Fréttablaðið - 10.01.2023, Side 13
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
Náttúra Íslands og ferðaþjónustan
eru tvær hliðar á sama peningi.
Ferðamenn koma til Íslands fyrst
og fremst til að njóta náttúru lands-
ins, landslags og víðerna. Ferða-
þjónustan er orðin mikilvægasta
atvinnugrein landsins og á ríkan
þátt í að halda uppi góðum lífskjör-
um. Spillum við náttúrunni spillum
við fjöreggi ferðaþjónustunnar og
möguleikum komandi kynslóða til
að afla sér lífsviðurværis.
Ferðaþjónustan nýtur almennt
vinsælda. Hún kom Íslendingum
upp úr hruninu og er ómetanlegt
framlag til hagsældar í landinu.
Það eru mörk fyrir því hve marga
ferðamenn náttúra landsins og
samfélagið okkar getur borið með
góðu móti. Ferðamálaráð spáir því
að fjöldi erlendra ferðamanna sem
sækja Ísland heim verði 2,9 millj-
ónir árið 2025 og að þeir geti orðið
3,5 milljónir árið 2030. Í áætlunum
sem kynntar voru á nýlegum fundi
Isavia er gert ráð fyrir 2,2 milljónum
ferðamanna árið 2023, sem er svip-
að og árið 2018.
Orkuskipti í ferðaþjónustu
Nýleg orkuskiptaspá Orkustofn-
unar (OS) byggir á spá Seðlabankans
um hóflega aukningu. Þar er gert
ráð fyrir 2,1 m. ferðamanna 2024,
2,3 m. 2025 og 2,5 m. 2030. Þar segir
að fjöldi ferðamanna hafi áhrif á
orkunotkun bæði vegna millilanda-
flugs og fjölda bílaleigubíla.
Losun gróðurhúsalofttegunda
vegna erlendra ferðamanna á Íslandi
er umtalsverð nú þegar. Miðað við
framangreinda spá OS mun orku-
þörf og losun gróðurhúsaloftteg-
unda (GHL) aukast verulega á Íslandi
vegna fjölgunar ferðamanna á næstu
árum. Í spá OS, þar sem vaxandi
orkuþörf fyrir flugvélaeldsneyti yrði
mætt með rafeldsneyti sem framleitt
yrði innanlands, þyrfti um 400 GWh.
af raforku á ári. Það samsvarar um
1/5 af núverandi raforkuframleiðslu.
Á sama tíma er gert ráð fyrir að
vaxandi fjöldi skemmtiferðaskipa
komi til landsins. Þeirri starfsemi
fylgir bæði losun gróðurhúsaloft-
tegunda og aukið álag á vinsælustu
ferðamannastaðina.
Frá árinu 2005 til 2022 er áætlað
að losun gróðurhúsalofttegunda
vegna sölu á f lugvélaeldsneyti til
millilandaf lugvéla hafi rúmlega
tvöfaldast. Þrátt fyrir spár um
vaxandi notkun rafeldsneytis er
reiknað með losunin liðlega þre-
faldist miðað við árið 2005 fram til
ársins 2030.
Álagið á íslenska náttúru mun
einnig vaxa vegna þess að byggja
þyrfti fleiri orkuver til að mæta eftir-
spurn eftir innlendu rafeldsneyti svo
hægt verði að þjóna ferðamönnum.
Álag á vinnumarkað og samfélag
Gangi framangreindar spár eftir vex
álag á ferðamannastaði og vegakerfi
umtalsvert. Spurning hvort upplifun
ferðamanna verður jafn jákvæð og
fram til þessa ef fjöldinn vex enn
frekar.
Áhrifin á íslenskt samfélag, vinnu-
markað og efnahagslíf eru annar
fylgifiskur aukins ferðamanna-
straums til landsins. Þótt ferða-
þjónusta sé mikilvæg atvinnugrein
má færa haldgóð rök fyrir því að ekki
sé æskilegt að hagsæld Íslendinga
verði að verulegu leyti aðeins undir
velgengni hennar komin. Þá er vafa-
samt að mikil fjölgun ferðamanna og
langtíma hagur ferðaþjónustunnar
sem atvinnugreinar fari saman.
Víða um heim hafa áður vinsælir
ferðamannastaðir misst aðdrátt-
arafl vegna of mikils fjölda gesta.
Meðalvegurinn í þessu efni getur
verið vandrataður en með samvinnu
yfirvalda og fagfólks í ferðaþjónust-
unni á að vera hægt að finna leið þar
sem allir aðilar, ferðaþjónustan og
erlendu gestirnir okkar, ná í senn að
nýta og njóta.
Það er deginum ljósara að vaxandi
fjölda ferðamanna fylgja margar og
erfiðar áskoranir. Ýmislegt hefur
verið gert til að auka afkastagetu á
vinsælustu ferðamannastöðunum.
Hingað til hefur hins vegar lítið sem
ekkert verið gert til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda vegna ferða-
þjónustunnar.
Gæðin í öndvegi
Til þess að takmarka losun gróður-
húsalofttegunda er sú aðgerð skjót-
virkust að stöðva eða takmarka
fjölgun ferðamanna. Fjöldatak-
markanir bæta einnig forsendur fyrir
verndun náttúru landsins, auka gæði
þjónustu og upplifunar gesta okkar.
Hafnarmannvirki og flugvellir eru
inngangurinn að Íslandi – mann-
virki í eigu almennings. Til að tak-
marka fjölgun ferðamanna á Íslandi
geta eigendur, við Íslendingar, beitt
sér með markvissum hætti. Einnig
má beita hagrænum stýritækjum.
Það síðarnefnda, ef marka má reynsl-
una af tillögum um komugjald, yrði
afar umdeilt. Það er ekki haldbært
til lengdar að láta kylfu ráða kasti
í þessum efnum og tímabært að
marka stefnu um hámarks fjölda
ferðamanna og reiða fram aðgerða-
áætlun til samræmis. Stjórnvöld
verða að taka af skarið, móta bæði
stefnu og leið, áður en það verður of
seint.
Við sem erum eldri en tvævetur
munum að græðgin hefur stundum
leikið Íslendinga grátt með skelfi-
legum afleiðingum. Ofveiði hefur
leitt til að fiskistofnar hrundu og
landið var og er víða illa leikið vegna
ofbeitar. Þetta eru víti til varnaðar og
við verðum að gæta þess að ferða-
þjónustan falli ekki í þennan sama
pytt.
Ísland er í rauninni undraland,
náttúruperla, og við Íslendingar
berum ábyrgð á að hún haldi áfram
að vera það. Forsenda þess að ferða-
þjónustan haldi áfram að vaxa og
dafna um allt land á næstu árum
er sú að við vöndum okkur, höfum
náttúruvernd, gæði, öryggi og fag-
mennsku að leiðarljósi. Þá mun
okkur vel farnast. n
Samspil ferðaþjónustu og náttúruverndar
Friðrik Rafnsson
formaður
Leiðsagnar
Tryggvi Felixson
formaður
Landverndar
ÞRIÐJUDAGUR 10. janúar 2023 Skoðun 13Fréttablaðið