Víkurfréttir - 07.12.2022, Side 13
Framleiðslustjórinn Brynjar Marinó Húnfjörð kom til Íslandshúsa fyrir fjórum árum síðan. Brynjar
er sonur Óskars Inga en það er einmitt draumur margra foreldra að fá börnin sín inn í fyrirtækið og
að þau taki við kyndlinum þegar sú stund kemur að foreldrarnir vilji setjast í helgan stein.
„Pabbi hafði oft talað um það að
fá mig hingað inn en ég hafði ekki
sýnt því neinn sérstakan áhuga,
hafði engan áhuga á steypu og var
bara með eigin feril fyrir utan þetta.
Í einu matarboðinu nefndi hann
þetta við mig aftur og ég sagði
honum að hann hefði ekki boðið
í mig. Eftir boðið fór ég heim og
hugsaði málið betur. Mér var ljóst
að hann væri ekki að verða yngri,
þetta væri stöndugt fyrirtæki og
ég sá fleiri hluti í þessu. Þetta væri
gott tækifæri fyrir mig og einnig
tækifæri fyrir hann að fara að slaka
á og njóta, þannig að ég ákvað að
ganga til liðs við fyrirtækið fyrir
fjórum árum síðan.“
Komst þú með eitthvað nýtt inn
í fyrirtækið? Þegar við erum að
tala saman er þrívíddarprentari
að prenta út sýnishorn af fram-
leiðslunni ykkar?
„Við erum búnir að vera með
þrívíddarprentara lengi og pabbi
er miklu nýjungagjarnari en ég.
Þessi prentun var komin inn löngu
áður en ég kom til fyrirtækisins.
Kallinn hefur alltaf verið fljótur að
tileinka sér nýjar græjur. Þrívíddar-
prentun er stórkostleg fyrir okkur.
Við hönnum allar okkar vörur
sjálf frá grunni, þrívíddarprentum
hana og sjáum hvernig varan
passar inn í það sem við erum að
gera nú þegar. Það hjálpar líka að
sýna viðskiptavininum vöruna út-
prentaða í stærðinni einn á móti
tíu. Það er því handhægt að setja
þetta á borðið og sjá mismun á milli
stærða. Þá hjálpar þetta okkur, þar
sem við gerum öll okkar mót sjálf
og notum þrívíddarteikningarnar
til þess,“ segir Brynjar.
Sjálfbært fyrirtæki
Íslandshús eru nokkuð sjálfbært
fyrirtæki. Það hannar vöruna sjálft,
smíðar mótin sjálft og er með eigin
steypustöð. Allt markaðsefni er
hannað innanhúss, hvort sem það
er heimasíða eða bæklingar.
„Við erum fljótir að bregðast við.
Komi viðskiptavinur til okkar með
hugmynd, þá þurfa ekki að líða
margir dagar eða vikur þangað til
við erum komnir með vöru í hend-
urnar. Það er allt hægt hjá okkur og
ekkert sem stoppar okkur,“ segir
Brynjar Marinó.
„Fljótir að bregðast við“
gæði og endingu. „Við vinnum
mikið með sveitarfélögum að leysa
verkefni sem eru inni á þeirra
borði.“
Íslandshús eru með framleiðslu-
vörur sínar vel merktar. Merki
fyrirtækisins er formað í steypuna,
allar vörurnar bera nafn sem einnig
er formað í steypuna sem og þyngd
og framleiðslunúmer. Þá geta fyrir-
tæki og sveitarfélög fengið merki
sitt formað í steypuna til að merkja
sér hlutinn.
Aukningin 50% á milli ára
Óskar segist í dag þakklátur fyrir
þann stuðning og velvilja sem hann
hafi fengið frá bæði Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar og Reykja-
nesbæ þegar þau hjónin stofnuðu
fyrirtækið á sínum tíma. Það hafi
aldrei staðið til að vera stór en
hjá Íslandshúsum starfa í dag sjö
manns. Þau hjónin, Óskar Ingi
og Brynja Sif, hafi í upphafi bara
ætlað að vera í þessu tvö. Þau hafi
bara fylgt markaðnum og aukið
veltuna um 20–30% á ári frá því
þau byrjuðu. Núna sé aukningin
hins vegar 50% á milli ára. „Það er
full bratt en ekki hægt að hlaupast
undan því að sinna vextinum.“
Óskar sér reksturinn þróast
áfram. Fyrirtækið hafi fengið 7.000
fermetra viðbótarlóð á Ásbrú.
Húsnæði fyrirtækisins sé of lítið
og það þurfi að leysa það en fyrst
og fremst sjái hann fyrirtækið í
áframhaldandi vöruþróun. Nú sé
að hefjast verkefni sem snúi að
umferðaröryggi með Reykjanesbæ
og verkfræðingum og lausnin verði
vonandi kynnt innan árs. „Það er
þessi vöruþróun sem er svo spenn-
andi og skemmtileg,“ segir Óskar
Ingi Húnfjörð.
Sóley er meðfærileg
umferðareyja sem hentar
vel til að afmarka hraða-
lækkun innanbæjar.
Feðgarnir Brynjar Marinó t.v. og Óskar Ingi Húnfjörð á lager Íslandshúsa á Ásbrú. Þar eru 700–800 tonn af ýmiskonar lausnum.
Í verksmiðju Íslandshúsa á Ásbrú þar sem steypuvinnan fer fram.
KÆRI NÁGRANNI!
SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM
BESTU ÓSKIR
UM GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Opið virka daga 9–19
laugard. og sunnud. 10–14
apotekarinn.isSuðurgötu 2
Sími 421 3200
Afgreiðslutími um jól og áramót:
Keflavík
24. des 10–12
25. des LOKAÐ
26. des LOKAÐ
27. des 10–19
31. des 10–12
1. jan LOKAÐ
2. jan 10–19
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM // 13