Fréttablaðið - 16.02.2023, Qupperneq 11
Seðlabankinn þarf að
hafa vextina tvöfalt
eða þrefalt hærri en í
grannlöndunum til að
vinna gegn sama verð-
bólgustigi af því að
pólitíkin leyfir honum
ekki að hafa áhrif á
allt þjóðarbúið, bara á
hina smáu.
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Dýrtíðin vex nú eins og áin Vimur,
sem sagt er frá í Snorra-Eddu.
Þegar Þór óð hana braut hún upp
á öxl honum. Hann sá þá tröllkonu
standa ofar tveim megin árinnar „og
gerði hún árvöxtinn“.
Til að stemma á að ósi tók Þór
stein mikinn og „eigi missti hann
þar er hann kastaði til“.
Fjármálaráðherra, seðlabanka-
stjóri og leiðtogar vinnumarkaðar-
ins hafa mest um dýrtíðina að segja.
Þeir kasta nú til. Hver þeirra sér hina
gera dýrtíðarvöxtinn. Hnútukast
þeirra stemmir þó ekki á að ósi.
Pólitíkin
Það er rétt sem fjármálaráðherra
segir að gjaldskrárhækkanir ríkisins
eiga lítinn þátt í dýrtíðarvextinum.
Seðlabankastjóri og talsmenn
atvinnulífsins fullyrða aftur á móti
réttilega að fjármálaráðherra orsaki
þenslu með því að eyða um efni
fram og færa skuldavandann yfir
á næstu ríkisstjórn. Það gerir verð-
bólguvöxtinn meiri.
Vissulega þarf sterk pólitísk bein
til að bregðast við og skýra út fyrir
kjósendum að almenningur borgar
Nú kasta þeir til
brúsann af slíkri fjármálastjórn
með meiri verðbólgu í dag og hærri
sköttum síðar.
Eins og sakir standa er pólitísk
samsetning ríkisstjórnarinnar of
veik til að geta sýnt þennan mikil-
væga styrk.
Vinnumarkaðurinn
Það er þekkt lögmál að fari launa-
hækkanir í þjóðarbúinu öllu fram
úr framleiðnivexti þarf að leiða mis-
muninn út með verðbólgu.
Þó að kjarasamningar hafi verið
hóf legir eftir sumum viðmiðum
hafa þeir eigi að síður farið yfir
þessi mörk. Þeir auka því dýrtíðar-
vöxtinn.
Tæpast verður þó sagt að óábyrg
hugsun hafi legið að baki nýgerð-
um kjarasamningum. Hitt er að
við þurfum að breyta forsendum í
þjóðarbúskapnum svo að innleiða
megi vinnumarkaðsmódel um
stöðugleika og haldbetri kaupmátt
að norrænni fyrirmynd.
Seðlabankinn
Fjármálaráðherra og forystumenn
v innu ma rk aða r ins gag nr ý na
hringl andahátt í málflutningi seðla-
bankastjóra. Hann hefur sannar-
lega veikt trúverðugleika bankans
með hverfulum pólitískum yfirlýs-
ingum. Það er þó ekki helsti vandi
bankans í baráttunni við verð-
bólguna.
Klípa Seðlabankans er sú að pólit-
íkin hefur ákveðið að þetta litla hag-
kerfi þurfi að nota fjóra ólíka gjald-
miðla. Seðlabankinn stýrir bara
einum þeirra.
Fyrir vikið ná vaxtaákvarðanir
hans bara til þeirra sem nota gömlu
óverðtryggðu krónuna. Ungt fólk
og lítil og meðalstór fyrirtæki eru
þannig látin bera baggana fyrir
hinn hluta þjóðarbúsins, sem notar
ýmist verðtryggðar krónur, evrur
eða dollara.
Þversögn
Seðlabankinn þarf að hafa vextina
tvöfalt eða þrefalt hærri en í grann-
löndunum til að vinna gegn sama
verðbólgustigi af því að pólitíkin
leyfir honum ekki að hafa áhrif á
allt þjóðarbúið, bara á hina smáu.
Þegar á skal að ósi stemma missir
Seðlabankinn því, öfugt við Þór, þar
er hann kastar til.
Þetta er svo ein af ástæðunum
fyrir því að verðbólga á Íslandi er
jafnhá og hjá þeim þjóðum, sem
glíma við ofurverðhækkanir vegna
orkukreppu.
Satt best að segja erum við ein af
fáum þjóðum, sem hefur haft meiri
hag af Pútínstríðinu en óhag. Kaup-
máttur útf lutningstekna þjóðar-
búsins hefur aukist. Samt er vax-
andi viðskiptahalli, ríkissjóðshalli,
gengisrýrnun, verðbólga og hærri
vextir en í Evrópu.
Kerfisbreytingar
Á verður ekki að ósi stemmd nema
með róttækum ráðum. Að því leyti
er þjóðin í sömu sporum og Þór
þegar áin hafði vaxið honum í axlir.
Tvenns konar kerfisbreytingar
eru brýnastar.
Fjölmyntakerfið er að reynast
þjóðarbúinu jafn mikill fjötur um
fót og fjölgengiskerfið, sem sjálf-
stæðismenn og alþýðuflokksmenn
afnámu upp úr miðri síðustu öld.
Nú er aftur þörf á slíkri kerfisbreyt-
ingu.
Á þeim tíma hæddust þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að Framsókn
fyrir trú hennar á margfalda gengis-
skráningu. Sextíu árum síðar hafa
þeir sjálfir gengist þeirri gömlu trú
á hendur.
Hin kerfisbreytingin lýtur að því
að laga vinnumarkaðinn að nor-
ræna módelinu.
Sjómenn og útvegsmenn sömdu
til tíu ára vegna þess að útgerðin
notar að mestu erlenda mynt og
aflahlutur sjómanna gerir það að
verkum að þeir taka í raun og veru
laun í sama gjaldmiðli. Þetta segir
mikið um þá kerfisbreytingu, sem
er forsenda þess að vinnumarkaður-
inn geti samið á grundvelli stöðug-
leika. n
Fréttablaðið sKoðun 1116. Febrúar 2023
FIMMTuDAGuR