Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
UMRÆÐAN 31
WWW.PIZZAOFNAR.IS
JÓLAGJÖFIN Í ÁR ER
OONI PIZZAOFN!
A
lexandr-Domalchuk
Jónasson varð í 10. sæti
í flokki keppenda 18 ára
og yngri á Evrópumóti
ungmenna sem lauk í Antalya í
Tyrklandi sl. mánudag. Alexandr
hlaut sex vinninga af níu möguleg-
um og náði sínum fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitili. Hann er
17 ára gamall og það er gleðilegt að
hann hafi náð þessum árangri í för
með íslenska hópnum sem stóð vel
fyrir sínu á Evrópumótinu.
Matthías Björgvin Kjartansson
hækkaði mest allra á stigum eða
um 88 Elo-stig en hann hlaut fjóra
vinninga af níu mögulegum. Þá
hækkaði hinn níu ára gamli Birkir
Hallmundarson um 78 Elo-stig,
Gunnar Erik Guðmundsson um 45
Elo-stig og Iðunn Helgadóttir um
37 Elo-stig. Matthías og Iðunn byrj-
uðu bæði illa en unnu síðan þrjár
skákir í röð.
Evrópumótið var fyrsta stóra ver-
kefni íslenskra ungmenna í skák-
inni eftir Covid-faraldurinn. Mótið
fór fram við frábærar aðstæður.
Á heimsmeistaramóti unglinga 20
ára og yngri á dögunum var Vignir
Vatnar Stefánsson rétt eins og
Alexandr í toppbaráttunni mótið
á enda.
Vel skipað Skákþing Kópavogs
– þrír efstir á U 2000-mótinu
Nóvembermánuður ætlar að
verða þéttsetinn skákviðburðum
og í gær hófst í Fífunni í Kópavogi
Skákþing Kópavogs 2022. Meðal
25 þátttakenda sem skráð hafa sig
til leiks eru Vignir Vatnar Stefáns-
son, Dagur Ragnarsson, Halldór
G. Einarsson og Lenka Ptacnikova
auk margra sterkra skákmanna,
m.a. ungmenna sem tóku þátt í EM
í Tyrklandi.
Fyrir síðustu umferð á U
2000-mótinu, sem Taflfélag Reykja-
vikur stendur fyrir, eru efstir Adam
Omarsson, Dagur Kjartansson og
Sigurjón Þór Friðþjófsson, allir með
fimm vinninga af sex mögulegum.
Glæsileg leikflétta Duda
Það hefur varla farið fram hjá
skákunnendum að ein aðalástæða
þess að Magnús Carlsen hefur
ákveðið að afsala sér heimsmeist-
aratitlinum liggur í óánægju hans
með keppnisfyrirkomulagið. Eitt
stykki heimsmeistaraeinvígi út-
heimtir gríðarleg orkuútlát og eftir
að hafa háð fimm slík þykir honum
nóg komið. Tillögur um að skákir
með styttri umhugsunartíma fái
ákveðið vægi í heimsmeistara-
keppninni hafa verið settar fram
því að staðreyndin er sú að keppni í
atskák og hraðskák nýtur síauk-
inna vinsælda og hentar betur í
beinum útsendingum í sjónvarpi og
á netinu.
Í lokamóti Meltwater-mótaraðar-
innar sem fram fer í San Francisco
þessa dagana sitja keppendurnir
átta andspænis hver öðum – en
með tölvu fyrir framan sig í stað
tafls. Magnús Carlsen, sem hefur
tryggt sér sigur í mótaröðinni, og
Pólverjinn Jan-Krzysztof Duda hafa
forystu eftir þrjár umferðir. Glæsi-
leg leikflétta Pólverjans hefur vakið
feiknaathygli en hún gekk þannig
fyrir sig:
Meltwater 2022, 3. umferð:w
Jan-Krzysztof Duda – Anish Giri
Hvíta staðan er greinilega betri
því að kóngsstaða Hollendingsins
er afar viðkvæm. Vinningsleiðin
sem Pólverjinn fann er stórglæsileg
og minnir á leikfléttur 19. aldar
meistaranna: hvítur leikur og
mátar:
28. Hg7+! Kxg7 29. f6+ Kh6
eða 29. _ Kg8 30. Bh7+! Kh8 31.
Rg6+ Kxh7 32. Dh5+ Kg8 33. Dh8+
Kf7 34. Dg7+ Ke8 35 De7 mát.
30. Rg4+ Kg5
31. Df5+! Rxf5 32. Hxf5+ Kg6
eða 32. Kxg4 33. h3 mát
33. He5+!
- og svartur gafst upp því að eftir
33. _ Kf7 kemur 34. He7+ Kg8 35.
Rh6+! Kh8 36. Hh7 mát!
Með tölvu fyrir fram-
an sig – í stað tafls
Ljósmynd/EM ungmenna
Merkur áfangi Alexandr-Domalchuk Jónasson við taflið í Antalya.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Merkir Íslendingar
Elsa Sigfúss
Elsa Guðrún Kristín Sigfúsdótt-
ir fæddist 19. nóvember 1908
í Reykjavík. Foreldrar hennar
voru hjónin Sigfús Einarsson, f.
1877, d. 1939, tónskáld, og Valborg
Einarsson, f. 1882, d. 1985, frá
Danmörku, fædd Hellemann.
Elsa fluttist ung með fjölskyldu
sinni til Danmerkur. Hún hóf feril
sinn sem sellóleikari en fór svo
að syngja opinberlega. Hún átti
alla tíð heima í Kaupmannahöfn,
en kom reglulega til Íslands til að
halda tónleika.
Elsa var dægurlagasöngvari
en jafnframt túlkandi klassískr-
ar tónlistar. Fram yfir 1950 var
hún meðal vinsælustu dægur-
lagasöngvara í Danmörku og hélt
tónleika víða í Evrópu. Hún var
einnig tónskáld.
Upptökur með söng Elsu eru
vel á fjórða hundrað talsins en út
komu með henni á annað hundr-
að 78 snúninga hljómplötur. Hún
hætti að syngja opinberlega 1964.
Hún var ógift en átti kjördóttur.
Elsa var sæmd íslensku fálka-
orðunni árið 1961.
Elsa lést 22.5. 1979.
LC02
Leður
Verð frá 349.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
HÆGINDASTÓLL
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is