Fréttablaðið - 10.01.2023, Blaðsíða 21
266
Þar sem Ómar var utan hóps í tveim-
ur leikjum liðu 266 mínútur á milli
marka hjá Selfyssingnum á síðasta
HM.
8,1
Ómar skoraði 195 mörk í 24 leikjum
í þýsku deildinni eftir síðasta HM,
eða 8,1 mark að meðaltali í leik.
59
Ómar Ingi skoraði 59 mörk í átta
leikjum á Evrópumótinu í handbolta
á síðasta ári, eða 7,38 mörk að meðal-
tali í leik.
237
Ómar Ingi var næstmarkahæsti
leikmaður þýsku deildarinnar í
fyrra með 237 mörk ásamt því
að gefa þriðju flestu stoðsend-
ingarnar.
2
Selfyssingurinn varð
annar Íslendingurinn
til að verða marka-
kóngur Evrópumótsins
á síðasta ári á eftir Ólafi
Stefánssyni.
3
Ómar er einn þriggja
leikmanna íslenska
liðsins sem voru til-
nefndir sem bestu
handboltamenn heims
í sinni stöðu af Hand-
ball Planet.
Ómar Ingi Magnússon stóð ekki undir
væntingum á HM í Egyptalandi en nú er
öldin önnur. Selfyssingurinn hefur verið
einn af bestu handboltamönnum heims
undanfarin tvö ár og fær næstu vikurnar
vettvang til að gera atlögu að titlinum besti
handboltamaður heims.
kristinnpall@frettabladid.is
Handbolti Handboltamaðurinn og íþróttamaður
ársins undanfarin tvö ár hefur farið hamförum
frá því að HM í Egyptalandi lauk í ársbyrjun 2021.
Ómar Ingi náði sér ekki á strik á mótinu, frekar
en liðsfélagar hans. Miðað við framfarir Ómars
undanfarin tvö ár er hægt að spyrja sig hvort hann
hafi átt annan gír inni sem fannst á heimleiðinni
frá Egyptalandi.
Ómar skoraði tvö mörk í fyrsta leiknum gegn
Portúgal og kom ekki að marki í öðrum leik Íslands
á mótinu, fimmtán marka sigri gegn Alsír. Hann var
skilinn eftir utan hóps í næstu tveimur leikjum og
átti aðeins eina tilraun í fimmta leik Íslands áður
en hann skoraði fjögur mörk í lokaleiknum gegn
Noregi.
Eftir HM í Egyptalandi kom Ómar aftur til Magde
burg og skoraði 195 mörk í 24 leikjum og reykspólaði
upp listann yfir markahæstu leikmenn deildarinnar
í átt að markakóngstitlinum. Hann fylgdi því eftir
með því að verða markakóngur Evrópumótsins
með íslenska karlalandsliðinu á síðasta ári
og hefur ekkert slegið af.
Hann leiddi lið Magdeburg til sigurs í
þýsku deildinni eftir 21 árs bið sem besti
leikmaður deildarinnar. Nú getur Ómar
Ingi komið Íslandi í baráttu um verð
launasæti á HM í fyrsta sinn. n
Sviðið er þitt
ÞRIÐJUDAGUR 10. janúar 2023 Íþróttir 17Fréttablaðið