Fréttablaðið - 10.01.2023, Side 6
Tillaga Karenar Róberts-
dóttur um framtíð stjórnar
bílaframleiðandans Tesla
hefur vakið athygli vestan-
hafs. Virði Tesla er í frjálsu
falli og Elon Musk sýnir lítinn
áhuga.
kristinnhaukur@frettabladid.is
viðskipti Karen Róbertsdóttir,
íslenskur fjárfestir í bílafyrirtæk-
inu Tesla, hefur vakið þó nokkra
athygli vestanhafs fyrir tillögu sína
til hluthafafundar í maí. Hún vill að
fyrirtækið, sem hefur verið í frjálsu
falli undanfarið, móti sér stefnu um
stjórn til framtíðar þar sem framtíð
Elon Musk sé óljós.
„Mig langar til að setja pressu á
Tesla til að undirbúa stjórnenda-
skipti,“ segir Karen. „Tesla er ekki
búið að gera neitt til að undirbúa að
Elon Musk fari frá fyrirtækinu. Það
er mikil áhætta því það er enginn
sem mun augljóslega taka við af
honum.“
Karen hefur átt bréf í Tesla síðan
árið 2017 fyrir nokkur hundruð
þúsund dollara, eða nokkra tugi
milljóna króna, í gegnum eignar-
haldsfélagið Sumtris en hún starfar
sem hugbúnaðarverkfræðingur hjá
Isavia. „Virðið hefur verið að lækka
svakalega mikið.
Tesla er að hrapa,“ segir Karen.
Virði fyrirtækisins var rúmir 407
dollarar á hlut í nóvember árið
2021. Nú er það 113 dollarar. „Við
erum búin að tapa svakalega miklu
á Tesla en þetta er gott fyrirtæki,“
segir hún.
Bendir hún á að flestir bílafram-
leiðendur hagnist ekkert eða mjög
lítið á raf bílaframleiðslu í dag og
margir hreinlega tapi fé.
„Tesla er frábært fyrirtæki en
stjórnin er að drepa það og Elon
gerir ekki neitt,“ segir Karen en eig-
andinn hefur beint nær allri sinni
athygli að Twitter. Tillaga Karenar
um svokallaða lykilpersónuáhættu
(e. key person risk) hefur vakið þó
nokkra athygli vestanhafs. Hefur
meðal annars verið fjallað um hana
í dagblaðinu Los Angeles Times.
Hún segist vongóð um að til-
lagan verði tekin fyrir á fundinum
sem fram fer 16. maí næstkomandi.
Hún hafi fengið þau skilaboð frá
fyrirtækinu að tillagan uppfylli öll
skilyrði til þess að verða tekin fyrir.
Þó sé ekki loku fyrir það skotið að
fundin yrði einhver ástæða til að
hundsa hana.
Karen segist hafa heyrt af nokk-
urri gremju frá öðrum fjárfestum
varðandi fundinn en honum var
f lýtt um nokkra mánuði. Færri
hafi komið sínum tillögum til skila
en vildu. n
Tesla er frábært fyrir-
tæki en stjórnin er að
drepa það og Elon gerir
ekki neitt.
Karen Róberts-
dóttir, fjárfestir
Viltu leggja þitt af
mörkum í starfi VR?
Uppstillinganefnd VR óskar eftir frambjóðendum
til trúnaðarráðs VR. Áhugasöm geta gefið kost á
sér með því að senda erindi á netfangið
uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi
þann 20. janúar næstkomandi.
Í samræmi við lög VR óskar
uppstillinganefnd eftir frambjóð
endum til að skipa lista stjórnar og
trúnaðarráðs vegna listakosningar
um trúnaðarráð í félaginu.
Uppstillinganefnd stillir upp lista
til trúnaðarráðs sem endurspeglar
félagið eins og mögulegt er hvað
varðar aldur, kyn og störf félags
fólks. Einnig verður litið til félags
aðildar og starfa fyrir félagið.
