Fréttablaðið - 16.02.2023, Side 17
Tískusýning Tory Burch
fyrir haust- og vetrarlínuna
2023-2024 fór fram á tísku-
vikunni í New York mánu-
daginn 13. febrúar.
jme@frettabladid.is
Í nýju línunni lék Burch sér með
hugmyndina um fullkomnun og
segir: „Ég vildi skora hugmyndina
um hefðbundinn kvenleika og
fegurð á hólm og snúa henni á
hvolf. Ég held að konur vilji ekki
reglur lengur,“ segir hún. Vogue
Runway fjallaði um sýninguna.
Sækir innblástur í sportfatnað
Frá því í Covid-19 faraldrinum
hefur Tory Burch haft síaukinn
áhuga á Claire McCardell, banda-
ríska sportfatahönnuðinum sem
færði konum „popover“ kjólinn
fyrir 75 árum, en um er að ræða
eins konar flík sem hægt er að vefja
utan um líkamann og hefur verið
endurhannaður fyrir ýmis tilefni.
Einnig sótti Burch innblástur
í eigin hönnun frá tíunda ára-
tugnum með teygjanlegum flíkum
sem hægt er að nýta á fjölbreyttan
máta.
Grunnurinn að línunni saman-
stendur af peysum og pilsum í
miðsídd, aðsniðnum jökkum,
hnepptum skyrtum og buxum
með beinu sniði. Yfirhafnirnar
voru sérstaklega sterkar og mátti
finna þar navy-bláan tvíhnepptan
jakka með brúnni gæru og ullar-
tvídjakka með fylltum mjöðmum.
Ofmetin fullkomnun
Í línu Burch má sjá birtingar-
mynd ófullkomnunar þar sem
plíseruðu ullarpilsi er tyllt
saman með öryggisnælu.
Fyrirsæturnar voru klæddar
í satínkjóla þar sem bakið
sneri fram. Belti voru ekki
nytjahlutur heldur fengu að
hanga á mjöðmunum sem
fylgihlutur og veskin
fengu að hanga
opin á örmum fyr-
irsætanna. Burch
sýndi svo fram
á að undir-
fatnaðurinn,
þá sérstak-
lega form-
fatnaðurinn,
má svo
sannarlega
fá að skína
í kvöld-
klæðnað-
inum. n
Konur vilja ekki fleiri reglur
Ófullkomnun
og óuppábúin
eru orð sem
koma í hugann
þegar litið er
yfir nýju línuna
frá Tory Burch.
En önnur orð sem
koma upp í hugann
eru líka svalt og
persónulegur stíll.
Undirfatnaður-
inn í allri sinni
dýrð fær að
láta ljós sitt
skína í nýju
línunni frá Tory
Burch. Form og
fúnksjón í sinni
skýrustu mynd.
fréttablaðið/
getty
KVIKMYNDAGETRAUN
í samstarfi við Myndform:
Sex miðar í bíó, popp og gos.
Farið inn á kvikmyndir.is og
svarið nokkrum laufléttum
spurningum í boði þáttarstjórnenda
Bíóbæjarins.
ALLT kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2023