Fréttablaðið - 10.01.2023, Qupperneq 30
Kannski kemur fólki
á óvart að hér uppi
á Íslandi hafi fólk
slíkan áhuga á mál-
efnum konungsfjöl-
skyldunnar.
Svanborg Þórdís Sigurðardóttir
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Auglýsing um skipulagsmál
í Sveitarfélaginu Vogum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundum sínum
nýverið að auglýsa skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðrar
íbúðarbyggðar. Svæðin eru skilgreind sem íbúðarbyggð í
gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Íbúðarbyggð ofan við Dali, austan núverandi byggðar
Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja lágreista
íbúðarbyggð með um 250 íbúðum í sérbýlishúsum. Gert er ráð
fyrir að aðkoma akandi verði frá Vogavegi og Iðndal. Lögð
verður áhersla á að lóðir og byggingar falli sem best að lands-
lagi og verða skilmálar settir varðandi slíkt í deiliskipulagi.
Íbúðarbyggð norðan núverandi byggðar í Grænuborg
Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja íbúðar-
byggð með um 330 íbúðum í sérbýlishúsum og fjölbýlishúsum.
Gert er ráð fyrir að einbýlishús og parhús á einni hæð verði
vestast á svæðinu nærst ströndinni en þar fyrir ofan komi lítil
fjölbýlishús eða raðhús á tveimur hæðum. Stærri og hærri
fjölbýlishús (allt að 4 hæðir) verða við norðurjarðar svæðisins
nærst Vatnsleysustrandarvegi. Dælustöð fráveitu verður
vestan og neðan byggðarinnar. Lögð verður áhersla á að lóðir
og byggingar falli sem best að landslagi og verða skilmálar
settir varðandi slíkt í deiliskipulagi.
Kynntar eru skipulagslýsingar skv. 40. gr skipulagslag nr.
123/2010 vegna nýs deiliskipulags á báðum svæðum. Skipu-
lagslýsingarnar er hægt að nálgast á vef sveitarfélagsins
www.vogar.is
Opið verður hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrif-
stofu að Iðndal 2, 190 Vogum, fimmtudaginn 19. janúar 2023
milli kl. 13:00 – 16:00 þar sem íbúum og hagsmunaraðilum gefst
kostur á að kynna sér lýsingarnar.
Íbúar og hagmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi
skipulagslýsingarnar á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum,
eða á netfangið
byggingarfulltrui@vogar.is til og með 31. janúar 2023.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Erum við
að leita að þér?
Svanborg Þórdís Sigurðar-
dóttir, hjá Pennanum
Eymundsson, segist hafa
fundið fyrir ánægjulega
miklum áhuga á Spare, ævi-
sögu Harrys Bretaprins. Skip
með stórri pöntun af vægast
sagt umdeildri og eftirsóttri
bókinni er lagt af stað en hún
mun þó ekki ná í íslenskar
bókaverslanir á alþjóðlega
útgáfudeginum sem er í dag.
toti@frettabladid.is
„Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga. Já, algjörlega. Fólk er byrjað
að hringja og er spennt fyrir þess-
ari bók,“ segir Svanborg Þórdís Sig-
urðardóttir, í erlendum bókum hjá
Pennanum Eymundsson, um Spare,
ævisögu Harrys Bretaprins.
Hún segir Pennann Eymundsson
ekki beinlínis hafa verið með sér-
stakan viðbúnað í tilefni útgáfunn-
ar en þau hafi pantað vel af henni
enda bendi fjöldi fyrirspurna og
símtala eindregið til þess að bók-
arinnar sé ekki síður beðið með
mikilli eftirvæntingu hér á landi en
annars staðar.
„Það er ótrúleg stemning fyrir
þessu. Það er nefnilega málið og
kannski kemur fólki á óvart að hér
uppi á Íslandi hafi fólk slíkan áhuga
á málefnum konungsfjölskyld-
unnar.“
Dularfull sigling
„Það f lækir kannski
málið svolítið fyrir
lönd eins og okkar
þegar ekki má selja
bókina fyrr en á
ákveðnum degi og
hún er þá ekki send
út fyrr en þá,“ segir
Svanborg en bætir
við að í þessu tilfelli
sé bókin þó sem
betur fer lögð af stað.
„En hún er ek k i
komin til landsins og
ég vil ekki lofa neinu
vegna þess að við erum bara háð
f lutningum. Þannig að ég vil ekki
nefna neinn sérstakan dag ef skipið
myndi svo kannski verða stopp
einhvers staðar. Þannig að þetta
heldur áfram að vera mjög spenn-
andi og dularfullt. En
hún er á leiðinni og
við krossum bara
fingur að það sé
gott í sjóinn og
svona.“
Svanborg segir
fyrstu pöntunina
hafa verið stóra
og að engin hætta
sé á öðru en að öll
sem vilja muni fá
sinn Harry. „Svo
kemu r a n nað
holl þannig að
hún á alveg eftir
að vera til og ef
hún klárast fyrsta
holl þá tökum við niður pantanir.
Það er ekkert mál.“
Spennandi leki
Eins og áður segir dugði mikil
öryggisgæsla ekki til að koma í veg
fyrir leka úr bókinni. „Þótt það sé
búið að leka ýmsu þá virðist það
bara auka á spenninginn,“ segir
Svanborg og telur áhugann á bók-
inni benda til þess að þetta skemmi
alls ekki fyrir.
Titillinn Spare, eða Varaskeifan,
vísar til orða Karls konungs um
„heir and spare“ og að þegar þau
Díana prinsessa eignuðust Harry
væru þau bæði komin með Vilhjálm
sem ríkisarfa og annan, Harry, til
vara.
Játningar Harrys í bókinni hverf-
ast að því er virðist ekki síst um
núninginn milli þeirra bræðra og
sérfræðingar í málefnum konungs-
fjölskyldunnar telja að bókin geti
í versta falli haft skelfilegar afleið-
ingar fyrir bæði Harry og krúnuna
en meðal þess sem hefur lekið er
safarík frásögn Harrys af því þegar
Vilhjálmur tuskaði hann til eftir
að hafa ausið Meghan Markle sví-
virðingum.
Áþreifanleg eftirvænting
Spare hefur verið beðið með slíkri
eftirvæntingu víða um heim að í síð-
ustu viku var hún komin í 2. sætið
yfir mest seldu bækurnar í forsölu
hjá Amazon.com og það er svo loks
í dag sem eldfimar játningar Harrys
skella á heimsbyggðinni af fullum
þunga.
Svanborg segir eftirspurnina eftir
bókinni áþreifanlegri og innbund-
inni ánægjulega. „Það er bara alveg
frábært hversu sterk bókin var á síð-
asta ári. Og um jólin. Hún er ekkert
að fara og bara eins og rafbókin og
hljóðbókin bætist bara við og fleira
fólk sé að lesa á ýmsan hátt.
Þetta er mög gaman og við sem
erum búin að vera svona lengi í
bransanum erum mjög ánægð með
það og finnst skemmtilegt að bókin
skuli enn vera lifandi miðill.“ n
Getum brátt höndlað Harry
Beðið var eftir Harry í breskum bókabúðum og víðar í gær og á Íslandi þarf að bíða aðeins lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTy
Spare kemur út í
dag en smá bið
verður á því
að höndlað
verði með
Harry á Ís-
landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTy
26 Lífið 10. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið