Fréttablaðið - 10.01.2023, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.01.2023, Blaðsíða 28
Maður er manns gaman og fólk með geðraskanir er ekkert öðruvísi hvað það varðar. Gunnar Jónsson Bara það eitt að opin- bera hugmyndina um að loka Vin hefur strax valdið kvíða og hugar- angri. Arnljótur Sigurðsson „Það væri sérlegur hrotta­ skapur að loka Vin,“ segir tónlistarmaðurinn Gunnar Jónsson. Velferðarráð Reykja­ víkurborgar tekur á morgun ákvörðun um örlög bata­ setursins Vinjar við Hverfis­ götu þar sem fólk í geðrænum vanda hefur lengi getað sótt félagsskap og fjölbreytta and­ lega upplyftingu. ninarichter@frettabladid.is toti@frettabladid.is „Hvers virði er félagsskapur?“ segja þeir Ólafur B. Thorsson, Arn­ ljótur Sigurðsson, Hörður Jónas­ son, Hjálmar Hrafn Sigurvaldason og Gunnar Jónsson og bæta við að þeir séu að spyrja fyrir Vin. Þeir segja áhyggjur af fyrirhug­ aðri lokun Vinjar í sparnaðarskyni hvíla þungt á mörgum og það sé uggur í mannskapnum fyrir úrslita­ stundina sem renni upp á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar á morgun. „Maður er manns gaman og fólk með geðraskanir er ekkert öðruvísi hvað það varðar,“ segir raftónlistar­ maðurinn Gunnar Jónsson Collider sem hefur starfað með fólki með geðraskanir í fjórtán ár. „Vin er félagsmiðstöð og þar kemur fólk til að spjalla saman, bera saman bækur sínar og þiggja og veita ráð og hvatningu frá jafningjum sínum.“ Sérlegur hrottaskapur Gunnar segir Vin einfaldlega vera ómetanlegt úrræði fyrir mjög við­ kvæman hóp. „Peningasparnað­ urinn af lokun verður enginn til lengri tíma litið því þetta mun valda þessum hópi gríðarlegu raski. Ég held til dæmis að lokun myndi auka álag á geðdeildir til muna, sem er sorglegt því Vin er miklu mann­ legra batterí, með fullri virðingu fyrir því erfiða starfi sem á þeim er unnið.“ Gunnar bendir einnig á að starfs­ fólkið í Vin sé frábært, starfsemin fjölbreytt og staðsetningin mjög heppileg vegna fjölda íbúðakjarna í miðbænum sem eru í göngufæri við Vin. Hann veltir síðan fyrir sér hvort borgaryfirvöld telji Vin ef til vill óþarfa því skjólstæðingar hafi sína íbúðakjarna. „Það er smá eins og að loka sundlaugum Reykjavíkur því það eru allir með sturtu heima hjá sér!“ Brúnin á honum þyngist síðan þegar hann segir starfsemi Vinjar hafa áþreifanlega aukið lífsgæði svo margra með lágmarks inn­ gripi. „Vin hefur líka tekist betur en nokkru öðru fyrirbæri að koma á tengingum á milli fólks með geð­ raskanir og hins almenna borgara, til dæmis með skákmótunum sínum. Að mínu mati væri lokun á Vin sérlegur hrottaskapur gagnvart þeim okkar sem minnst mega sín.“ Vin gerir kraftaverk Fjörugt skáklífið í Vin hefur ekki síst verið áberandi í starfseminni og þar hefur Ólafur B. Thorsson lengi verið í framvarðasveitinni. „Góður vinur getur gert kraftaverk og þegar geðraskanir verða æ ríkara vandamál í samfélagi manna þá er félagsmiðstöð þessi sannkölluð vin í eyðimörkinni. Þetta er í raun nánast eina opin­ bera stofnunin fyrir utan geðspítala sem sinnir þessum þjóðfélagshópi og er í algjörri sérstöðu hvað það varðar. Þarna geta einstaklingar mætt án nokkurra skuldbindinga eða fyrirvara og kynnst öðrum sem glíma við svipuð vandamál og þeir sjálfir. Fundið félagsskap og eignast vini,“ segir Ólafur og segist vonast innilega til þess að ákvörðuninni um að loka þessari lind í eyðimörk­ inni verði snúið við. „Það var hann Hrafn Jökulsson sem tók í spaðann á mér á sínum tíma og bauð mig velkominn. Hann sýndi mér að skákin gæti tengt fólk saman. Hann yrði mjög ósáttur við þessa lokun veit ég.