Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 AÐALSTRÆTI 2, 101 RVK. | S. 558 0000 | MATARKJALLARINN.IS Tryggðu þér borð á matarkjallarinn.is UPPLIFÐU JÓLIN Hægeldaður Þorskur aspas, möndlur, noisette hollandaise, hangikjöt Hreindýra Carpaccio trönuber, pekan hnetur, gruyére ostur Gljáð Lambafillet seljurót, rauðkál, laufabrauð Hvítsúkkulaði „Blondie“ sýrð kirsuber, lakkrís, möndlur 10.800 kr. VEGAN JÓL Seljurótar tartar wasabi, sellerí, appelsín Rauðrófu Carpaccio heslihnetur, piparrót, klettasalat Grillaður GrænnAspas kjúklingabaunir, ostrusveppir, kremað bankabygg Risalamande möndlur, vanilla, kirsuber 9.400 kr. JÓLALEYNDARMÁL MATARKJALLARANS 6 réttir að hætti kokksins -leyfðu okkur að koma þér á óvart Eldhúsið færir þér upplifun þar sem fjölbreytni er í fyrirrúmi 12.500 kr. JÓL 2022 að Dýrafjarðargöngin nýtist til fulls. Þegar hafa verið lagðir nýir kaflar á sunnanveðri heiðinni og verið er að undirbúa fleiri framkvæmdir. Vegurinn liggur um Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ. Ísafjarðarbær hefur auglýst aðalskipulagsbreytingu fyrir sínum kafla, úr Dynjandisvogi og að sveitarfélagamörkum á heiðinni. Í umhverfismatsskýrslu Vegagerðar- innar voru metnar tvær veglínur, lína D sem liggur að stórum hluta um nú- verandi veg og lína F sem liggur ofar í landinu, að miklu leyti um óraskað land. Henni fylgja umfangsmiklar skeringar og fyllingar. Báðar veg- línurnar eru taldar hafa neikvæð áhrif á landslag innan verndarsvæðisins. F-línan þó meiri en hún hefur þann kost að liggja fjær Dynjanda sjálfum. Í vinnslutillögu Ísafjarðarbæjar vegna breytinga á skipulagi voru báð- ir kostir kynntir. Vegna athugasemdar sem barst ákvað skipulags- og mann- virkjanefnd að breyta tillögunni þannig að nú er aðeins gert ráð fyrir veglínu D, bæði í uppdrætti og greinargerð. Skipulagstillagan hefur verið auglýst og getur almenningur gert athugasemdir til 8. desember. Hugað verði að nýrri brú Í umsögn sem Umhverfisstofnun hefur skilað kemur fram það álit að veglína D falli betur að verndarskil- málum svæðisins og ætti því að leggja veginn samkvæmt henni. Jafnframt er hvatt til þess að aflagðir vegarkafl- ar verði afmáðir. Leggja þarf nýjan veg frá Vestfjarðavegi að bílastæði við Dynjanda. Umhverfisstofnun hvetur til þess að skoðað verði hvort unnt sé að bæta brú við bílastæði þar sem núverandi vegur og brú séu vart sam- boðin fjölsóttum og fallegum áfanga- stað ferðafólks. Í tillögu að breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar kemur fram sú stefna að veglína D verði valin þegar vegur verður lagður úr Dynjandisvogi og upp að sýslumörkum á Dynjandis- heiði. Sá kostur hefur í för með sér minna rask á landi en leið F, sam- kvæmt umhverfismatsskýrslu, en liggur nær fossinum Dynjanda og getur því frekar truflað upplifun gesta af náttúruvættinu. Neikvæð áhrif Vegagerðin vinnur að því að leggja nýjan veg og endurbæta eldri veg yfir Dynjandisheiði, frá Dýrafjarðargöng- um í Arnarfirði og að Flókalundi við Breiðafjörð. Einnig veginn af heiðinni niður í Trostansfjörð og út á Bíldu- dal. Stefnt er að heilsársvegi til þess lTillaga um val á leið úr Dynjandisvogi og upp á heiði Leiðinmeðminna rask sett á skipulag Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Á Dynjandisvogi Ferðafólk ferjað í land úr skemmtiferðaskipi við Dynjanda. Umhverfisstofnun telur að laga þurfi afleggjarann af Vestfjarðavegi að fossinum vinsæla og endurnýja gamla brú sem þar er. Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, Kolbrúnar Baldursdóttur, um þarfagreiningu á húsnæði Aust- urbæjarskóla fékk ekki brautar- gengi á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum skóla- og frístunda- ráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Pírata gegn tveimur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Skóla- og frístundaráðs- fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands sat hjá við afgreiðslu málsins. Tillagan var flutt í kjölfar þess að meirihlutaflokkarnir ákváðu að skólamunasafn Austuirbæjarskóla skyldi víkja úr risi skólans þar sem það hefur verið um árabil. Til stend- ur að nýta risið undir kennslu. Að- standendur skólamunasafnsins hafa barist hart gegn þessum áformum. Í tillögu fulltrúa Flokks fólksins kemur fram að fulltrúinn hafi rætt við aðila sem þekkja vel til Austur- bæjarskóla. Húsnæðið sé illa nýtt að þeirra mati. Ein kennslustofa sé t.d. aðeins notuð eina stund á viku. Þá hafi námsráðgjafinn heila stofu fyrir sig. Nýting á Bíósalnum sé lítil og ekki verði séð að Spennistöðin sé nýtt að neinu ráði. Risið, sem eigi að fá annað hlutverk en að varðveita skólamuni, spili nú skyndilega stórt hlutverk. En risið sé versti kostur- inn í húsinu að mati þeirra sem þekki til, ef leita þurfi að stað fyrir nýbreytni í skólastarfinu. Íbúasam- tök miðborgarinnar og fleiri aðilar hafi ályktað gegn því að risið verði tekið undir kennslu. „Þetta eru m.a. rök fyrir því að fulltrúi Flokks fólksins telur að það sé mikilvægt að þarfagreina húsnæði Austurbæj- arskóla,“ segir í tillögunni sem var felld af meirihlutanum. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg AusturbæjarskóliAlvarlegt atvik varð kveikjan að úttekt á öryggismálum. Hafna tillöguum þarfagreiningu lSkólamunasafnið verður að víkja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.