Vinsamlega athugið að ekki er
heimilt að vera samtímis í framboði
í listakosningu til trúnaðarráðs og
einstaklingskosningu til stjórnar.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að
vera stjórn félagsins ráðgefandi
varðandi ýmis stærri málefni sem
upp koma í starfsemi félagsins, svo
sem við gerð kjarasamninga og
stærri framkvæmdir.
Uppstillinganefnd VR
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍM I 510 1700 | WWW.VR.IS
Karen leggur fram tillögu á hluthafafundi Tesla
Musk brann eitt sinn fyrir Tesla. Nú brennur hann fyrir Twitter. Fréttablaðið/Getty
benediktboas@frettabladid.is
Íþróttir Paul Boardman, stuðn-
ingsmaður Liverpool, hefur verið
dæmdur til að greiða sekt eftir að
hann náðist á myndband syngja
hómófóbískan söng til stuðnings-
manna Chelsea fyrir bikarúrslita-
leikinn í fyrra. Það var því frekar
auðveld sönnunarbyrðin.
Boardman átti miða á Wembley
til að sjá úrslitaleikinn en brast í
söng á lestarstöðinni og kyrjaði
Chelsea rent boy. Lögreglan stopp-
aði hann og tók af honum miðann.
Söngurinn hefur verið mikið
í fréttum síðustu viku. Fyrst var
hann sunginn í leik Notthingam
Forest og Chelsea síðasta sunnu-
dag og aftur í leik Everton og Manc-
hester United þar sem söngnum
var beint að Frank Lampard, sem
lengi lék hjá Chelsea. Söngurinn
kom aftur við sögu í leik Manc-
hester City og Chelsea í bikarnum
á sunnudag.
Texti Chelsea rent boy er f lokk-
aður sem hatursorðræða en rent
boy er frasi um unga karlmenn
sem selja sig. Á sjöunda áratugnum
héldu ungir menn sem seldu sig til
við Earls Court sem er skammt frá
Stamford Bridge, heimavelli Chel-
sea.
Í umfjöllun breskra miðla um
málið er sagt að Boardman sé
fyrsti maðurinn sem dæmdur er
fyrir að kyrja þennan söng en fleiri
dómar gætu verið á leiðinni. Þá er
knattspyrnusamband Englands að
rannsaka öll hin atvikin. Talsmaður
sambandsins sagði við Mirror að
markmiðið væri að söngurinn
myndi hætta að óma í stúkum. n
Dæmdur fyrir hómófóbískan söng
Liverpool vann Chelsea í bikarnum í
fyrra en Boardman sá ekki þann leik.
jonthor@frettabladid.is
Dómsmál Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í síðustu viku íslenska
ríkið til að greiða fyrrverandi lög-
reglumanni tæplega níu milljónir
króna.
Málið varðar atvik sem átti sér
stað árið 2020. Þá starfaði maður-
inn sem lögreglumaður og slasaðist
við æfingu við neyðarvörn, þar sem
hann var sjálfur að kenna.
Hann kvaðst hafa fengið slink
Lögreglumaður lagði ríkið vegna slyss
Lögreglumaðurinn þurfti að berjast
gegn ríkinu í hartnær þrjú ár.
á háls og höfuð og fundið mikinn
verk og straum niður eftir vinstri
handlegg. Jafnframt fann hann
fyrir doða í f ingrum eftir á. Þó
sagðist hann hafa haldið kennsl-
unni áfram og mætt til vinnu næstu
daga þar sem hann vildi ekki riðla
vaktaskipulagi.
Ríkið vildi meina að ekki væri
fyllilega sannað að atvikið hefði átt
sér stað daginn sem maðurinn lýsti
og þá taldi það ekki liggja fyrir að
meiðslin væru vegna starfs hans. n
Lögreglumaðurinn
slasaðist við æfingu
við neyðarvörn, þar
sem hann var sjálfur að
kenna.
6 Fréttir 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið