Fréttablaðið - 17.02.2023, Side 6
Þar er fólk úti í bæ að
tjá sig.
Kjartan Magnús-
son borgarfull-
trúi
Þessar breytingar
myndu að óbreyttu
hafa meiri áhrif á félög
sem fljúga í gegnum
Ísland en mörg önnur
svæði.
Bogi Nils
Bogason, for-
stjóri Icelandair.
Við erum að tala um
risamál fyrir íslenska
ferðaþjónustu, neyt-
endur, íslenska alþýðu.
Vegna tengiflugsins eru
hér eins góðar flugsam-
göngur og raun ber vitni.
Birgir Jónsson,
forstjóri Play
Ferðir árið 2023
Ferð um Vestfirði 04.- 06. maí 2023
Rínarsigling 26.- 31. júlí 2023
Ferð til Bodensee 09.- 14. október 2023
Aðventuferð til Wurzburg
06.- 10. desember 2023
Rétt til að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona
sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu
án launagreiðslu fyrir það starf .
Upplýsingar um ferðirnar og skráning er á vefsíðunni
www. hafnarfjardarorlof.is
Orlofsnefnd
Hafnarfjarðar
auglýsir
orlofsferðir
2023
Flug til Íslands gæti minnkað
um meira en helming, millj-
ónir ferðamanna yrðu úr sög-
unni og tugþúsundir starfa í
hættu. Forstjóri Play segir allt
undir að Ísland fái undan-
þágu frá hærri kolefnisskatti.
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Framtíð íslenskrar
ferðaþjónustu er í hættu ef reglu-
gerð ESB um aukinn kolefnisskatt af
f lugi mun ganga óbreytt yfir Ísland
vegna EES-samningsins. Þetta segir
forstjóri Play.
„Málið er mjög alvarlegt, við fylgj-
umst spennt með baráttu íslenskra
stjórnvalda. Ég hef nefnt orðið ham-
farir í þessu samhengi,“ segir Birgir
Jónsson, forstjóri Play.
Áhrif aukins losunarskatts af
f lugi, sem tillögur eru um, yrðu
gríðarlega neikvæð fyrir af komu
íslensku millilandaflugfélaganna,
Icelandair og Play. Birgir segir að
rekstur flugfélaganna sé þó smámál
í stóra samhenginu.
„Við erum að tala um risamál
fyrir íslenska ferðaþjónustu, neyt-
endur, íslenska alþýðu. Vegna tengi-
flugsins eru hér eins góðar flugsam-
göngur og raun ber vitni, það er
hægt að f ljúga um víðan völl með
stoppi hér, annars væru þetta bara
örfá flug til og frá landinu eins og í
gamla daga,“ segir Birgir.
Íslensku flugfélögin hafa að sögn
Birgis, oft með tilboðsverði, náð að
spýta inn til landsins sem flestum
farþegum sem verji peningum
innanlands. Þannig nærist ferða-
þjónustan og skattheimta ríkisins
hafi notið arðsins af uppsveiflunni.
Birgir segir að ef reglugerðin gangi
óbreytt yfir Ísland falli tengiflugið
út, bresk flugfélög eða önnur félög
óbundin af hærri álögum muni
taka yfir f lugsamgöngur til og frá
landinu.
„Flugið myndi minnka um meira
en helming. Þar af leiðandi gætum
við hætt að tala um milljónir ferða-
manna og tugþúsundir starfa í
ferðaþjónustu,“ segir Birgir.
Starfshópur hefur verið skipaður
vegna málsins með fulltrúum hins
opinbera, Icelandair, Play, Isavia
og fleirum. Utanríkisþjónustan og
öll íslenska stjórnsýslan lítur á það
sem gæti gerst mjög alvarlegum
augum. Ber að hrósa íslenskum
stjórnvöldum fyrir þeirra samhenta
átak, að sögn Birgis.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir því
að niðurstaðan detti réttum megin.“
Play greiddi að sögn Birgis
hundruð milljóna í útblástursskatt
á síðasta ári. Því sé ekki eins og
félögin starfi ábyrgðarlaus gagn-
vart mengun. Fréttablaðið hefur
ekki fengið staðfest hve mikla
hækkun af kolefnisskatti gæti orðið
að ræða. Birgir segir furðu sæta ef
Ísland eigi að gjalda fyrir breyt-
ingar sem ætlað sé að miða að því
að umhverfisvænni ferðamáti leysi
af stuttar flugferðir innan Evrópu.
„Það eru mörg fordæmi fyrir að
tekið hafi verið tillit til sérhags-
muna ríkja. Malta og Kýpur hafa
náð miklum ávinningi. Við þurf-
um að mótmæla þessu mjög ákveð-
ið og semja um okkar sérhagsmuni.
