Fréttablaðið - 10.01.2023, Qupperneq 2
Ég er langyngsti gaur-
inn í greininni.
Daníel Már Magnússon,
skósmiður
Síðustu verk jólanna
Jólin eru búin. Síðasta verk þeirra sem hafa lifandi tré í stofunni er að farga þeim og koma til Sorpu. Góð stæða af áður skreyttum jólatrjám er núna á flestum
stöðvum Sorpu. Skrautið horfið og aðeins greinarnar eftir. Þegar Fréttablaðið bar að garði voru nokkrir að koma með úr sér gengin jólatré sem áður glöddu
börn og fullorðna með ilmi sem gervitré ná seint – þótt það sé reynt. Fréttablaðið/Valli
Yngsti skóari landsins hvetur
konur og karla til að kynna
sér iðngreinina sem glímir
við skort á fagfólki. Við-
skiptin margfölduðust eftir
hrun og hafa verið góð allar
götur síðan.
ser@frettabladid.is
ATVINNULÍF Skósmiðastéttin er
að eldast á Íslandi, en f lestir skó-
arar landsins eru að reskjast á sama
tíma og aðeins tveir nemar eru á
samningi í þessari gömlu og góðu
iðngrein.
Þetta þekkir yngsti skóari lands-
ins, Daníel Már Magnússon, sem
útskrifaðist fyrir sex árum og rekur
núna skóvinnustofuna Þráin skóara
á Grettisgötu 3. Hann var á sínum
tíma eini nemandinn í greininni –
og enda þótt núna sé einum fleiri á
samningi, að sögn Daníels Más, er
ótti íslenskra skóara sá að skortur
verði á fagmönnum í framtíðinni.
„Ég er langyngsti gaurinn í grein-
inni, en flestir kollega minna eru að
nálgast eftirlaunin, eða eru jafnvel
komnir yfir hefðbundinn vinnu-
aldur,“ segir skóarinn í neðanverðu
Skólavörðuholti.
„En það er gríðarlega mikið að
gera hjá okkur öllum, eftir því sem
ég best veit,“ bætir hann við og segir
að mestallt síðasta ár hafi verið sex
vikna bið eftir viðgerð á hans stofu.
„En ég hef með mikilli vinnu á
undanförnum vikum náð að stytta
biðtímann niður í tvær vikur, sem er
þolanlegra,“ segir hann.
Aðeins sex skóvinnustofur eru á
höfuðborgarsvæðinu, að sögn Daní-
els Más, og ein á Akureyri – og þar
með er það upptalið. „Það verður
spennandi að sjá hvað gerist á næstu
tíu árum eða svo og hvort við náum
hreinlega að manna þessar stofur
með fagfólki,“ segir Daníel Már.
Hann segir spurnina eftir skó-
viðgerðum hafa aukist að miklum
mun frá því eftir efnahagshrunið
og ekkert lát sé á kúnnum sem vilji
láta gera við skóna sína, eða eftir
atvikum annan leðurvarning eins
og handtöskur og belti.
„Við skóarar gerum allt sem hægt
er að gera og rétt rúmlega það,“ segir
Daníel Már og bendir á að margar
leiðir séu til þess að laga góða skó
sem best að fæti hvers og eins. „Og
það fer bæði betur með mann og
skó.“
Hann hvetur konur sem karla til
að kynna sér námið sem taki þrjú
ár, en þar af er hálft námið í læri hjá
meistara. „Ég mæli með þessu starfi.
Það er fjölbreytt og skemmtilegt,
enda er skóarinn í nánum og mikl-
um tengslum við kúnnann,“ segir
Daníel Már og rifjar upp af hverju
hann valdi fagið á sínum tíma.
„Ég var að leita að einhverju allt
öðru en einhæfu skrifstofustarfi þar
sem maður situr á sínum rassi inni
á sama kontórnum alla daga – og
niðurstaðan var þessi,“ segir sá skó-
ari landsmanna sem er hvað lengst
frá því að leggja skóna á hilluna. n
Skósmiðastéttin að eldast
og aðeins tveir í náminu
Daníel Már Magnússon útskrifaðist sem skósmiður fyrir sex árum og var þá
eini neminn greininni. Sex skóvinnustofur eru eftir í landinu. Fréttablaðið/DiDDi
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
jonthor@frettabladid.is
LögregLUmáL Lögreglan á Norður-
landi eystra bíður endanlegrar
krufningarskýrslu bæði í skotárás-
armálinu á Blönduósi og mann-
drápsmálinu á Ólafsfirði. Frá þessu
greinir Eyþór Þorbergsson, vara-
saksóknari hjá lögregluembættinu
á Norðurlandi eystra.
„Auðvitað er þetta áríðandi og
við viljum klára þetta, en við viljum
líka gera þetta almennilega,“ segir
hann um Blönduósmálið. Best væri
að fá endanlega krufningarskýrslu
áður en lokahnykkurinn í rann-
sókninni sé tekinn.
Í desember var greint frá því
að niðurstöður úr sýnum í mál-
inu hefðu borist frá Svíþjóð eftir
nokkuð langa bið. Þó ætti eftir að
þýða þær niðurstöður, þar sem þær
væru á sænsku, og í kjölfarið vinna
úr þeim. Eyþór telur að nú sé búið
að þýða þær.
Þá segir hann að í Ólafsfjarðar-
málinu sé enn beðið eftir niður-
stöðum frá Svíþjóð.
„Við rannsókn svona mála eru
tekin alls konar sýni og það getur
tekið nokkurn tíma að vinna úr
þeim,“ segir Eyþór. n
Bíða endanlegrar krufningarskýrslu
Tveir fundust látnir í heimahúsi
á Blönduósi eftir skotárás þar
snemma morguns.
bth@frettabladid.is
NáTTúrA Veginum um Ólafsfjarðar-
múla var í fyrsta skipti í vetur lokað
eftir að flóð féll við Sauðanes í gær.
Um fyrstu verulegu snjóf lóða-
hættuna í vetur er að ræða að sögn
Ólivers Hilmarssonar, sérfræðings í
ofanflóðum á Veðurstofunni.
Hættustigi var lýst yfir eftir flóðið
og veginum lokað svo enginn komst
í gegn. Vegalengdin milli Dalvíkur
og Ólafsfjarðar lengist um ríf lega
210 km meðan á lokun stendur.
„Það hefur verið mikil ofankoma og
töluvert eftir af veðrinu enn,“ segir
Óliver.
Að hans sögn er von á betri tíð í
þessum efnum. Hann brýnir þá sem
ferðast utan vega á Norðurlandi
til að fara varlega. „Þetta er fyrsta
snjóflóðaveðrið að segja má í vetur
og það sem er sérstakt er áberandi
veikleiki í snjónum fyrir norðan. Þar
hefur fallið talsvert mikið af flóðum
í fjalllendi og full ástæða að hvetja
fólk á vélsleðum og aðra sem eru á
fjöllum til að fara varlega.“ n
Ferðalangar utan
vega þurfa að gæta
ítrustu varúðar
Vélsleðafólk er hvatt til að fara að
öllu með gát um fjöll og firnindi.
2 Fréttir 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið