Fréttablaðið - 10.01.2023, Blaðsíða 16
skemmtilega á óvart að vera valin
íþróttakona Reykjavíkur.
„Það var mikill heiður að hljóta
þennan titil og hann kom mér
skemmtilega á óvart. Þetta er
stærsta viðurkenning sem ég hef
fengið. Þarna eru allar íþrótta-
greinar undir og það að hafa
skákað öllum þeim frábæru
íþróttakonum sem eru í Reykja-
vík var frábært fyrir mig,“ segir
Andrea.
Undir lok síðasta árs kusu Sam-
tök íþróttafréttamanna íþrótta-
mann ársins. Andrea komst ekki á
blað í þeirri kosningu og fékk ekk-
ert stig en þess má geta að skíða-
göngumaðurinn Snorri Einarsson,
sem var kjörinn íþróttamaður
Reykjavíkur, fékk 43 stig í kosn-
ingunni á íþróttamanni ársins
og endaði í 13.-14.sæti. Andrea er
spurð að því hvort það hafi ekki
verið svekkjandi að fá ekki stig.
„Ég hef svo sem ekkert verið
að hugsa út í þetta né láta þetta
pirra mig. Ég veit að fólk svona í
kringum mig var eitthvað ósátt og
fannst að ég ætti að vera á listanum
þar sem ég var kosin íþróttakona
Reykjavíkur. Ég veit að bolta-
greinarnar fá meiri athygli heldur
en hlaupin að öllu jöfnu,“ segir
hlaupakonan.
Andrea er ekki bara frábær
hlaupari heldur hefur hún af og
til skellt sér á gönguskíðin og stóð
uppi sem sigurvegari í Fossavatns-
göngunni á Ísafirði á síðasta ári
þar sem hún gekk 50 kílómetra á
rúmum þremur klukkustundum.
„Ég ákvað fyrir rúmu ári síðan að
prófa að keppa á gönguskíðum. Ég
hafði alltaf farið á gönguskíði með
fjölskyldunni í páskafríum frá því
ég var lítil og bjó í Noregi. Það voru
margir mjög hissa þegar ég sagðist
ætla að leggja aðeins meiri kraft í
gönguna en ég vildi prófa og það
var klárlega annar hápunkturinn á
liðnu ári að vinna Fossavatnsgöng-
una,“ segir Andrea, sem reiknar
með að gera meira af því að stunda
skíðagöngu.
„Ég er komin í æfingahóp á
gönguskíðum og er að æfa undir
stjórn Einars Ólafssonar. Ég er
núna að æfa skíðagöngu 2-3
sinnum í viku með hlaupunum og
planið er að keppa meira í göng-
unni. Ég ætla að byrja árið á að
keppa aðeins á gönguskíðum, sem
á síðan eftir að hjálpa mér helling í
hlaupunum,“ segir Andrea.
Hvernig leggst nýja árið í þig og
hver eru markmiðin?
„Ég hlakka til að gera enn þá
betur á þessu ári og veit að ég á
helling inni. Eina markmiðið sem
ég er búin að skrifa niður á blað
eins og er, er að hlaupa Laugaveg-
inn á undir 4:30 klukkustundum.
Áður en ég einblíni 100 prósent á
utanvegahlaupin eins og ég sé fyrir
mér að ég muni gera í framtíðinni
langar mig að bæta tímana mína
í 3.000 metra hindrunarhlaupi og
5.000 metra á hlaupabrautinni
og svo stefni ég líka á að komast í
hratt maraþon erlendis einhvern
tímann á næstunni. Það eru fullt af
skemmtilegum hlaupum í sumar,
bæði hérna heima en líka til dæmis
heimsmeistaramótið í utanvega-
hlaupum í Austurríki og Evrópu-
bikarinn í Póllandi,“ segir Andrea,
sem á þessum tíma árs segir það
hressandi að fara út að hlaupa
þó að það sé 10 stiga frost eða 10
metrar á sekúndu. Þó skelli hún sér
oftast á hlaupabrettið einu sinni í
viku með góða tónlist í eyrunum.
Er sinn eigin þjálfari
Andrea leggur stund á nám í
læknisfræði og er á þriðja ári en
grunnnámið tekur sex ár áður
en sérnám tekur við. En hvernig
skyldi henni ganga að æfa með
læknisfræðinni?
„Það hefur gengið vel en eftir að
metnaðurinn jókst í íþróttunum
viðurkenni ég að námið getur
stundum verið íþyngjandi og smá
stressandi. Þessi önn leggst samt
vel í mig þar sem hún fer að mestu
í BS-ritgerðarskrif, svo stefni ég á
að fara aðeins að æfa erlendis þar
sem ég þarf ekki að mæta í skólann
heldur get tekið tölvuna með
mér og skrifað hvar sem er.“ Hún
þakkar Yin jóga að hún sé meiðsla-
laus og í toppformi.
„Ég hef lært af þeim meiðslum
sem ég hef lent í og núna fer ég
reglulega í Yin jóga hjá systur
minni sem er jógakennari. Þetta
hefur gagnast mér ansi mikið hvað
skrokkinn varðar og þá er ég dug-
leg að fara í heita og kalda potta og
í gufubað. Ég hlusta rosalega vel á
líkamann og mér hefur aldrei liðið
jafn vel og í dag.“
Andrea er sinn eigin þjálfari og
hún segir að það henti sér mjög vel.
„Ég hef ekki haft neinn þjálfara í
tvö ár og mér finnst það gott. Ég
bý til mitt eigið æfingaplan og get
stýrt álaginu eins og ég vil og keppt
í öllu án þess að þjálfari segi mér
hvað ég á að gera. Þetta hentar mér
ansi vel.“ n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is,
s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Andrea fagnaði
sigri í Reykjavík-
urmaraþoninu
á þriðja besta
tíma kvenna frá
upphafi.
MYNDIR/AÐSENDAR
Andrea á fleygiferð í Fossavatnsgöngunni þar sem hún bar sigur úr býtum í 50 kílómetra skíða-
göngu. Hún er komin í æfingahóp á gönguskíðum þar sem hún æfir 2-3 sinnum í viku.
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Til að kóróna frábært íþróttaár
var Andrea útnefnd íþróttakona
Reykjavíkur þar sem hún tók á
móti viðurkenningu sinni í síðasta
mánuði.
Andrea, sem verður 24 ára gömul
í næsta mánuði, varð Íslands-
meistari í maraþoni þegar hún bar
sigur úr býtum í Reykjavíkurmara-
þoninu á þriðja besta tíma kvenna
frá upphafi. Hún vann Laugavegs-
hlaupið á nýju brautarmeti kvenna
og vann öll stærstu hlaupin hér á
landi. Andrea varð í 2. sæti í sterku
utanvegahlaupi í Sviss þar sem hún
hljóp 50 kílómetra fjallahlaup, sem
um leið var hennar fyrsta utan-
vegahlaup erlendis. Hún hafnaði í
21. sæti á heimsmeistaramótinu í
utanvegahlaupum sem haldið var í
Taílandi og hún er Íslandsmeistari
í 5 og 10 kílómetra götuhlaupi
ásamt 8 kílómetra víðavangshlaupi.
Andrea lauk svo árinu á viðeigandi
Þetta er
hundrað
prósent
besta
íþrótta-
árið mitt.
Það gekk
eiginlega
allt upp
hjá mér
og þetta
var bara
geggjað ár.
Andrea
Kolbeinsdóttir
hátt þegar hún kom fyrst í mark í
Gamlárshlaupi ÍR.
„Þetta er hundrað prósent besta
íþróttaárið mitt. Það gekk eiginlega
allt upp hjá mér og þetta var bara
geggjað ár. Þetta er fyrsta árið sem
ég er ekki að glíma við nein meiðsli
og það var markmið sem ég setti
mér fyrir árið til að eiga möguleika
á að standa mig vel og taka þátt
í öllum þessum hlaupum,“ segir
Andrea.
Hún segir Laugavegshlaupið og
Reykjavíkurmaraþonið hafa staðið
upp úr hjá sér á árinu 2022. Spurð
hvers vegna hún nefni þessi tvö
hlaup segir hún:
„Þetta eru stærstu hlaupin á
Íslandi á hverju ári. Það eru flestir
að taka þátt í þessum hlaupum og
flestir að fylgjast með þeim. Það
var því sérstaklega gaman að vinna
bæði þessi hlaup. Þetta var mitt
annað Laugavegshlaup og ég bætti
tímann minn og þar með brautar-
metið um 22 mínútur frá árinu
áður. Það var alveg geggjað hlaup
og allt sem gekk upp hjá mér í því.
Ég held að það hafi svona verið
hápunktur sumarsins hjá mér,“
segir Andrea og bætir við:
„50 kílómetra Wildstrubel-hlaup-
ið í Sviss í september var fyrsta
utanvegahlaupið mitt erlendis
og var mjög lærdómsríkt. Heims-
meistaramótið í Taílandi í nóvem-
ber þar sem ég keppti í 40 kílómetra
utanvegahlaupi var við erfiðustu
aðstæður sem ég hef hlaupið í, 30
stiga hiti og 2.400 metra hækkun.
Þá hjálpaði reynslan frá Sviss mikið
og undirbúningurinn hérna heima
þar sem ég endaði oft æfingadaginn
á 20-30 mínútna saunu fyrir hitaað-
lögun.“
Hennar stærsta viðurkenning
Andrea segir að það hafi komið sér
2 kynningarblað A L LT 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR