Morgunblaðið - 19.11.2022, Page 24
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
19. nóvember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 144.3
Sterlingspund 170.22
Kanadadalur 107.74
Dönsk króna 20.018
Norsk króna 14.184
Sænsk króna 13.552
Svissn. franki 151.66
Japanskt jen 1.0283
SDR 189.01
Evra 148.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.3598
STUTT
Landsvirkjun hagnast
um 31 milljarð króna
z Hagnaður
Landsvirkjunar
fyrstu níu mánuði
ársins nam tæp-
um 214 milljónum
Bandaríkjadala,
eða um 31milljarði
króna, samanbor-
ið við tæplega 103
milljónir dala á
sama tíma í fyrra.
Rekstrartekjur
fyrstu níu mánuðina námu tæpum 580
milljónum dala og jukust um tæpar 150
milljónir dala á milli ára. Eigið fé í lok
september var um 2,4 milljarðar dala
eða 352 milljarðar króna.
Í árshlutauppgjöri Landsvirkjunar,
sem birt var í gær, kemur fram að með-
alverð til stórnotenda án flutnings var
42,1 dalir á megavattstund á fyrstu níu
mánuðum ársins, sem er hæsta verð á
því tímabili í sögu Landsvirkjunar.
Hörður
Arnarson
Ríkissaksóknari hefur staðfest
ákvörðun héraðssaksóknara um að
vísa frá kæru Skúla Gunnars Sigfús-
sonar athafnamanns á hendur Sveini
Andra Sveinssyni hrl. fyrir fjárdrátt
með því að hafa sem skiptastjóri þrota-
bús EK1923 dregið sér fé af fjárvörslu-
reikningi þrotabúsins.
Í október 2019 komst héraðsdómur
að þeirri niðurstöðu að Sveinn hefði
ekki upplýst kröfuhafa á formlegan
hátt um ætlaðan skiptakostnað og
tímagjald sitt sem skiptastjóra við
fyrrgreint bú. Honum var því gert að
endurgreiða búinu þá skiptaþóknun
sem hann hafði þegið, um 100 milljónir
króna. Dómurinn taldi þó ekki þörf
á að víkja Sveini Andra sem skipta-
stjóra og fékk hann því að klára skiptin
á búinu.
Samkvæmt kæru Skúla til héraðs-
saksóknara endurgreiddi Sveinn Andri
rúmar 84 milljónir króna til þrotabús-
ins 24. október 2019 en greiddi sér
sömu upphæð til baka í kjölfar skipta-
fundar sem haldinn var daginn eftir.
Málið ekki rannsakað
Héraðssaksóknari mat það sem svo
að þar sem skiptum í þrotabúinu var
lokið verði að líta á kæruefni sem svo
að þau lúti fremur að aðfinnslum við
störf skiptastjóra, frekar en að þau
gefi tilefni til rannsóknar á meintum
refsiverðum brotum. Ekki verði séð
að Sveinn Andri hafi gerst sekur um
að draga sér fjármuni þrotabúsins og
af þeim sökum teljist ekki tilefni til
að hefja rannsókn á ætluðum brotum.
Málið var því ekki rannsakað frekar og
kærunni vísað frá.
Skúli Gunnar kærði þá ákvörðun til
ríkissaksóknara og benti á að skiptum í
þrotabúinu var ekki lokið þegar kæran
var upphaflega lögð fram til héraðs-
saksóknara. Í kærunni eru málsatvik
frekar rakin. Eftir að hafa fengið frek-
ari skýringar frá héraðssaksóknara
ákvað ríkissaksóknari að staðfesta
ákvörðunina um að vísa málinu frá í
síðustu viku, rúmum tveimur árum
eftir að upphafleg kæra var lögð fram.
Kærði í nafni þrotabúsins
Konráð Jónsson hrl., lögmaður
Skúla Gunnars, segir í skriflegu svari
til Morgunblaðsins að ákvörðun ríkis-
saksóknara um að vísa kærunni frá sé
fullkomlega án rökstuðnings.
„Það segir einungis að fyrirliggjandi
gögn gefi ekki tilefni til lögreglurann-
sóknar. Samt liggur m.a. fyrir og er
staðfest af dómstólum að Sveinn Andri
millifærði fjármuni af reikningi þrota-
búsins án þess að hafa til þess heimild.
Það er aukaatriði í málinu ef litið er
svo á að heimildar til þess hafi verið
aflað síðar, kært brot var fullframið
við millifærslu þóknunarinnar,” segir
Konráð.