“ Lífsnauðsynlegur staður Skáksveit Vinjar er áberandi í varn­ arbaráttunni og ætlar ekki að koma þegjandi og hljóðalaust að enda­ taflinu á morgun. „Ef maður hefði ekki þetta athvarf þá væri maður bara í vond­ um málum og myndi einangrast og veslast upp einn heima í þung­ lyndi,“ segir Hjálmar Hrafn Sigur­ valdason, sem er tíður gestur í Vin og ritari skákfélagsins. „Þarna er góður félagsskapur og góður andi í húsinu. Það er orðin rútína að fara þarna á hverjum degi og hitta fólk. Þarna kom ég inn í skákina sem er núna aðal­ áhugamálið mitt. Fyrir marga sem sækja Vin daglega er þetta lífsnauð­ synlegur staður. Ef Vin væri ekki til staðar, myndu margir þeirra sem sækja staðinn vera á geðdeild og það væri á endanum dýrara úrræði en að hafa opið í Vin.“ Hörður Jónasson, formaður Vinaskákfélagsins, tekur undir með Hjálmari. „Þessi starfsemi er engri lík og þjónustan sem þarna er veitt er bæði fjölbreytt og nauðsynleg. Það fer í raun eftir því hverjir koma þangað hvernig henni er háttað. „Hingað kemur fólk með geðrask­ anir, öryrkjar eða fólk sem er bara einmana heima hjá sér og vill tengj­ ast öðru fólki. Þarna er ekki verið að skikka þig í námskeið eða setja þér einhver heimaverkefni heldur eru allir velkomnir og vel tekið á móti þér, sama hver þú ert.“ Hann segir suma koma til þess að hittast og spjalla en aðrir vilji kannski taka í spil eða tef la. Þar sé einnig aðstaða til myndlistar auk þess sem húsnæðið hafi hýst höfuðstöðvar Vinaskákfélagsins frá því hann stofnaði það 2003 ásamt Hróksliðunum Róberti Lagermann og Hrafni heitnum Jökulssyni. „Borgin segir okkur að þetta sé gert í sparnaðarskyni. Þá spyrja ég og margir f leiri hvort þetta sé virki­ lega sá málaflokkur sem við eigum að vera að skera niður í. Og einnig hvort kostnaðurinn við að leggja starfsemi Vinjar niður muni ekki jafnvel aukast til muna í öðrum málaflokkum og auka álagið á heil­ brigðiskerfinu.“ Úlfslíki hins opinbera Arnljótur Sigurðsson, tónlistar­ maðurinn Kraftgalli, hefur lengi lag t Vinaskák félag inu lið og segist bæði hafa kynnst ótrúlega skemmtilegu fólki og því grettis­ taki sem skákin hefur lyft þar. „Þar fyrir utan fer þarna fram fjöl­ breytt starfsemi sem er greinilega hreinasta bjargræði fyrir sérdeilis viðkvæman hóp fólks. Starfsfólkið er yndislegt og stemningin frábær í þessu huggulega húsi sem er guðs­ gjöf fyrir samfélagið allt.“ Arnljótur bætir við að sér finnist skammarlegt að borgin skuli nú, í úlfsham, ætla sér að mása, blása og feykja þessu húsi um koll. „Bara það eitt að opinbera hugmyndina um að loka Vin hefur strax valdið kvíða og hugarangri hjá þeim sem hafa notið velvildar í þessu setri sem hefur gert kraftaverk fyrir svo marga, með svo litlum tilkostnaði.“ Þeir félagar fara hvergi leynt með að þeir og margir f leiri sem treysti á Vin kvíði morgundeginum og fundi velferðarráðs en þeir leyfi sér enn að vona að Reykjavíkur­ borg misk unni sig yfir starfsemi Vinjar og finni aðra lausn en að loka henni. Enda sé þetta hreinlega spurn­ ing upp á líf eða dauða fyrir mörg þeirra sem eigi við geðræn vanda­ mál að stríða og komist í samneyti við annað fólk í Vin. „Við sem sam­ félag hljótum að setja það í forgang að vernda okkar viðkvæmustu hópa og lokun Vinjar væri í algjörri andstöðu við þá hugsjón.“ n Hrottaskapur sem sparar borginni ekki neitt Þótt áhyggjur og kvíði vegna hugmynda um að loka Vin í sparnaðarskyni báru fastagestirnir sig vel í gær þegar Hjálmar Hrafn og Ólafur B. Thorsson fóru yfir stöðuna fyrir úrslitastundina á fundi vel- ferðarráðs borgarinnar í dag þar sem taka á afstöðu til sparnaðartillögunnar. Fréttablaðið/anton brink 24 Lífið 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðiðLífIÐ Fréttablaðið 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.