Morgunblaðið - 10.12.2022, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
Ljósmynd/Landsbjörg
Aukið öryggi sjófarendaer jólagjöf ársins 2022
Ekki verður hjá því komist að þeir einstak-
lingar sem sækja sjóinn leggi sig í hættu sem
við á landi þurfum ekki að búa við. Það er því
mikil blessun að búa í landi þar sem finnast
manneskjur svo óeigingjarnar að þær eru reiðu-
búnar í öllum veðrum og öllum aðstæðum að
koma samborgurum sínum til hjálpar.
Nú stendur yfir endurnýjun á öllum björgunar-
skipaflota aðildarfélaga Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og er það stærsta fjárfestingar-
verkefni samtakanna frá upphafi, en kostnað-
urinn hleypur á u.þ.b. þremur milljörðum króna.
Ríkissjóður hefur vissulega lagt einhverja aura í
púkkið til að endurnýja flotann, en það er langt
frá því að duga. Það veltur því á góðvilja fyrir-
tækja og einstaklinga að tryggja fjármögnunina.
Í áraraðir hafa Íslendingar getað reitt sig á
sjómennina sem séð hafa þjóðarbúinu fyrir
gjaldeyri. Nú er kominn tími til að endurgjalda
greiðann. Styðjum við bakið á björgunarsveitun-
um, hvort sem er með flugeldakaupum eða
beinum styrkjum. Gefum gjöf sem getur vernd-
að lífið sjálft. Gefum sjómönnum aukið öryggi í
jólagjöf. gso@mbl.is
10.12.2022
Ljósmynd/Þórkatla Albertsdóttir
6
Margrét Kristín Pétursdóttir
segir starfið í sjávarútvegi verða
skemmtilegra með hverjum degi.
Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands
26
Landhelgisgæslan hefur kappkostað að nýta sér tækni-
lausnir sem í boði eru á sviði eftirlits og löggæslu, að
sögn Georgs Lárussonar.
12
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir segir
skort á innviðum á Vestfjörðum
farinn að standa frekari vexti eldis
fyrir þrifum.
Ljósmynd/Havforskningsinstituttet
28
Vísindamönnum tókst að fækka laxalúsum um
62% á hverjum fiski með því að beina fiskinum
undan lúsinni en ekki lúsinni undan fiskinum.
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Auglýsingar
Bjarni Ólafur Guðmundsson
daddi@k100.is
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Prentun
Landsprent ehf.
10 | 12 | 22
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
8
Halldór Gústaf og Theodór
Hrannar stefndu ungir á
sjóinn og eru báðir vélstjórar
og tvíburar í þokkabót.