Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 46

Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL46 Stafakassinn Fimmkrossinn Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri í Landsbankanum – 50 ára Hver dagur er ævintýri H elgi Teitur Helgason fæddist 19. nóvember 1972 á Landspítalanum en flaug 6 daga gamall með móður sinni í lítilli flugvél til Ísafjarðar, þar sem foreldrar hans bjuggu. „Þessi flug- ferð var víst hressileg og mamma hélt víst að við myndum ekki hafa það af. Ég bjó fyrstu 5 ár ævinnar á Ísafirði. Ég á ekki margar minn- ingar frá Ísafirði en mér finnst ég samt vera kominn heim þegar ég heimsæki Ísafjörð.“ Frá Ísafirði flutti fjölskyldan á Akranes og fyrstu árin bjó hún á efstu hæð Landsbankans við Suður- götu 57 þar sem faðir hans var útibússtjóri bankans. „Það er því líklegt að starfsfólkið á Skaganum hafi hjálpað til við uppeldið á mér og líklega veitti ekkert af. Það var margt brallað t.d. að henda vatns- blöðrum af svölunum á saklausa vegfarendur og fótbolti á Merkur- túninu var fastur liður.“ Árið 1985 flutti fjölskyldan svo til Akureyrar. „Þegar ég kom á Akur- eyri var ég á 13 ári sem er viðkvæm- ur aldur til að skipta um umhverfi, en mér leið vel og það var fínt að búa á Akureyri. Á sumrin var ég sendur í sveit, flest sumur til systur minnar og mágs, sem bjuggu og búa enn kúabúi rétt fyrir utan Akranes. Ég trúi því að ég búi enn að því sem ég lærði í sveitinni.“ Helgi gekk í Menntaskólann á Akureyri. „Þar eignaðist ég marga af mínum bestu vinum. Ég útskrif- aðist árið 1992 og fór í lögfræði í kjölfarið. Við erum þrír bekkjar- bræðurnir af eðlisfræðibrautinni sem urðum lögfræðingar, sem ég held að sé nokkuð sérstakt. Á sumr- in vann ég á Akureyri og það var einmitt sumarið 1994 sem ég hitti ég konuna í lífi mínu í Sjallanum á Akureyri. Þar með voru ævarandi tengsl mín við Norðurland líklega innsigluð.“ Fyrsta starf Helga sem lög- fræðingur var í Landsbankanum. „Reynsluboltarnir sem þar störf- uðu, bæði lögfræðingarnir og annað starfsfólk, kenndu mér margt. Málin voru fjölbreytt og fyrsta prófmálið mitt til öflunar lögmanns- réttinda snérist um höfundarrétt að Mókolli, sem var barnaklúbbsfígúra bankans. Eftir níu ár í borginni ákváðum við að flytja aftur til Akureyrar. Mér bauðst að leiða opnun útibús Intrum á Akureyri sem ég þáði. Það var frábært verkefni og hjá Intrum var starfsandinn og stemningin mögnuð. Fyrirtækið var ungt og fólkið sem þar vann var líka, nánast öll vorum við um þrítugt. Intrum var stjórnað af frábæru fólki sem ég naut trausts hjá og ég er enn þakklátur fyrir tækifærið. Rekstur- inn gekk vel og þannig að eftir var tekið. Það var líklega ástæða þess að mér bauðst árið 2004 að taka við starfi útibússtjóra Landsbankans á Akureyri, að koma aftur heim í bankann. Landsbankinn á Akureyri var rótgróið fyrirtæki, hafði starfað á Akureyri í 102 ár á þessum tíma. Mér fannst létt að taka við útibúinu. Ég þekkti fólkið vel og auðvitað hvern krók og kima hússins, enda hafði ég leyst af sem húsvörður. Er líklega eini framkvæmdastjóri banka á Íslandi sem hef verið hús- vörður í sama banka. Ég var mjög þakklátur að vera treyst fyrir þessu verkefni, þá 32 ára gömlum og það skiptir miklu máli að hafa gott bak- land. Á þessum tíma var margt að breytast í bankaútibúum landsins. Fyrirtæki voru mörg útibú frá fyr- irtækjum í Reykjavík og voru þjónu- stuð þaðan. Útibúið gekk eftir sem áður vel og bankinn á Akureyri var gríðarlega sterkur enda hafði hann á að skipa sannkölluðum úrvalshópi starfsfólks, sem sýndi sínar bestu hliðar daglega. Þetta var mjög lær- dómsríkur og skemmtilegur tími.“ Meðfram útibússtjórastarfinu tók Helgi að sér að vera formaður kjörstjórnar. „Ég er líklega eini formaður kjörstjórnar á Íslandi sem hef fengið símtal í beinni útsetningu við atkvæðaupplestur í sjónvarpi. Frænda mínum úr sveitinni fannst kjörið að hringja þegar hann sá mig í sjónvarpinu. Ég var líka formaður sóknarnefndar Lögmannshlíðar- sóknar á þessum árum. Með mér í þessu hvoru tveggja var úrvalsfólk sem ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst. Ég var líka gestafyrirles- ari í Háskólanum á Akureyri á þessum árum og skildi þá hversu mikil lyftistöng fyrir samfélagið Háskólinn er. Hann skapar lykil- forsendu fyrir búsetu fólks á svæð- inu að mínu mati.