Fréttablaðið - 20.01.2023, Síða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 20. janúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Fólk er bara svo glatt
Sigga Beinteins hefur komið fram á mörgum þorrablótum undanfarin ár og finnst þau
alltaf jafn skemmtileg. Hún segir þorrablótsgesti eiga það sameiginlegt að vera mættir til
að skemmta sér og öðrum auk þess sem samsöngurinn skipi stóran sess. 2
Árið 2023 verður viðburðaríkt hjá Siggu Beinteins. Fram undan eru skemmtileg þorrablót og Stjórnin heldur upp á 35 ára afmælið í lok september.
MYND/ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR
Kokteilar úr viskíi eru vinsælir hjá
körlum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Það er sannarlega hægt að gleðja
bónda sinn með góðum kokteil.
Hvernig væri að bjóða upp á einn
slíkan fyrir kvöldmatinn, hvort
sem það verður þorramatur á boð-
stólum eða dýrindis nautasteik?
Samkvæmt sérfræðingum eru
vinsælustu kokteilar fyrir karla
brúnir eða glærir, alls ekki sætir
og þurfa ekki endilega að hafa
háa áfengisprósentu. Snoop Dogg
mælir til dæmis með kokteil úr gini
og greipaldin- og appelsínusafa.
Godfather-kokteill
Annar kokteill sem er afar vinsæll
hjá herrum er Godfather. Hann var
fundinn upp árið 1970 og nefndur
eftir hinni vinsælu Óskarsverð-
launamynd, The Godfather. Það
þarf aðeins tvö hráefni í þennan
drykk, viskí og Amaretto-líkjör.
Oftast er notað Blended Scotch
viskí en sumir kjósa frekar að nota
single malt eða jafnvel bourbon.
Amaretto er ítalskur líkjör sem
er gerður úr möndlum. Hann er
sætur en hentar vel í marga kok-
teila. Möndlubragðið mýkir upp
viskíið sem þó fær að skína í gegn.
Yfirleitt eru hlutföllin jöfn af hvoru
um sig. Hins vegar er leyfilegt að
breyta hlutföllunum eftir smekk.
Guðfaðirinn er borinn fram í hefð-
bundnu viskíglasi.
Old Fashion-kokteill þykir afar
karlmannlegur, bourbon-viskí
með smá sykurvatni, angostura
bitter og appelsínusneið. n
Kokteilar sem
karlar elska