Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 48

Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 48
ÍÞRÓTTIR48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 Keppni í G-riðli á HM karla í knattspyrnu í Katar hefst fimmtu- daginn 24. nóvember. Mætast þá annars vegar Brasilía og Serbía og Sviss og Kamerún hins vegar. Morgunblaðið fjallar um hvern riðil fyrir sig á mótinu og hitar upp fyrir heimsmeistaramótið. Hér verður farið yfir G-riðil. Brasilía Brasilíska liðið er talið eitt af þeim sigurstranglegustu á mótinu í ár, enda státar það af gífurlegum fjölda heimsklassaleikmanna. Í hópnum er blanda af þaulreynd- um leikmönnum á við Neymar, Thiago Silva, Dani Alves, Casemiro og Alisson og yngri leikmönnum á við Vinícius Júnior, Gabriel Martin- elli og Rodrygo. Raunar eru einnig nokkrir frábærir leikmenn á besta aldri, í kringum 25 ára, þar á meðal Gabriel Jesus, Raphinha og Bruno Guimaraes. Brasilíska liðið fór í gegnum undankeppnina í Suður-Ameríku án þess að tapa leik og vann riðilinn sannfærandi, sex stigum fyrir ofan erkifjendurna í Argentínu, með því að vinna 14 leiki og gera þrjú jafntefli. Brasilía tekur nú þátt á sínu 21. heimsmeistaramóti og er eina þjóðin sem hefur tekið þátt á hverju ein- asta þeirra. Brassar hafa staðið uppi sem heimsmeistarar oftast allra, fimm sinnum, og freista þess nú að vinna sinn sjötta heimsmeistaratitil. Til þess þarf liðið að halda þeim stöðugleika sem það hefur náð upp undanfarin ár þar sem gífurleg breidd hefur orðið til þess að mikill fjöldi leikmanna leggur reglulega sitt á vogarskálarnar. Serbía Serbía er eitt af þremur liðum í riðlinum sem munu leggja allt kapp á að fylgja Brasilíu upp úr riðlinum og skyldi enginn afskrifa Serbana. Lykilmenn liðsins eru flestir sóknarþenkjandi og þar ber helst að nefna Aleksandar Mitrovic, sem hefur reynst Serbum ómetanlegur enda búinn að skora 50 mörk í 76 landsleikjum. Aðrir sóknarmenn liðsins eru einnig feikilega öflugir, þeir Dusan Vlahovic og Luka Jovic. Dusan Tadic er frábær leikstjórn- andi og þá er miðjumaðurinn Sergej Milinkovic-Savic afar skemmtilegur leikmaður. Serbía tryggði sér beint sæti á HMmeð því að vinna A-riðil undankeppninnar í Evrópu án þess að tapa leik og skilja þar með Portúgal eftir í öðru sæti, sem þýddi umspil fyrir þá síðarnefndu. Serbneska liðið spilar skemmti- legan sóknarbolta þar sem það skor- ar talsvert af mörkum og fær ekki sérlega mörg á sig, sem er lykilatriði þegar kemur að því að komast upp úr riðlinum. Serbía tekur nú þátt á heims- meistaramóti í þriðja sinn sem sjálf- stæð þjóð en samtals í tólfta sinn þegar þátttaka fyrrum Júgóslavíu og síðar Serbíu og Svartfjallalands er tekin með í reikninginn. Sex sinnum hefur liðið komist upp úr riðlinum og bestum árangri náði Júgóslavía á HM 1962 er liðið hafn- aði í fjórða sæti. Sviss Sviss mætir til leiks með reynt lið sem fékk vart á sig mark í undankeppninni í Evrópu, þar sem liðið tryggði sér beint sæti á HMmeð því að vinna C-riðil án þess að tapa leik. Þannig skákuðu Svisslendingar Evrópumeisturum Ítala, sem féllu úr leik í umspili og verða því ekki með í Katar. Sviss fékk aðeins á sig tvö mörk í átta leikjum í undankeppninni og því ljóst að við ramman reip verður að draga gegn liðinu, sem mun Sjötti titillinn til Brasilíu? AFP/Carl de Souza Stjarna Neymar er skærasta stjarna Brasilíu, sem er sigurstrangleg á HM. lGnægð heimsklassaleikmannalSerbía og Sviss líklegust í 2. sætið G-RIÐILL Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is sannarlega gera tilkall til þess að komast upp úr riðlinum. Reynsla liðsins mun koma sér vel þar sem Granit Xhaka, Xherdan Shaqiri, Ricardo Rodríguez, Fabian Schär, Yann Sommer og Haris Se- ferovic hafa allir tekið þátt á fjölda stórmóta. Manuel Akanji er þá lykilmaður í vörninni og hinn ungi Noah Okafor er bráðskemmtilegur