“ Haustið 2010 tók Helgi við starfi framkvæmdastjóra í Landsbankan- um og gegnir því starfi enn. „Þar er hver dagur ævintýri. Ég vinn með mögnuðu fólki og metnaðurinn í bankanum er af öðrum heimi. Á undanförnum árum hefur fjármála- þjónusta þróast hratt vegna tækni- framfara og vegna breyttra krafna. Að mínu mati er hlutverk bankans að vera traustur banki landsmanna fyrir farsæla framtíð samfélagsins sem við búum í. Að því vinnum við hörðum höndum og árangurinn skilar sér; viðskiptavinum fjölgar stöðugt og síðustu þrjú árin hafa viðskiptavinir Landsbankans verið þeir ánægðustu á Íslandi og reksturinn er jafnframt traustur.“ Helgi er dellukarl að eigin sögn og áhugasamur um flest. „Ég er nátt- úruunnandi, hef gaman af útiveru og er ástríðuveiðimaður. Á vetrum eyðum við fjölskyldan miklum tíma í hesthúsinu með hestunum okkar, sem eru auðvitað hinir mestu gæð- ingar að mínu mati. Félagsskapur- inn er líka frábær í hestamannafé- laginu Herði í Mosfellsbæ þar sem ég er félagsmaður. Við hjónin förum í hestaferðir á sumrin, reyndar of Fjölskyldan Frá vinstri: Andri Páll, Helgi, Ásdís Halla, Guðrún og Erla María við fermingu Ásdísar Höllu árið 2021. HestamaðurinnHelgi og Skag- firðingurinn Blakkur. Til hamingju með daginn Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl A Hrútur Það fer afskaplega mikill tími í alls konar vangaveltur hjá þér. Passaðu þig á því að festast ekki í dagdraumum í ofanálag. 20. apríl - 20. maí B Naut Vertu tilbúin/n að deila leyndarmáli með vini sem þú treystir til að ráða þér heilt. Fall er fararheill, þú kemst að því er líður á daginn. 21. maí - 20. júní C TvíburarMetnaður þinn er vakinn, nú verður ekki aftur snúið. Farðu þér hægt í lífsgæðakapphlaupinu. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Kvíddu engu, þú hefur allt með þér í vissu máli. Þér mun bjóðast tækifæri til að gleðjast með góðum vinum. Gríptu gæsina meðan hún gefst. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Þú keyrir málin áfram bak við tjöldin. Haltu bara þínu striki, þinn tími mun koma. Persónulegur stíll þinn laðar að þér nýja vini. 23. ágúst - 22. september F Meyja Það er óþarfi að ríghalda í hluti, sem þú hefur litla eða enga þörf fyrir. Eitthvað verður til þess að trufla heimilis- friðinn í kvöld. 23. september - 22. október G Vog Þótt húsverkin séu ekki í uppáhaldi hjá þér þarftu að gefa þér tíma til að sinna þeim. Kauptu þér eitthvað fallegt eða litla gjöf handa ástvini. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Klappaðu sjálfum/sjálfri þér á bakið fyrir að þora að færa út kvíarnar. Þú ert með öll háspilin á hendi. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Ef þú þarft að leita aðstoðar einhvers þá er þetta góður dagur til þess. Settu skýr mörk og vertu viss um að aðrir velkist ekki í vafa um hvað þú ert að meina. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Tilhneiging þín til að hugsa um of gæti verið vandamál. Láttu slag standa og gakktu í fyrirliggjandi verkefni. Ekki setja þig á háan hest í vissu máli. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Þú þarft að taka þig taki og koma skipulagi á líf þitt. Það kemur enginn á hvítum hesti og gerir það fyrir þig og því er best að ganga sem fyrst í málið sjálf/ur. Léttu á hjarta þínu. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þú verður að temja þér þau vinnu- brögð að ljúka við eitt verkefni áður en þú byrjar á öðru. Kapp er best með forsjá. Ekki eyða um efni fram. 100 ÁRA Sigríður Lowe verður 100 ára á morgun en hún er fædd 21. nóv- ember 1922. Hún ólst upp á Kvíabryggju á Snæfells- nesi en foreldrar hennar voru Jón Ólafsson, f. 1891, d. 1973 og Hildur Sæ- mundsdóttir, f. 1903, d. 1978. Alsystkini Sigríðar voru Kristfinnur, f. 1924, d. 2007 og Ragnheiður Elín, f. 1926, d. 2015. Sam- mæðra systkini Sigríðar eru Svava, f. 1930 og Málfríður, f. 1933 d. 2014. Árið 1941 kynntist hún manni sínum, Alfred Lowe, breskum hermanni af þýskum ættum, d. 1991 og giftu þau sig hér á Íslandi árið 1945. Fluttu þau út til Englands stuttu seinna og býr hún þar ennþá við ágæta heilsu í heimili sínu í London. Þau Alfred eignuð- ust 3 börn og í dag eru barnabörnin orðin 5 og langömmubörnin orðin 8. Sigríður heldur upp á afmælisdaginn með fjölskyldunni í London og fagnar þessum merka áfanga. Sigríður Lowe

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.