Fréttablaðið - 10.01.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing Torg ehf.
2022 - 2025
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
Ég verð reglulega vör við að boðið
er upp á ýmiss konar meðferð sem
ætlað er að leysa úr margvíslegum
geðrænum vanda. Meðferðir sem
falla ekki undir viðurkennda heil-
brigðisþjónustu. Slíkt vekur upp
spurningar.
Hvernig er greining á vandanum
gerð? Á hvaða rannsóknum á gagn-
semi byggja þessar meðferðarleiðir?
Byggja upplýsingar um árangur
á reynslusögum nokkurra aðila
eða viðurkenndum samanburðar-
rannsóknum? Hvers vegna er ekki
mælt með þessum meðferðum í
klínískum leiðbeiningum? Ef með-
ferðarleið er ný og framsækin, hvers
vegna eru ekki gerðar rannsóknir á
henni áður en almenningi stendur
meðferðin til boða gegn háum
fjárhæðum? Við myndum ekki
selja fólki lyf sem hefur ekki farið í
gegnum stranga rannsóknarferla.
Það er staðreynd að bið eftir gagn-
reyndum sálfræðimeðferðum er
ömurlega löng og skiljanlegt að fólk
verði úrkula vonar og fari að leita
annarra lausna. Er það bara í lagi að
bjóða fólki meðferð án þess að vinna
undir ramma heilbrigðisyfirvalda
og undir þeim skilyrðum sem heil-
brigðisstarfsfólk þarf að vinna svo
sem varðandi menntun og ábyrgð?
Hver stendur vörð um hagsmuni
þjónustunotandans ef meðferðar-
aðilinn er ekki ábyrgur gagnvart
Embætti landlæknis eða heilbrigðis-
yfirvöldum? Hvernig veit viðkom-
andi hvað hann er raunverulega að
kaupa? Jákvæðar reynslusögur eru
ekki vísindalegur grunnur. Ég get
ekki bara boðið fram þjónustu mína
á bráðamóttökunni eftir tíu skipta
námskeið og farið að endurlífga fólk
þó ég vilji leysa úr vandanum þar.
Það er samfélagsleg ákvörðun að
hafa geðheilbrigðiskerfið laskað.
Það bíður enginn eftir að hefja nám í
fyrsta bekk. Þjónustan er samfélags-
lega tryggð. Það sama ætti að geta
gilt um geðheilbrigðisþjónustu ef
rétt væri gefið. n
Meðferð
FRÉTTAVAKTIN
Fréttaumfjöllun fyrir alla
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
OUTLET!
3-13 JAN
OPNUNARTÍMI:
MÁN - FÖS 14-18.30
7.JAN: LAU 12-16.00
8.JAN: SUN 13-17:00
Mikið úrval af sængurverasettum.
Grár lyftustóll
með áklæði frá
Boas:
Verð áður: 149.900,-
Nú aðeins: 99.900,-
•
Margar stærðir og gerðir. Eitthvað fyrir alla!
• Svört útlitsgölluð náttborð.
• Heilsukoddar verð 17.900,- Nú aðeins 5.000,-
• Ýmsir stuðningspúðar. Verð 1.000,-
• Nett hliðarborð nokkrar gerðir.
50% afsláttur:
Handklæði, 50x100cm verð áður 990,- Nú aðeins 445,-
Þvottastykki, áður 300,- Nú aðeins 150,-
Koddaver stripe, 990,- Nú aðeins 445,-
Koddafyllingar, 40x40 cm 250kr stk.
Damask lök, Twin 97cmx203cm, áður 8.900,- Nú aðeins 4.450.-
Damask lök, Full 135cm áður 10.400,- Nú aðeins 5.400.-
Hvít rúmteppi, nokkrar stærðir
afsláttur af skiptidýnum,
eldri gerðum af útlitsgölluðum
dýnum, stillanlegum rúmum,
hvíldarstólum og sófum,
lökum, rúmfötum...20-70%
Frábær tilboð
í verslun á
meðan útsölu
BALDURSNESI 6, AKUREYRI LISTHÚSIÐ, REYKJAVÍK
VÖLUTEIGI 17
MOSFELLSBÆ
SÍMI: 6600025 VÖLUTEIGUR 17
stendur.
OPNUM NÝTT