sóknarmaður sem verður gaman að fylgjast með. Sviss tekur nú þátt á heimsmeist- aramóti í tólfta sinn og hefur níu sinnum komist upp úr riðli sínum. Lengst hefur liðið komist í átta liða úrslit og það þrívegis. Síðast gerðist það þó á HM 1954 á heimavelli. Kamerún Kamerúnska liðið er fyrir fram talið það slakasta í riðlinum en aldrei skyldi vanmeta Afríkuþjóðirn- ar og þá sérstaklega ekki Kamerún, sem hafnaði í þriðja sæti í Afríku- keppninni á síðasta ári. Í undankeppninni hafði Kamerún betur gegn sterkum liðum til þess að tryggja sætið á HM. Þar skákaði liðið Fílabeinsströndinni í D-riðlin- um og vann svo Alsír í umspili um HM-sætið. Mikið mun mæða á fyrirliðan- um og mesta markaskoraranum, Vincent Aboubakar, og sömu sögu er að segja af Eric Maxim Chou- po-Moting. Liðið er með fjölda góðra sóknar- manna til viðbótar, þar á meðal Bryan Mbeumo og Karl Toko Ekambi, og þá eru markvörðurinn André Onana og miðjumaðurinn André-Frank Zambo Anguissa algjörir lykilmenn. Varnarleikurinn þarf að vera í lagi líkt og hann var í undankeppninni en andstæðingar Kamerúns á HM eru þó enn sterkari en í undankeppninni og því má lítið út af bregða ætli liðið sér upp úr riðlinum. Kamerún tekur nú þátt á heims- meistaramóti í áttunda sinn og hefur aðeins einu sinni komist upp úr riðlinum. Það var á HM 1990 þegar liðið komst í 8-liða úrslit, sem er það lengsta sem Afríkuþjóð hefur komist á mótinu. Olísdeild karla Valur – Stjarnan ...................................... 35:29 Staðan: Valur 10 9 0 1 332:281 18 Fram 9 5 3 1 269:261 13 Afturelding 9 5 2 2 263:244 12 FH 9 5 2 2 258:255 12 Stjarnan 10 4 3 3 295:285 11 ÍBV 8 4 2 2 276:237 10 Selfoss 9 4 1 4 270:273 9 KA 9 2 2 5 252:267 6 Grótta 7 2 1 4 199:198 5 ÍR 9 2 1 6 251:309 5 Haukar 8 2 1 5 228:231 5 Hörður 9 0 0 9 262:314 0 Grill 66-deild karla Víkingur – Þór.......................................... 31:27 Selfoss U – HK......................................... 19:38 Fjölnir – Kórdrengir ............................... 38:19 Staða efstu liða: HK 7 6 1 0 240:178 13 Valur U 5 4 1 0 148:131 9 Fjölnir 6 3 1 2 190:178 7 Víkingur 7 3 1 3 209:210 7 KA U 6 2 2 2 188:186 6 Grill 66-deild kvenna Afturelding – Valur U............................. 41:22 ÍR – Grótta............................................... 26:20 Staða efstu liða: ÍR 5 4 1 0 140:98 9 Grótta 6 4 0 2 171:147 8 Afturelding 5 3 1 1 143:118 7 FH 5 3 0 2 126:126 6 Víkingur 5 2 0 3 135:135 4 EM kvenna Undanúrslit: Noregur – Frakkland........................... 28:20 Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs. Danmörk – Svartfjallaland .................... 27:23 Noregur og Danmörk mætast í úrslitaleik í Ljubljana á morgun og Svartfjallaland og Frakkland mætast í leik um þriðja sætið á sama stað á morgun. Leikur um 5. sætið: Svíþjóð – Holland..................................... 37:32 Þýskaland B-deild: N-Lübbecke – Balingen ....................... 26:23 Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk fyrir Balingen og Daníel Þór Ingason 1. Frakkland Aix – Dunkerque ................................... 25:28 Kristján Örn Kristjánsson lék ekki með Aix vegna meiðsla. Ivry – Nimes ............................................ 24:31 Darri Aronsson lék ekki með Ivry vegna meiðsla. Séléstat – Chambéry............................. 24:31 Grétar Ari Guðjónsson var allan tímann á bekknum hjá Séléstat. Svíþjóð Helsingborg – Guif ............................... 29:32 Ásgeir Snær Vignisson skoraði ekki fyrir Helsingborg. Austurríki Alpla Hard – Aon Fivers...................... 27:28 Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. Belgía B-deild: Lommel – Genk U23 .................................. 2:1 Kolbeinn Þórðarson kom inn á hjá Lommel á 57. mínútu. Vináttulandsleikir karla Kamerún – Panama ..................................... 