Fréttablaðið - 10.01.2023, Síða 12
n Halldór
n Frá degi til dags
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Á sama
tíma og
kyrrstaða
umlykur
hug-
mynda-
heim
ríkisstjórn-
arinnar
veldur
mengun
vegna sam-
gangna
heilablæð-
ingum og
hjartaáföll-
um.
Reykja-
víkurborg
er því
eina stóra
sveitar-
félagið sem
lætur for-
dæmalausa
hækkun
fasteigna-
mats
leggjast
af fullum
þunga á
þegna sína.
Fasteignaskattar á íbúðarhúsnæði í Reykjavík hækk-
uðu um 21 prósent um áramót. Fasteignaskattar á sér-
býli hækkuðu um 25 prósent. Þetta er um tals vert meiri
hækk un en til kynnt var um fyr ir ári síðan og talsvert
meiri hækkun en áætlanir borgarinnar gerðu ráð fyrir.
Hækkanir á fasteignamati leiða óhjákvæmilega til
skattahækkana á heimili og fyrirtæki. Meðalfasteigna-
mat íbúðarhúsnæðis í Reykjavík er 53,5 milljónir en
verður með hækkuninni 64,7 milljónir. Að jafnaði munu
því fasteignaskattar á meðalíbúð í Reykjavík hækka um
rúmlega 20 þúsund krónur árlega. Þetta kemur fram í
útreikningum hagfræðideildar Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækk-
ar um 10,2 prósent á landinu öllu. Þetta þýðir samsvar-
andi skattahækkun á atvinnulíf, án þess að hækkuninni
fylgi aukin þjónusta til fyrirtækjanna í borginni. Í erindi
Félags atvinnurekenda til sveitarstjórna segir að með
hækkuninni muni þrír milljarðar bætast við skattbyrði
atvinnulífsins árlega. Skoraði félagið á sveitarfélögin að
lækka álagningarhlutföll með samsvarandi hætti.
Á fyrsta borgarstjórnarfundi nýs kjörtímabils lagði
Sjálfstæðisflokkur til lækkun fasteignaskatta á atvinnu-
húsnæði og íbúðarhúsnæði fyrir árið 2023. Með lækk-
uninni yrði brugðist við gríðarlegri hækkun fasteigna-
mats. Sjálfstæðisflokkurinn stendur nefnilega með fólki
og fyrirtækjum í borginni þegar skórinn kreppir. Við
viljum draga úr álögum – og tryggja sanngjarna skatt-
heimtu í Reykjavík. Meirihlutinn hafnaði tillögunni.
Viðbrögð nágrannasveitarfélaga við hækkuðu fast-
eignamati voru aftur á móti önnur – þar voru álagning-
arhlutföll lækkuð svo koma mætti til móts við hækk-
anir. Reykjavíkurborg er því eina stóra sveitarfélagið
sem lætur fordæmalausa hækkun fasteignamats leggjast
af fullum þunga á þegna sína. Sífellt er seilst dýpra í vasa
skattgreiðenda.
Eitt af lykilatriðum þess að ef la samkeppnishæfi
borgarinnar er að lækka skatta á einstaklinga og fyrir-
tæki. Í dag innheimtir Reykjavík hæsta útsvar og hæstu
fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði allra sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. Við erum í lifandi samkeppni við
erlendar borgir og innlend sveitarfélög um fólk og fyrir-
tæki. Við verðum að gera betur. n
Vasar skattgreiðenda
Ég þekki fólk sem lætur mannvirðingar
ráðast af því hverjir séu tilbúnir að
sleppa umkvartanalaust matarhléum
og lögbundnum frístundum ef krafa
um afköst kallar á slíkt.
Gildir einu þótt álagið gæti leitt til örmögn-
unar. Sami hópur leitar helst aldrei til læknis
vegna forvarna heldur aðeins þegar bein hefur
brotnað eða eitthvað álíka drastískt. Brotið
bein hamlar afkastagetu dagsins í dag. En að
hafa áhyggjur af morgundeginum gæti verið
hrein tímasóun.
Sá sem eyðir tímanum í að kvarta yfir vinnu-
staðarkaffinu eða siðferðislegum álitamálum
verður seint talinn „sannur Íslendingur“. Fram-
tíðin hefur í raun aldrei átt upp á pallborðið
hérlendis, kannski vegna þess að lífsbaráttan
hefur að jafnaði verið hörð og von um breyting-
ar til bóta aðallega verið lúxus þeirra sem njóta
efstu laganna. Sem oft hafa líka sérhagsmuni af
því að tala fyrir breytingum.
