Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
produced by REPOSADO, THE MEDIAPRO STUDIO and BÁSCULAS BLANCO, A.I.E.
Funded by the Spanish Government through INSTITUTO DE LA CINEMATOGRAFÍA Y DE LAS ARTES AUDIOVISUALES with the participation of Crea SGR, RTVE and Orange in collaboration with the TV3 and MK2 partnership.
Assistant Director ANTONIO ORDÓÑEZ casting by LUIS SAN NARCISO make-up and hairstyling by ALMUDENA FONSECA, MANOLO GARCÍA costume design by FERNANDO GARCÍA special effects’supervisor by MIRIAM PIQUER direct sound by IVÁN MARÍN
sound design by PELAYO GUTIÉRREZ mixing by VALERIA ARCIERI editing by VANESSA MARIMBERT production director LUIS GUTIÉRREZ art director CESAR MACARRÓN original music by ZELTIA MONTES photography by PAU ESTEVE BIRBA
executive production PATRICIA DE MUNS, PILAR DE HERAS, LAURA FDEZ. ESPESO, EVA GARRIDO, MARISA FDEZ. ARMENTEROS producers FERNANDO LEÓN DE ARANOA, JAUME ROURES, JAVIER MÉNDEZ
written and directed by FERNANDO LEÓN DE ARANOA
a film by
FERNANDO
LEÓN DE ARANOA
MANOLO SOLO ALMUDENA AMOR ÓSCAR DE LA FUENTE SONIA ALMARCHA FERNANDO ALBIZU TARIK RMILI RAFA CASTEJÓN CELSO BUGALLO
Película Pendiente de
Calificaciónreposadoproducc ionesc inematográ ficas
uccionescinematográficas
prod
producci
“JAVIER BARDEM GIVES A
POWERHOUSE PERFORMANCE”
THE AUSTRALIAN
“SLICKLY ENTERTAINING”
THE HOLLYWOOD REPORTER
(EL BUEN PATRÓN)
THE RECORD BREAKING 20 TIME
GOYA AWARD NOMINEE
INCLUDING WINS FOR
BEST FILM, BEST DIRECTOR,
BEST LEAD ACTOR &
BEST ORIGINAL SCREENPLAY
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
84%
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
91%
86%
Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið
með Kolrössu krókríðandi en sveitin kefl-
víska bar sigur úr býtum í Músiktilraunum
árið 1992 með miklum glæsibrag. Sveitin varð
fljótlega ein helsta neðanjarðarrokksveit landsins
og leiddi þá bylgju á tíunda áratugnum ásamt
sveitum eins og Botnleðju, Mausi og Ensími.
Elíza hefur starfað við tónlist allar götur síðan
og farið víða í tónlistarsköpun
sinni og „samið allt frá pönki
til óperu til Eurovision-laga
með smá stoppi á Eyjafjalla-
jökli og nú síðast Fagra-
dalsfjalli!“, eins og segir í
glettinni fréttatilkynningu.
Hún starfaði erlendis lengi
og hefur gefið út fimm plötur með Kolrössu/
Bellatrix, eina með hljómsveitinni Skandinaviu
og fjórar sólóplötur til þessa. Síðasta breiðskífa
Elízu, Straumhvörf, hlaut m.a tvær tilnefningar
til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Straum-
hvörf er heimakær, grunduð plata, hvar Elíza
lék sér m.a. að andstæðum. Um hana sagði ég
á vettvangi RÚV: „Þannig rúllar platan, Elíza
leyfir alls kyns tilfinningum að streyma fram og
skiptast á gáskafull, orkurík lög og harmrænar
ballöður. Platan fer upp og niður – eins og lífið
sjálft. Textarnir eru einlægir, en líka fyndnir og
grallarakenndir – líkt og söngkonan.“
Platan nýja inniheldur tólf frumsamin lög og
stjórnaði Elíza upptökum á plötunni ásamt því
að syngja, spila á fiðlu, gítar, bassa, píanó og uku-
lele. Gísli Kristjánsson hljóðblandaði plötuna og
spilaði á gítar, bassa, trommur og hljómborð og
Simon Davis spilaði á píanó, hljómborð og gítar.
Njal Frode Lie hljómjafnaði.
Elísa sagði pistilritara að hún hefði viljað leyfa
plötunni að flæða dálítið óheftri áfram, gefa
lögunum rými og hún hafi t.d. elskað að „fiðlast
svolítið á plötunni.“ Hljóðfæraleikur er afslappað-
ur og lausbeislaður og hún spilaði sjálf á gítara,
bassa, ukulele og píanó.