1:1 Belgía – Egyptaland..................................... 1:2 Barein – Serbía ............................................. 1:5 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Úlfarsárdalur: Fram – KA................... L16.15 Ásvellir: Haukar – ÍBV......................... L17.30 Hertz-höll: Grótta – Hörður ............... L18.30 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Úlfarsárdalur: Fram – ÍBV....................... L14 Set-höll: Selfoss – Stjarnan ...................... L16 Origo-höll: Valur – KA/Þór....................... L16 Ásvellir: Haukar – HK.............................. L20 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Úlfarsárdalur: Fram U – Víkingur.......... S16 Kórinn: HK U – Fjölnir/Fylkir ............ S16.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Ásvellir: Haukar – ÍR............................ S18.15 Meistaravellir: KR – Valur.................... S19.15 Smárinn: Breiðablik – Njarðvík ......... S20.15 1. deild kvenna: Hveragerði: Hamar/Þór – KR.................. L17 ÍSHOKKÍ Úrvalsdeild karla, Hertz-deildin: Akureyri: SA – Fjölnir.......................... L16.45 SUND Íslandsmeistaramótið í 25 metra laug hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í gær og lýkur á morgun. Noregur leikur enn og aftur til úrslita Noregur og Danmörk mætast í Norðurlandaslag í úrslitum Evrópumóts kvenna í handbolta á morgun, eftir sigra í undanúrslit- um í Ljubljana í gær. Noregur vann 28:20-sigur á Frakklandi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en norska liðið var mun sterkara í þeim seinni og var sigurinn öruggur. Noregur er ríkjandi Evrópumeistari og leikur því í úrslitum annað mótið í röð og í þrettánda sinn alls. Þá er norska liðið á leiðinni í sinn 25. úr- slitaleik á stórmóti. Nora Mørk skoraði átta mörk fyrir Noreg og Stine Oftedal gerði sjö. Silje Solberg varði 14 skot í markinu. Grâce Deuna skoraði sjö fyrir Frakkland og Chloé Val- entini skoraði fjögur. Danmörk vann 27:23-sigur á Svartfjallalandi í fyrri undanúr- slitaleiknum. Danir voru skrefinu á undan nánast allan tímann og héldu Svartfellingum nokkrum mörkum frá sér stærstan hluta seinni hálfleiks. Enna Friis skoraði sjö mörk fyrir Danmörk og Mie Højlund bætti við sex. Ðurðina Jaukovic og Itana Grbitc skoruðu sjö mörk hvor fyrir Svartfjallaland. Norska liðið er hokið af reynslu í úrslitaleikjum en Danmörk er á leiðinni í sinn fyrsta úrslitaleik í 18 ár. Danmörk, sem hefur í þrígang orðið Evrópumeistari, lék síðast til úrslita í Ungverjalandi 2004, einmitt gegn Noregi. Þá tryggði Svíþjóð sér fimmta sæti mótsins með 37:32-sigri á Hollandi. Nathalie Hagman var markahæst í sænska liðinu með níu mörk. AFP/Jure Makovec Sigursæll Þórir Hergeirsson fagnar á hliðarlínunni í gærkvöldi. Fimmstiga forskot Valsmanna Valur náði fimm stiga forskoti á toppi Olísdeildar karla í hand- bolta með 34:28-sigri á heimavelli gegn Stjörnunni í gærkvöldi. Tókst Valsmönnum að snúa taflinu sér í vil í seinni hálfleik, eftir að Stjarnan hafði verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og verið þremur mörkum yfir í leikhléi, 19:16. Valsmenn voru hins vegar mun betri í seinni hálfleik, voru snöggir að jafna í 19:19, komast yfir í 20:19 og átti Stjarnan fá svör eftir það. Valur er með 18 stig í toppsætinu á meðan Stjarnan er í fimmta sæti með ellefu stig. Benedikt Gunnar Óskarsson lék best fyrir Val og skoraði tíu mörk. Eldri bróðir hans Arnór Snær Óskarsson gerði sex. Björgvin Páll Gústavsson varði ellefu skot í markinu, tíu þeirra í seinni hálfleik. Björgvin Hólmgeirsson skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna og Arnór Freyr Stefánsson varði 15 skot í markinu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Benedikt Gunnar Óskarsson skýtur að marki Stjörnunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.