Fréttablaðið - 17.02.2023, Page 4

Fréttablaðið - 17.02.2023, Page 4
Við viljum auka enn frekar umtal, fræðslu og forvarnir. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri Hopp. Mikilvægt er að gæta að velferð dýra, þar á meðal loðdýra, í hví- vetna. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráð- herra. inn í lokaðan kassa sem bensín- gufum sé blásið inn í, en þar eð minkar geti haldið niðri í sér and- anum í upp undir hálftíma, megi ljóst vera hvernig dauðastríðið vari mínútum saman. Í fyrrgreindu svari Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra til blaðsins í gærdag segir að mikil- vægt sé að gæta að velferð dýra, þar á meðal loðdýra, í hvívetna. „Markmið löggjafar um velferð dýra er að stuðla að því að dýr séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í því ljósi að dýr eru skyni gæddar verur.“ Enn fremur sé það markmið lag- anna að dýrin geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt. Í svari matvælaráðuneytisins segir að öllum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa sam- kvæmt stjórnarskrárvörðum rétti. Þessu frelsi megi þó setja skorður með lögum, en ekki standi til að breyta þeim af hálfu ríkjandi stjórnvalda. Á Íslandi munu enn vera rekin níu minkabú, en þeim hefur fækk- að að mun á síðustu áratugum, og eru um 90 þúsund hvolpar drepnir á ári, svo nýta megi feld þeirra í fataiðnað. n Vilja ekki banna minkarækt á Íslandi Dýraverndar- samtök á Íslandi og víðar um álf- una hafa árum saman barist gegn loðdýra- rækt – og kallað hana „verstu búgreinina með tilliti til kval- ræðis dýranna“. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY bth@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Ingibjörg Isaksen, oddviti Framsóknarmanna í Norð- austurkjördæmi, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerða- áætlun til að ef la Sjúkrahúsið á Akureyri. Hún segir tímabært að styrkja Sjúkrahúsið á Akureyri sem kennsluspítala og viðurkenna hlut- verk þess sem háskólasjúkrahúss. Ingibjörg segir að íslenskt heil- brigðiskerfi standi frammi fyrir alvarlegum mönnunarvanda. Fyrir- séð sé mikil fjölgun starfsmanna í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Land- spítalinn eigi erfitt með að taka á móti f leiri nemum.  Sjúkrahúsið á Akureyri geti tekið að sér f leiri nema og stærri verkefni. Þetta myndi jafnframt bæta heilbrigðis- þjónustu á Norður- og Austurlandi. „Ein ástæða þess að fólk flytur úr dreif býli er að það getur ekki sótt Vill háskólasjúkrahús á Akureyri Ingibjörg Isaksen, oddviti Framsóknar- manna í Norð- austurkjördæmi menntun í heimabyggð. Önnur ástæða er að starfstækifæri vantar í heimabyggð,“ segir Ingibjörg. Með því að auka starfstækifæri í tengslum við styrkingu Sjúkrahúss- ins og efla tækifæri til menntunar við HA megi halda fólki á svæðinu og laða nýja að, að sögn hennar. n odduraevar@frettabladid.is ÖRYGGISMÁL Sæunn Ósk Unn- steinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, segist telja það afturför að banna börnum yngri en 13 ára að nota rafskútur, líkt og kveðið er á um í nýju frumvarpi innviðaráð- herra. Sigurður Ingi Jóhannsson leggur til að raf hlaupahjól verði bönnuð börnum yngri en þrettán ára. Sæunn segist fagna sumu í frum- varpinu en vera hugsi yfir öðru. Hún fagnar því að rafskútur megi aka á götum með 30 kílómetra hámarkshraða. 13 ára aldurstakmarkið hafi ekki áhrif á Hopp þar sem notendur þurfi að hafa náð 18 ára aldri. „En við treystum foreldrum og forráðamönnum til að meta hvort barnið þeirra sé hæft til að aka um á rafskútu og höldum við að það að setja lög á aldurstakmark sé frekar afturför heldur en framför. Við þurfum að breyta ferðavenjum, rafskútan er bara ein týpa af farar- máta og trúi ég að mikil nýsköpun og hröð þróun eigi eftir að eiga sér stað og þá eru hjólastígarnir okkar orðnir of litlir eða of þröngir mjög hratt!“ Hún segir sig og félaga í Hopp ekki vera mikið fyrir boð og bönn. „Og hefðum viljað sjá í lögunum skyldur um forvarnir niður allt skólakerfið. Notendur Hopp eða aðrir notendur rafskútna eru ekki vandamálið heldur þarf að bæta innviði og þá meina ég holur og bratta kanta á gang- og hjólastígum sem og að þjálfa þarf ökumenn, bæði þá sem aka í örflæðinu sem og þau sem að aka með því, samanber ökumenn bíla.“ Hún segir nýsköpun og breyttar ferðavenjur rétt svo vera að hefj- ast. „Og viljum við fara varlega í að setja of harðar reglur, boð og bönn. Við viljum auka enn frekar umtal, fræðslu og forvarnir. Við þurfum að breyta því hvernig við ferðumst, það er ekki pláss fyrir f leiri bíla á götunum! Umhverfið kallar á breyttar ferðavenjur, það er ekki f lóknara en það.“ n Segir notendur rafhlaupahjóla ekki vandamálið erlamaria@frettabladid.is SAMGÖNGUR Ný skoðunarhandbók ökutækja tekur gildi þann 1. mars, en handbókin tekur við af núver- andi skoðunarhandbók sem hefur verið í gildi frá 1. maí 2017. Nýja skoðunarhandbókin er að mestu leyti sambærileg þeirri eldri, með áherslubreytingum á skoðun- aratriðum og uppsetningu. Meðal þeirra atriða sem breytast eru bann við notkun óvirkra stöðuhemla, akstursbann við óvirkum hemla- ljóskerum og notkunarbann við sprungum eða alvarlegum skemmd- um á hjólbörðum stærri ökutækja. Þá eru nokkur ný atriði kynnt til sögunnar. Til að spyrna við svik- samlegum breytingum á stöðu akst- ursmælis verða gerðar ráðstafanir ef í ljós kemur að óeðlileg lækkun hafi orðið á stöðu akstursmælis og frá 1. janúar 2024 verður gerð athuga- semd ef gaumljós öryggispúða gefur til kynna bilun í kerfinu. n Ný handbók fyrir bílaskoðanir Æ fleiri þjóðir Evrópu eru búnar að banna loðdýrarækt og útlit er fyrir allsherjarbann ESB á allra næstu árum. Ráð- herra VG í málaflokknum er ekki sömu skoðunar. ser@frettabladid.is DÝRAHALD Ekki stendur til að svo stöddu að leggja fram frumvarp á Alþingi um bann við loðdýrarækt. Þetta segir orðrétt í svari matvæla- ráðuneytisins til Fréttablaðsins í gærdag, en ástæða erindisins er að æ f leiri Evrópuþjóðir hafa bannað loðdýrarækt í nafni dýravelferðar. Meðal þessara þjóða eru Nor- egur, Bretland, Þýskaland, Holland, Belgía, Lúxemborg, Sviss, Austur- ríki, Tékkland, Slóvakía, Slóvenía, Króatía, Bosnía og Hersegóvína, Serbía og Makedónía. Þá létu dönsk stjórnvöld af lífa alla minka í landinu árin 2020 og 2021 af ótta við að Covid-veiran gæti stökkbreyst í dýrunum, alls 17 milljónir dýra. Til viðbótar hyggjast forvígis- menn Evrópusambandsins leggja til allsherjarbann við loðdýrarækt og má ætla að það taki gildi í síð- asta lagi frá 2025. Dýraverndarsamtök á Íslandi og víðar um álfuna hafa árum saman barist gegn loðdýrarækt – og kallað hana „verstu búgreinina með til- liti til kvalræðis dýranna“, svo vitnað sé í blaðagreinar þeirra um búreksturinn. Í loðdýraræktinni sé minkum troðið inn í örþröng vírnetsbúr og þeir látnir dúsa þar í eigin óþef allt þar til hvolparnir séu teknir af lífi, hálfs árs gamlir. Þá sé þeim troðið erlamaria@frettabladid.is SAMFÉLAG Fjáröflunarátakið Út að borða fyrir börnin hófst í vikunni. Barnaheill stendur að átakinu í samstarfi við veitingastaði sem láta ágóða af matseðli renna til verndar barna gegn ofbeldi. Átakið stendur yfir til 15. mars. „Það er svo mikilvægt að sam- félagið allt taki höndum saman um að styðja við vernd á of beldi gegn börnum,“ segir Ellen Calmon, framkvæmdastýra Barnaheilla. n Út að borða fyrir börnin í vikunni Ellen Calmon, framkvæmda- stýra Barna- heilla. Svik með akstursmæla er eitt af því sem bætt verður inn í handbókina. Ingibjörg segir fjölgun nemenda bæta þjónustuna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.