Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 22
FRÉTTIR Innlent22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Elsta sundlaug Borgarfjarðar er Hreppslaug í Andakíl. Nýlega hefur nýtt sundlaugarhús verið tekið í notkun við laugina en hið gamla var verulega farið að láta á sjá. Nýja húsið er hið glæsilegasta í alla staði og hefur vakið mikla lukku ásamt því að falla vel að hinu aldna sundlaugarmannvirki. Í haust hefur verið boðið upp á það nýnæmi að gestir hafa getað mætt í laugina að kvöldi til og fyllt sig andagift með því að láta sig fljóta í heitu vatninu og notið norður- ljósa, þegar þau hafa látið sjá sig. Verður líklega framhald á þessu á næsta ári, en lauginni hefur nú verið lokað en verður opnuð aftur á komandi vori. Eigandi laugarinnar er Ung- mennafélagið Íslendingur, en forráðamenn félagsins gengust fyrir því að steinsteypt sundlaug, 10x25 m að stærð, var byggð í landi Efri-Hrepps í Borgarfirði, árin 1928-’29. Hún var fyrsta steypta sundlaugin í Borgarfirði og raunar lengi vel helsta útilaug héraðsins og jafnvel landsins alls. Framámenn ungmennafélagsins voru afar framsýnir að byggja svona langa laug, en það þekktist varla á þeim tíma. Sundlaugin er friðlýst út frá sjónarhóli byggingarlistar. Hún er óvenjulegt steypumannvirki sem Sigurður Björnsson hannaði, en hann var yfirsmiður Hvítárbrú- ar í Borgarfirði. Laugin er mjög skemmtilega staðsett í landinu og er eitt af elstu dæmum um upprunalegt steinsteypt mannvirki sem tengist hagnýtingu heits vatns í þágu sund- og baðmenningar landsmanna. Stakkaskipti hafa orðið á mönnun prestakallanna í Borgar- firði sem auk þess hafa verið sam- einuð, svo prestum héraðsins hef- ur fækkað úr fjórum í þrjá. Fyrir örfáum árum voru í Borgarfirði fjögur prestaköll og fjórir karlar þjónuðu í þeim. Árið 2008 lét einn þeirra af störfum, sökum aldurs, og kona tók við embætti hans. Nú er svo komið að búið er að sam- eina Reykholts- og Hvanneyrar- prestaköll og prestarnir eru orðn- ir þrír og allt konur. Í haust var ung kona, Heiðrún Helga Bjarna- dóttir, vígð til Borgarprestakalls en þar hafði áður setið um langa hríð sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur. Í Reykholtsprestakalli er hinn nýi sóknarprestur sr. Hildur Björk Hörpudóttir sem tók við embættinu af sr. Geir Waage og núverandi sóknarprestur í Stafholtsprestakalli er sr. Anna Eiríksdóttir, en hún tók við af sr. Brynhildi Ólu Einarsdóttur. Þær stöllur hafa þegar sýnt sóknarbörnum að nýir herrar hafi tekið við prestaköllunum. Nýir vendir sópa best, stendur þar, og verður gaman að fylgjast með og njóta starfsins í sóknum Borgar- fjarðar á komandi árum. Heldri borgurum á Hvanneyri barst óvæntur glaðningur í haust er nemendur grunnskóla Borgar- fjarðar á staðnum, komu færandi hendi. Gjöfin var tvær krukkur af berjasultu sem nemendur höfðu sjálfir útbúið með dyggri aðstoð kennara og starfsfólks skólans. Á Hvanneyri í Borgarfirði er rekið útibú frá Grunnskóla Borgar- fjarðar. Í skólanum eru yngri börn sem síðar munu, er aldur leyfir, fara í fjölmennari grunnskóla, að lík- indum að Kleppjárnsreykjum. En í Hvanneyrarskóla er smæðin nýtt til margra skemmtilegra verkefna sem allur skólinn tekur oft þátt í. Og eins og fyrr segir voru viðfangsefni haustsins meðal annars þau að sjóða og gefa berjasultur til heldri borgara. Ýmist lögðu börnin sjálf til ber í það púkk sem þau höfðu tínt eða kennarar gáfu af heimilis- birgðum sínum. Að sultugerð lokinni var öllu komið í krukkur og hersing barna gekk til allra þeirra heimila í þorpinu þar sem heldri íbúar réðu ríkjum. Á stöku stað var jafnvel sungið fyrir framan dyrnar, ef skyndileg þörf fyrir tónelska tjáningu helltist yfir hópinn. Fyrir ríflega 130 árum, nánar tiltekið árið 1889, hlóð tíu ára dreng- ur, Pétur Georg Guðmundsson, virki fyrir sjálfan sig til að eiga skjól í ásetunni fyrir veðri og vindum. Pétursvirki ber nafn hans síðan og er grjótborg í Lundarreykjadal, ekki langt frá bænum Englandi. Virkið var orðið afar illa farið og hafði laskast enn frekar núna síðsumars, líklega vegna jarðskjálfta, en það stendur á svonefndum Hrútaborg- um á Englandshálsi. Saga þessa mannvirkis er einstök og var það sérstaklega vel unnið, ekki síst í ljósi þess að hleðslumaðurinn var einungis 10 ára gamall þegar hann vann verkið. Virkið hefur aðeins einu sinni verið lagfært, en það gerði Pétur Georg sjálfur á fjórða áratug síðustu aldar. Eins og fyrr segir var virkið orðið afar illa farið og brýnt að lagfæra það. Sótt var um styrk í Fornminjasjóð til endurbóta þar sem virkið er friðað en því var hafnað. Ferðafélag Borgarfjarðar tók verkefnið því upp á sína arma og í samvinnu við Umf. Dagrenningu og eigendur jarðanna Englands og Iðunnarstaða í Lundarreykjadal var sótt um styrk úr framkvæmda- sjóði ferðamannastaða til að hanna og skipuleggja útivistarsvæði í kringum Englandslaug og um leið til að lagfæra Pétursvirki. Fé fékkst í verkið og nú er endurbótum lokið. Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari hefur unnið þar þrekvirki ásamt samverkamanni sínum, Guðmundi Björnssyni. Fyrir þá sem vilja skoða virkið má geta þess að leiðin að því hefur verið stikuð frá Englandslaug. Norðurljósanna notið í heitri laug Morgunblaðið/Kristján Guðmundsson Friðlýst Hreppslaug í Borgarfirði er friðlýst og jafnframt elsta sundlaug héraðsins. Nýverið var nýtt og glæsilegt sundlaugarhús tekið í notkun. ÚRBÆJARLÍFINU Birna Konráðsdóttir Borgarfirði Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.