Fréttablaðið - 10.01.2023, Page 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
KYNN INGARBL
AÐALLT
ÞRIÐJUDAGUR 10. janúar 2023
Andrea átti frábæru gengi að fagna á síðasta ári og var á dögunum útnefnd íþróttakona Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sigursælasta hlaupakona landsins
Andrea Kolbeinsdóttir, hlaupakona úr ÍR, er sigursælasta hlaupakona landsins. Hún gerði
sér lítið fyrir og vann öll þau 25 hlaup sem hún tók þátt í á Íslandi á nýliðnu ári og að auki
bar hún sigur úr býtum í Fossavatnsgöngunni sem er stærsta skíðagöngukeppni á Íslandi. 2
Margir reyna að finna nýtt áhugamál
á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Nú þegar nýja árið er gengið í garð,
jólin liðin og hversdagsleikinn
tekinn við eru margir farnir að
huga að því að gera einhvers konar
breytingar á lífi sínu, stórar eða
litlar. Líkamsræktarstöðvar fyllast
því fólk ætlar að standa við ára-
mótaheitið og taka heilsuna í gegn.
Gönguhópar spretta upp eins og
gorkúlur og auglýsingar dynja á
okkur um hin og þessi spennandi
námskeið. Það er ekki bara heilsan
sem fólk vill taka föstum tökum á
nýju ári, margir vilja líka finna sér
nýtt og skemmtilegt áhugamál til
að auðga lífið.
Af nægu að taka
Það skortir ekki framboðið af
námskeiðum núna í janúar og
sums staðar er jafnvel boðið upp
á ókeypis prufutíma, áður en
ákvörðun er tekin um framhaldið.
Í kvöld er til dæmis hægt að skella
sér í ókeypis prufutíma í sóló-salsa
hjá Salsa Iceland. Móar studio
bjóða líka upp á ókeypis prufu-
tíma í vikunni svo fleiri dæmi séu
nefnd. Á bókasöfnunum er líka
alltaf nóg af viðburðum og nám-
skeiðum þar sem hægt er að læra
eitthvað nýtt, eins og að búa til
barmmerki, taka upp hlaðvarps-
þátt og sauma á saumavél. Af nægu
er að taka og um að gera að stíga út
fyrir þægindarammann á árinu. n
Nýtt upphaf
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20
Maxímalismi
Pussy Riot
Musk sýnir lítinn
áhuga á Tesla
6 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R | Þ R I ð J U D A g U R 1 0 . J A N ú A R 2 0 2 3
íþróttir | | 17
tímamót | | 18
menning | | 22 Fréttir | 6
|
LíFið | | 26
Beðið eftir Harry
Úr jarðfræði
í leirlist
Við gefum
Ómari
sviðið
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
– FELAST Í UPPLIFUN TIL AÐ NJÓTA
TÖFRAR
ÓSKASKRÍNS
Líklega mun Grafarvogurinn ekki þiðna í bráð en áfram er spáð frekar köldu veðri og svo tekur fimbulkuldi við um helgina þegar tveggja stafa frost verður
aftur. Þessi vegfarandi lét hálkuna ekki á sig fá og skellti sér út með hundinn til að fá smá ferskt loft í lungun. FréttabLaðið/VaLLi
Trúverðugleiki frekari
sölu undir að sögn þing-
manns stjórnarandstöðunnar.
Grunur um að starfsmenn
Íslandsbanka hafi framið brot.
bth@frettabladid.is
VIðSkIPtI Sáttaferli er hafið milli
Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins
(FME) vegna hugsanlegra lögbrota
Íslandsbanka þegar ríkið seldi 22,5
prósenta hlut í bankanum í mars.
FME hefur heimild til að leggja
stjórnvaldssektir á bankann.
Fram kom í kjölfar hins umdeilda
útboðs að starfsmenn bankans voru
meðal kaupenda í söluferlinu, lok-
uðu tilboðsfyrirkomulagi. Athuga-
semdir voru gerðar um það atriði í
skýrslu Ríkisendurskoðunar.
„Með öllum fyrirvörum þar sem
upplýsingar eru takmarkaðar á
þessu stigi tel ég afar mikilvægt að
stjórnsýslan standi sig í þessu máli.
Það er ekki síður mikilvægt að við-
brögð bankans verði góð,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar.
Hún segir mikið í húfi fyrir
Íslandsbanka en einnig fyrir ríkis-
sjóð og í raun samfélagið allt. Frek-
ari sala velti á að hægt verði að skapa
trúverðugleika sem hafi misfarist
hjá ríkisstjórninni við sölu bankans.
Fjármálaeftirlit Seðlabankans
sendi í gær út tilkynningu um að
Íslandsbanki kynni að hafa brotið
gegn ákvæðum laga og reglna um
Íslandsbanka og starfsemi hans við
söluna. Fram kemur í tilkynningu
bankans til Kauphallarinnar að
stjórnendur taki frummati FME í
málinu alvarlega.
Kristrún Frostadóttir, formaður
Samfylkingarinnar, sem hefur gagn-
rýnt sleifarlag við söluna harðlega,
sagðist í gærkvöld ætla að bíða með
að tjá sig uns hún hefði af lað sér
meiri upplýsinga.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra og Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra svöruðu ekki
skilaboðum þegar leitað var eftir
áliti þeirra rétt fyrir prentun Frétta-
blaðsins í gærkvöld. n
Bankastarfsmenn grunaðir
um lögbrot við eignasöluna
FME hefur heimild til
að leggja stjórnvalds-
sektir á bankann.
ORkUmáL Um helmingur Íslendinga
styður uppbyggingu vindmyllu-
garða samkvæmt nýrri könnun
Prósents fyrir Fréttablaðið en fjórð-
ungur er á móti. Þá höfðu 26 prósent
ekki skoðun á málefninu.
Guðlaug u r Þór Þórða r son,
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra, segist ekki festa sig við neinar
aðferðir þegar kemur að því að búa
til græna orku.
„Við þurfum að vanda okkur
og gæta jafnvægis en á sama tíma
liggur okkur á.“ Stjórnvöld eru nú að
skoða hvernig best sé að hafa fyrir-
komulag vindorkuvera. Sjá Síðu 8
Helmingur vill fá
vindmyllugarða
Guðlaugur Þór
Þórðarson, um-
hverfis-, orku-
og loftslagsráð-
herra