Til eru fjölmiðlar hér á landi til marks um það
viðhorf að ef hnattrænar loftslagsbreytingar
eyði landi og þjóð verði bara svo að vera. Þann-
ig hugsa sum afsprengi móðuharðindanna.
Það er þá vitnað til þess að aldrei verði hægt
að hafa stjórn á náttúruöflunum. En hið rétta
er að maðurinn þarf ekki að óttast náttúruna
nú um stundir heldur sjálfan sig og ábyrgðar-
skort gagnvart framtíðinni. Um það eru 990 af
hverjum 1.000 loftslagssérfræðingum sam-
mála.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
og formaður Framsóknarflokksins, er aftur
á móti afsprengi eftirlifenda móðuharðind-
anna. Hann hefur án umhugsunar og yfirlegu
blásið fluglest út af borðinu eftir að hugmynd
um sjálfbærar samgöngur kom til umræðu í
síðustu viku.
Sigurður Ingi má þó eiga það að hann er
sannur Íslendingur sem kvartar ekki undan
kaffinu sínu. Hann hefur unnið myrkranna á
milli en út frá hvaða hugmyndum?
Á sama tíma og kyrrstaða umlykur hug-
myndaheim ríkisstjórnarinnar veldur mengun
vegna samgangna heilablæðingum og hjarta-
áföllum. Sérfræðingar eru sammála um að
umhverfisvænar almenningssamgöngur séu
lykilviðbragð í nýrri hugsun.
En innviðaráðherra sér ekki að skoðun á
fluglest falli undir mikilvægt verkefni. Að velta
fyrir sér framtíðinni fellur ekki undir skyldur
ríkisins að mati ráðherra hennar.
Í versta falli mun þessi gamaldags sýn leiða
til þess að það verður ekkert kaffi til. Og enginn
eftir til að drekka það. n
Vonda kaffið
Hildur
Björnsdóttir
oddviti
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
Saunaklefa
Blautgufur
Infraklefa
Rafmagnspotta
Hitaveituskeljar
Kalda potta
Saunatunnur og saunahús
Mikið úrval af bætiefnum og aukahlutum fyrir potta
Mikið úrval af aukahlutum fyrir sauna
Smiðjuvegi 1, s. 571 3770, sauna@sauna.is, sauna.is
Fjárfesting í vellíðan
Á Smiðjuvegi 1
færðu allt fyrir:
Velkomin í nýjan
og glæsilegan
sýningarsal okkar!
gar@frettabladid.is
Ónógur sjóndeildarhringur
Síðar í þessari viku fer fram
ráðstefna hérlendis þar sem
fólki gefst tækifæri til að
kynnast nýjasta tískufyrir-
bærinu í þessum blessaði heimi
okkar. Verður þar fjallað um
svokölluð hugvíkkandi efni
sem venjulegu fólki á að vera
afar hollt að innbyrða svo það
sjái nú loks hvernig allt er í
pottinn búið. Kári Stefánsson
genameistari hefur sagt það
sjálfur að hann ætli að gleypa
hugvíkkandi efni í morgunmat
þegar hann hættir að vinna
og hefur nægt tóm til að víkka
hugann.
Andans menn og efnis
Risaspaðar á sviði hugvíkkunar
munu mæta á ráðstefnuna
samkvæmt auglýsingunni.
Gestirnir verði heldur ekki
neinir aukvisar, að minnsta
kosti ekki að dæma af miða-
verðinu sem er 69.990 krónur,
sem maður þarf að að hafa ansi
opinn hug til að finnast ekki
doldið mikill peningur. Kaffi,
te, ávextir, snarl og vatn er þó
innifalið. Reyndar geta náms-
menn sloppið billega því fyrir
þá kostar aðeins 54.990 krónur.
Hvaða námsmaður á ekki slíka
upphæð afgangs eftir jólin? Og
ekki má gleyma „góðgerðapass-
anum“ sem kostar 149.990. En
þá fá gestir líka kvöldmat með
fyrirlesurunum. n
Skoðun FrÉttablaðið 10. janúar 2023 ÞRIðJuDAGuR