„Icebergs“ opnar plötuna, lag með flott og
öruggt drif og undir áhrifum frá Sandy Denny
eins og Elíza útskýrði fyrir mér en hún var svo
góð að hleypa mér inn í pælingar sínar um hvert
og eitt lag. Þannig er „Silverlining“ afar áhrifa-
ríkt og fallegt, „lagið sem bjargaði lífi mínu, kom
til mín þegar ég hélt að ekkert væri eftir og blés
mér kjark í brjóst.“ Það heyrist líka svo ofsa vel
en Elíza barðist við krabbamein fyrir nokkrum
misserum og hafði betur. Lögin koma svo eitt af
öðru og eru með alls kyns sniði, ekki ósvipað og
síðast. „Maybe Someday“ er ærsla- og gleðiríkt á
meðan „Wonder Days“ er innilegt og umvefjandi.
„Ósýnileg“ er frábært og er m.a. innslag í
yfirstandandi – og eilífa – baráttu fyrir kynjajafn-
rétti. Talað er um að taka pláss, færa sig ekki og
þessi lína er góð: „Þú mátt alveg vanmeta mig
/ En hjarta mitt er ofurafl.“ Eðlilega koma upp
hugrenningatengsl við Kolrössu krókríðandi
árið 1992 þegar þær, unglingar, tóku pláss svo
um munaði, gáfu feðraveldinu löngutöngina og
rokkuðu sig inn í tónlistarsögu landsins með
ógleymanlegum töffaraskap.
Þrjú síðustu lögin lýsa ágætlega fjölskrúðug-
heitunum hérna. „Fagradalsfjall (You’re So
Pretty)“ er stórgóð smíð og eftirminnileg,
„Eldfjallaslagari númer tvö, en ekki hvað?,“ segir
Elíza mér og hlær. „Edge of Nowhere“ er gott
dæmi um þennan háttfrjálsa, styrkjandi anda
sem leikur um plötuna og „Greatest Love Story
Untold“ er „vampíruballaða“ samkvæmt höfundi,
hvar ástin sigrar allt – meira að segja tímann.
Allt í allt vel heppnað verk og stæðilegt frá Elízu
og mér finnst þessar tvær síðustu plötur hennar
svo fínar eitthvað. Yfir þeim er mild fegurð
saman með sátt og æðruleysi, plötur sem er bara
hægt að knýja fram er reynslan er farin að hafa
sitt að segja.
Elíza lýsir Wonder Days sem mjög persónulegu
verki eða eins og fram kemur í fréttatilkynningu:
„Tónlistin bjargaði mér þegar ég hélt ég hefði
ekkert meira að gefa. Hún veitti mér kjark og
huggun og dró mig af stað. Það er ómetanleg gjöf
að geta samið tónlist þegar maður er að jafna
sig eftir erfið veikindi, í einangrun í miðju Covid,
ein úti í sveit! Vonandi talar hún til einhvers sem
þarf á því að halda.”
Fram undan er tónleikahald þar sem platan
verður flutt með hljómsveit og órafmagnað.
Hjartað er ofurafl
Flæðandi Fimmta sólóplata Elízu Newman kallast Wonder Days.
Vel heppnað verk og stæðilegt
frá Elízu og mér finnst þessar
tvær síðustu plötur hennar
svo fínar.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Wonder Days er ný plata
eftir Elízu Newman. Um er að
ræða fimmtu sólóplötu söng-
konunnar sem gerði garðinn
frægan hér áður fyrr með Kol-
rössu krókríðandi/Bellatrix.
Börn flytja tónlist
eftir J.S. Bach
„Bach og börn-
in“ er yfirskrift
tónleika sem
verða í Norður-
ljósasal Hörpu
á morgun,
sunnudag, kl.
16. Fram koma
Drengjakór
Reykjavíkur,
Stúlknakór-
inn Graduale
Futuri og strengjasveitin Íslensk-
ir strengir. Einnig einsöngvararn-
ir Þóra Einarsdóttir og Þorsteinn
Freyr Sigurðsson.
Börnin syngja lög eftir J.S.
Bach og Íslenskir strengir leika
strengjaverk eftir Bach í bland
við lög eftir íslensk tónskáld.
Meistarinn Johann
Sebastian Bach
Flytja verk sem
marka uppbrot
Nordic Affect-hópurinn heldur
áfram vetrartónleikaröð sinni í
Mengi í kvöld, laugardag, kl. 21.
Grafísk verk og verk sem marka
uppbrot í rými eru í fókus á
tónleikunum en þeir fara fram
undir yfirskriftinni „Nothing
Breaking“. Flutt verður verk
eftir bandaríska trommuleikar-
ann og listamanninn Corey Fogel
sem hefur skapað sér nafn fyrir
grafísk verk. Þá verður flutt ný
útgáfa af „Nothing Breaking /
Necessary Places“ eftir Juliönu
Hodkinson sem samið hefur verið
fyrir flutning í Mengi. Að endingu
mun Nordic Affect frumflytja á
Íslandi grafíska verkið „streng-
ur“ eftir Höllu Steinunni Stefáns-
dóttur sem var skapað af gömlum
girnistrengjum, bleki og vindi í
Suður-Svíþjóð.
Ljósmynd/Eva Schram
Flytjendurnir Nordic Affect-hópurinn
hefur hlotið margvíslegt lof.