Þá segir Konráð að það komi þægi-
lega á óvart að Sveinn Andri, sem hafi
ítrekað borið því við að ekki sé hægt
að sækja rétt á hendur honum sem
skiptastjóra vegna þess að skiptum
þrotabúsins sé lokið, skyldi kæra
ákvörðun héraðssaksóknara um að
vísa frá kæru Sveins Andra á hendur
Skúla Gunnari og endurskoðanda hans
til ríkissaksóknara í nafni þrotabúsins,
19 mánuðum eftir skiptalok.
„Það má búast við því að hann beri
það ekki fyrir sig í væntanlegum mála-
rekstri félaga Skúla á hendur honum
vegna oftekinnar þóknunar úr þrota-
búinu,” segir Konráð.
zLögmaður segir niðurstöðu ríkissaksóknara órökstudda
KærugegnSveini
Andra vísað frá
Gisli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
MBL/G.Rúnar
Dómsmál Sveinn Andri Sveinsson kvartaði undan dómaranum sem gerði
honum að endurgreiða þrotabúi EK1923 um 100milljónir króna.
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
BMW X5
XDRIVE45E
Dráttarkrókur (rafmagns)
19” álfelgur
4 heilsársdekk
Aksturstölva
Bakkmyndavél
Bluetooth hljóðtengi
Hiti í fram- og aftursætum
Rafdrifin framsæti
Stafrænt mælaborð
USB tengi
Rafdrifnir hliðarspeglar
Litað gler
Leðuráklæði
Hraðastillir
Stöðugleikakerfi
Leiðsögukerfi
Regnskynjari
Aðfellanlegir hliðarspeglar
Hiti í hliðarspeglum
Birtutengdir hliðarspeglar
Akreinavari
Lykillaus ræsing
Fjarlægðarskynjarar framan
Umferðarskiltanemi
Sjálfvirk há/lág aðalljós
Raðnúmer 247869
Ekinn 52 Þ.KM
Nýskráður 3/2020
Næsta skoðun 2024
Sjálfskiptur
Fjórhjóladrif
Hybrid
286 hestöfl
Verð kr. 11.990.000
Aukavið flug til
Raleigh-Durham
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FlugVið Duke-háskóla í Norður-Karólínu. Svæðið er þekkt fyrir öfluga
háskóla og mikla grósku meðal nýsköpunar- og tæknifyrirtækja.
Flug Icelandair til Raleigh-Dur-
ham-flugvallar í Norður-Karólínu
hefur gengið mun betur en vonir
stóðu til. Félagið hóf flug til áfanga-
staðarins um
miðjan maí sl.,
þá áætlunarflug
fjórum sinn-
um í viku, og til
stóð að fljúga út
október á þessu
ári, taka frí yfir
veturinn og hefja
flug á ný í maí á
næsta ári.
Áfangastaður-
inn reyndist
þó eftirsóttur og síðla sumars var
ákveðið að halda áætlunarfluginu
áfram fram yfir áramót. Nú hefur
Icelandair ákveðið að hefja flug á
ný í byrjun mars í stað maí. Um 10,5
milljónir manna búa á svæðinu og
þar er mikil tenging milli viðskipta
og menningarlífs.
Bogi Nils Bogason, forstjóri
Icelandair, segir í samtali við
Morgunblaðið að flugið og bókunar-
staðan til Raleigh-Durham hafi farið
fram úr væntingum félagsins.
„Það liggur mikil greiningarvinna
að baki því að velja áfangastaði og
við sáum tækifæri í því að hefja flug
þangað. Það tekur þó alltaf tíma að
byggja upp áfangastaði en þessi hef-
ur gengið betur en við máttum vona,”
segir Bogi Nils.
Hann segir að margir kjósi að fljúga
með Icelandair til og frá Raleigh-Dur-
ham þar sem miklir möguleikar
á tengiflugi eru í boði, bæði til
áfangastaða í Evrópu auk þess sem
Raleigh-Durham flugvöllur býður
upp á miklar tengingar til annarra
áfangastaða í Bandaríkjunum.
„Tengifarþegarnir eru þó alls ekki
þeir einu því við höfum séð tölu-
verðan fjölda ferðamanna koma til
Íslands frá svæðinu í sumar og í
haust,” segir Bogi Nils.
zHefja flug á ný í byrjun mars í stað maí
Bogi Nils
Bogason