Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 31

Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 UMRÆÐAN 31 WWW.PIZZAOFNAR.IS JÓLAGJÖFIN Í ÁR ER OONI PIZZAOFN! A lexandr-Domalchuk Jónasson varð í 10. sæti í flokki keppenda 18 ára og yngri á Evrópumóti ungmenna sem lauk í Antalya í Tyrklandi sl. mánudag. Alexandr hlaut sex vinninga af níu möguleg- um og náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitili. Hann er 17 ára gamall og það er gleðilegt að hann hafi náð þessum árangri í för með íslenska hópnum sem stóð vel fyrir sínu á Evrópumótinu. Matthías Björgvin Kjartansson hækkaði mest allra á stigum eða um 88 Elo-stig en hann hlaut fjóra vinninga af níu mögulegum. Þá hækkaði hinn níu ára gamli Birkir Hallmundarson um 78 Elo-stig, Gunnar Erik Guðmundsson um 45 Elo-stig og Iðunn Helgadóttir um 37 Elo-stig. Matthías og Iðunn byrj- uðu bæði illa en unnu síðan þrjár skákir í röð. Evrópumótið var fyrsta stóra ver- kefni íslenskra ungmenna í skák- inni eftir Covid-faraldurinn. Mótið fór fram við frábærar aðstæður. Á heimsmeistaramóti unglinga 20 ára og yngri á dögunum var Vignir Vatnar Stefánsson rétt eins og Alexandr í toppbaráttunni mótið á enda. Vel skipað Skákþing Kópavogs – þrír efstir á U 2000-mótinu Nóvembermánuður ætlar að verða þéttsetinn skákviðburðum og í gær hófst í Fífunni í Kópavogi Skákþing Kópavogs 2022. Meðal 25 þátttakenda sem skráð hafa sig til leiks eru Vignir Vatnar Stefáns- son, Dagur Ragnarsson, Halldór G. Einarsson og Lenka Ptacnikova auk margra sterkra skákmanna, m.a. ungmenna sem tóku þátt í EM í Tyrklandi. Fyrir síðustu umferð á U 2000-mótinu, sem Taflfélag Reykja- vikur stendur fyrir, eru efstir Adam Omarsson, Dagur Kjartansson og Sigurjón Þór Friðþjófsson, allir með fimm vinninga af sex mögulegum. Glæsileg leikflétta Duda Það hefur varla farið fram hjá skákunnendum að ein aðalástæða þess að Magnús Carlsen hefur ákveðið að afsala sér heimsmeist- aratitlinum liggur í óánægju hans með keppnisfyrirkomulagið. Eitt stykki heimsmeistaraeinvígi út- heimtir gríðarleg orkuútlát og eftir að hafa háð fimm slík þykir honum nóg komið. Tillögur um að skákir með styttri umhugsunartíma fái ákveðið vægi í heimsmeistara- keppninni hafa verið settar fram því að staðreyndin er sú að keppni í atskák og hraðskák nýtur síauk- inna vinsælda og hentar betur í beinum útsendingum í sjónvarpi og á netinu. Í lokamóti Meltwater-mótaraðar- innar sem fram fer í San Francisco þessa dagana sitja keppendurnir átta andspænis hver öðum – en með tölvu fyrir framan sig í stað tafls. Magnús Carlsen, sem hefur tryggt sér sigur í mótaröðinni, og Pólverjinn Jan-Krzysztof Duda hafa forystu eftir þrjár umferðir. Glæsi- leg leikflétta Pólverjans hefur vakið feiknaathygli en hún gekk þannig fyrir sig: Meltwater 2022, 3. umferð:w Jan-Krzysztof Duda – Anish Giri Hvíta staðan er greinilega betri því að kóngsstaða Hollendingsins er afar viðkvæm. Vinningsleiðin sem Pólverjinn fann er stórglæsileg og minnir á leikfléttur 19. aldar meistaranna: hvítur leikur og mátar: 28. Hg7+! Kxg7 29. f6+ Kh6 eða 29. _ Kg8 30. Bh7+! Kh8 31. Rg6+ Kxh7 32. Dh5+ Kg8 33. Dh8+ Kf7 34. Dg7+ Ke8 35 De7 mát. 30. Rg4+ Kg5 31. Df5+! Rxf5 32. Hxf5+ Kg6 eða 32. Kxg4 33. h3 mát 33. He5+! - og svartur gafst upp því að eftir 33. _ Kf7 kemur 34. He7+ Kg8 35. Rh6+! Kh8 36. Hh7 mát! Með tölvu fyrir fram- an sig – í stað tafls Ljósmynd/EM ungmenna Merkur áfangi Alexandr-Domalchuk Jónasson við taflið í Antalya. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Merkir Íslendingar Elsa Sigfúss Elsa Guðrún Kristín Sigfúsdótt- ir fæddist 19. nóvember 1908 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Sigfús Einarsson, f. 1877, d. 1939, tónskáld, og Valborg Einarsson, f. 1882, d. 1985, frá Danmörku, fædd Hellemann. Elsa fluttist ung með fjölskyldu sinni til Danmerkur. Hún hóf feril sinn sem sellóleikari en fór svo að syngja opinberlega. Hún átti alla tíð heima í Kaupmannahöfn, en kom reglulega til Íslands til að halda tónleika. Elsa var dægurlagasöngvari en jafnframt túlkandi klassískr- ar tónlistar. Fram yfir 1950 var hún meðal vinsælustu dægur- lagasöngvara í Danmörku og hélt tónleika víða í Evrópu. Hún var einnig tónskáld. Upptökur með söng Elsu eru vel á fjórða hundrað talsins en út komu með henni á annað hundr- að 78 snúninga hljómplötur. Hún hætti að syngja opinberlega 1964. Hún var ógift en átti kjördóttur. Elsa var sæmd íslensku fálka- orðunni árið 1961. Elsa lést 22.5. 1979. LC02 Leður Verð frá 349.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. HÆGINDASTÓLL Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.