Fréttablaðið - 20.01.2023, Qupperneq 12
Þurfa að leika eftir afrek frá árinu 1964
Til þess að Íslendingar hafi
örlögin áfram í sínum hönd-
um, er kemur að sæti í 8 liða
úrslitum á HM, þarf liðið að
sækja stig eða tvö úr viður-
eign sinni við Svía í kvöld,
eitthvað sem hefur ekki gerst
frá árinu 1964.
aron@frettabladid.is
Handbolti Það verður mikið um
dýrðir í keppnishöllinni í Gauta-
borg og munu þúsundir Íslendinga
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að hjálpa strákunum okkar
við að sækja sigur í leiknum.
Arnar Daði Arnarsson, handbolta-
sérfræðingur og umsjónarmaður
Handkastsins, segir margt þurfa
að spila saman til þess að Íslend-
ingar geti náð góðum úrslitum gegn
ríkjandi Evrópumeisturum Svía sem
eru afar vel mannaðir og hafa ekki
stigið feilspor á HM til þessa.
„Það er nokkuð ljóst að við þurf-
um að eiga algjöran toppleik á alla
vegu,“ segir Arnar Daði við Frétta-
blaðið um komandi viðureign
Íslands og Svíþjóðar. „Frammistöðu
í líkingu við leikinn gegn Frökkum á
EM í fyrra. Markvarslan þarf að vera
í heimsklassa og til þess þarf vörnin
að þéttast til muna.“
Um algjöran lykilleik er að ræða
fyrir íslenska landsliðið sem þarf
helst stig úr viðureigninni gegn
Svíum sem hafa ekki tapað stigum
hingað til á mótinu og eygja von á
að klára sitt.
„Svíarnir eru í þeirri stöðu að þeir
geta tryggt sér efsta sætið í milliriðl-
inum með sigri og þar með geta þeir
hvílt sína leikmenn í lokaleiknum
gegn Portúgal. Staða sem við Íslend-
ingar viljum alls ekki að komi upp.“
Hvað íslenska liðið varðar kallar
Arnar eftir því að Aron Pálmarsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins, stigi
upp.
„Aron Pálmarsson þarf að fara að
mæta til leiks. Umræðan fyrir mót
var sú að við værum í vandræðum
með breiddina í vinstri skyttunni
og nú er Ólafur Guðmundsson dott-
inn út. Aron er ekki undanskilinn
öðrum leikmönnum í íslenska
landsliðinu, hann þarf að eiga
toppleik á morgun. Hann fékk
góða hvíld gegn Suður-Kóreu og
Grænhöfðaeyjum.“
Staða hornamanna sé góð og
ný stjarna að fæðast.
„Óðinn hefur stimplað sig inn
sem heimsklassa hægri horna-
maður. Ég tel hins vegar að
Sigvaldi sé, eins og staðan
er, fyrsti kostur Guðmund-
ar en hann getur ekkert
slakað á, með sjóðheitan
Óðin á bekknum.“ n
Staðan í milliriðlinum
* Efstu tvö lið riðilsins komast áfram
í 8-liða úrslit
Staða Lið Stig
1. Svíþjóð 6 stig
2. Ísland 4 stig
3. Portúgal 3 stig
4. Brasilía 3 stig
5. Ungverjaland 2 stig
6. Grænhöfðaeyjar 0 stig
Síðustu viðureignir gegn
Svíum á stórmótum
Í sögu heimsmeistara-
mótsins í handbolta hafa
Svíþjóð og Ísland mæst sex
sinnum frá árinu 1961. Frá
þeim leikjum hafa Svíar fimm
sinnum staðið uppi sem
sigurvegarar, Íslendingar einu
sinni.
Leikur kvöldsins fer fram
í Gautaborg en sú var einnig
raunin árið 1993 þegar liðin
mættust á HM. Í þeim leik
þurfti íslenska landsliðið að
sætta sig við fimm marka tap.
n 1961: Átta marka tap,
18–10
n 1964: Tveggja marka sigur,
12–10
n 1986: Fjögurra marka tap,
27–23
n 1993: Fimm marka tap,
21–16
n 2001: Þriggja marka tap,
24–21
n 2015: Átta marka tap, 24-16
Leikmenn sem verður að hafa gætur á í kvöld:
Eric Johansson
22 ára
Félagslið: Kiel
Staða: Vinstri skytta
Er að mati Arnars einn efnilegasti
leikmaður í heimi. Hefur farið á
kostum á þessu tímabili með Kiel
og hans góða gengi hefur haldið
áfram inn í HM.
Jim Gottfridsson
30 ára
Félagslið: Flensburg
Staða: Leikstjórnandi
Jim Gottfridsson hefur verið að
glíma við meiðsli á tímabilinu en
hann virðist vera heill heilsu og
að sögn Arnars þurfa leikmenn
Íslands að láta hann finna fyrir því.
Hampus Wanne
29 ára
Félagslið: Barcelona
Staða: Vinstri hornamaður
Svíar eru með heimsklassa horna-
menn að sögn Arnars, meðal
annars Hampus Wanne sem er á
meðal markahæstu manna HM
með 25 mörk.
Felix Claar
34 ára
Félagslið: Álaborg
Staða: Miðjumaður
Liðsfélagi Arons Pálmarssonar hjá
Álaborg í Danmörku, leikur lykil-
hlutverk í sóknarleik Svía. Hann er
kominn með 8 stoðsendingar á
HM til þessa og 11 mörk.
12 íÞróttir FRÉTTABLAÐIÐ 20. jAnúAR 2023
FÖStUDAGUr