Fréttablaðið - 10.01.2023, Síða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 10. janúar 2023
Andrea átti frábæru gengi að fagna á síðasta ári og var á dögunum útnefnd íþróttakona Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sigursælasta hlaupakona landsins
Andrea Kolbeinsdóttir, hlaupakona úr ÍR, er sigursælasta hlaupakona landsins. Hún gerði
sér lítið fyrir og vann öll þau 25 hlaup sem hún tók þátt í á Íslandi á nýliðnu ári og að auki
bar hún sigur úr býtum í Fossavatnsgöngunni sem er stærsta skíðagöngukeppni á Íslandi. 2
Margir reyna að finna nýtt áhugamál
á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Nú þegar nýja árið er gengið í garð,
jólin liðin og hversdagsleikinn
tekinn við eru margir farnir að
huga að því að gera einhvers konar
breytingar á lífi sínu, stórar eða
litlar. Líkamsræktarstöðvar fyllast
því fólk ætlar að standa við ára-
mótaheitið og taka heilsuna í gegn.
Gönguhópar spretta upp eins og
gorkúlur og auglýsingar dynja á
okkur um hin og þessi spennandi
námskeið. Það er ekki bara heilsan
sem fólk vill taka föstum tökum á
nýju ári, margir vilja líka finna sér
nýtt og skemmtilegt áhugamál til
að auðga lífið.
Af nægu að taka
Það skortir ekki framboðið af
námskeiðum núna í janúar og
sums staðar er jafnvel boðið upp
á ókeypis prufutíma, áður en
ákvörðun er tekin um framhaldið.
Í kvöld er til dæmis hægt að skella
sér í ókeypis prufutíma í sóló-salsa
hjá Salsa Iceland. Móar studio
bjóða líka upp á ókeypis prufu-
tíma í vikunni svo fleiri dæmi séu
nefnd. Á bókasöfnunum er líka
alltaf nóg af viðburðum og nám-
skeiðum þar sem hægt er að læra
eitthvað nýtt, eins og að búa til
barmmerki, taka upp hlaðvarps-
þátt og sauma á saumavél. Af nægu
er að taka og um að gera að stíga út
fyrir þægindarammann á árinu. n
Nýtt upphaf
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is