gæti verið skynsamlegur hvað það varðar og þá þarf að sjá hvort þessir aðilar ætli að sýna einhverja ábyrgð á því að draga úr álögum á almenningi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, for- maður SGS. Formenn SGS komu saman í gær til að fara yfir stöðuna í kjaraviðræðun- um og bera saman bækur sínar. Fyrsti sáttafundurinn eftir að kjaradeilunni við SA var vísað til ríkissáttasemjara verður á mánudaginn. „Við ætlum að gefa okkur fram aðmánaðamótum til að gera heiðarlega tilraun til að sjá hvort við getum náð þessu saman,“ segir Vilhjálmur en segist þó ekkert vera alltof bjartsýnn á að það takist. Hann segir það hlutverk viðsemj- enda að ná saman sem muni gerast á endanum en tíminn verði að leiða í ljós hvort fljótlega tekst að ganga frá samningum. Það eitt sé þó víst að almennt launafólk, neytendur og heimili geti ekki beðið með að auka ráðstöfunartekjur sínar til að mæta þeim gríðarlegu kostnaðarhækkunum sem á þeim hafi dunið. „Hækkanir sveitarfélaga eru það nýjasta sem við erum að fá yfir okkur. Þau eru að hækka gjaldskrár sínar frá 7 til 10% og fasteignagjöld í sumum tilfellum um 20%. Það getur aldrei endað nema á einn veg,“ segir Vilhjálmur. Spurður um kröfur um launahækk- anir segir Vilhjálmur félögin búin að móta sínar hugmyndir sem gangi út á að verja kaupmátt félagsmanna. Hann bendir á að verðbólgan sé ekki launadrifin. „Það liggur fyrir að á meðan við erum með verðbólguna í þessum hæðum sem hún er í núna, þá hangir það saman að einhvern veginn verða menn að mæta þess- um álögum. Ég minni á að þegar við lSamningur til áramóta 2023/’24 ef haldið er aftur af álögum og kostnaðarhækkunumlGefa sér tíma til mánaðamóta að ná niðurstöðulFormaður SGS segir launafólk tilbúið að láta sverfa til stáls ef þarf Ræðagerð skammtímasamnings Vilhjálmur Birgisson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.