Við förum ekki í rútu eða lest héðan
frá Íslandi.“
Guðlaug u r Þór Þórða r son
umhverfisráðherra ítrekaði mikil-
vægi þess í Fréttablaðinu í gær að
ESB fallist á óskir íslenskra stjórn-
valda um afslátt af skattinum.
Þá hefur Fréttablaðið fjallað um
bréf Katrínar Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra til Ursulu von der Leyen,
forseta framkvæmdastjórnar ESB. Í
bréfinu falast Katrín eftir fríum los-
unarheimildum ef flug teygi sig lengra
en 500 kílómetra frá landinu. n
Ferðaþjónustan fari í rúst ef
Ísland fær ekki undanþágu
Framtíð Icelandair og Play er aðeins smámál í stóra hagsmunasamhenginu að sögn forstjóra Play. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Bogi Nils Bogason, for-
stjóri Icelandair, segir að þótt áhrifin
af auknum skatti ESB vegna losunar
í f lugi yrðu vond fyrir Icelandair
séu þeir hagsmunir smávægilegir
miðað við heildaráhrifin á íslenskt
samfélag.
Neikvæð áhrif yrðu á tengingar
við útlönd, inn- og útflutning, ferða-
þjónustuna og íslenskt hagkerfi sem
heild.
„Þessar breytingar myndu að
óbreyttu hafa meiri áhrif á félög
sem fljúga í gegnum Ísland en mörg
önnur svæði. Flugið myndi færast
annað, það myndi ekki minnka
heldur færast til,“ segir Bogi.
Bogi segir að viðskiptamódel Ice-
landair, sem byggi á millilendingum,
tengiflugi, sé í raun umhverfisvænna
en f lugferðir með stórum vélum
þegar flogið sé beint yfir hafið.
Ameríkuflugið sé ekki óumhverf-
isvænt heldur hafi félagið reiknað út
7-37 prósenta minni losun miðað við
breiðþotur sem fljúgi langt og beint.
„Við erum að fljúga á vélum sem
eru hagkvæmar hvað varðar notkun
eldsneytis. Þessi umhverfisskattur,
ef hann leggst á með fullum þunga,
gerir því umhverfismálin verri
þegar markmiðið er þveröfugt,“
segir Bogi.
Bogi er á sama máli og Birgir Jóns-
son hjá Play að tengimódel íslensku
félaganna sem byggi á fjölmörgum
áfangastöðum og tíðni sem annars
gæti aldrei orðið að veruleika, færi
landinu miklu f leiri ferðamenn
en hægt væri að búast við ef sam-
keppnisstaðan raskast verulega
vegna áætlana ESB.
Hann segist vonast til að ESB taki
tillit til sérstöðu Íslands sem ein-
angraðrar eyju í samræmi við óskir
íslenskra stjórnvalda. n
Segir að losunarskattar auki mengun
Klappið var tekið upp á síðasta ári en það berast enn kvartanir.
kristinnpall@frettabladid.is
STRÆTÓ „Það eru nokkrir hlutir sem
er helst verið að kvarta undan. Ég
lenti sjálfur í vandræðum með að
nota þetta og þá fór ég að hugsa að
þetta hlyti annaðhvort að vera hug-
búnaðurinn eða tæknibúnaðurinn,“
segir Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali
við Fréttablaðið um upplifun sína og
annarra af annmörkum snjallforrits-
ins Klapp sem greiðslukerfis Strætó.
Kjartan segist hafa skoðað um-
sagnir sem forritið fær á netinu
vandlega í kjölfarið.
„Fyrir viku síðan fór ég að skoða
nánar umsagnirnar sem Klappið
fær, bæði á Facebook og í App Store
hjá iPhone notendum og Google
Play, þar sér maður umsagnir not-
enda og þar voru fjölmargar nei-
kvæðar umsagnir. Þar er fólk úti í
bæ að tjá sig.“
„Ég spurðist fyrir um þetta mál
síðasta sumar og fékk svar frá
Strætó þar sem því var lýst yfir að
byrjunarörðugleikarnir væru að
baki og að kerfið virkaði vel. Maður
sér, ef maður takmarkar leitina við
umsagnir frá 1. desember síðast-
liðinn, þegar Strætó sagði að örðug-
leikarnir væru að baki, að það
dregur ekkert úr kvörtunum,“ segir
Kjartan sem segir umsagnirnar telja
hundruðum og að f lestar séu nei-
kvæðar.
Hann tók málið upp á borgar-
stjórnarfundi í síðustu viku.
„Ég ræddi við tæknisérfræðinga
sem þekkja málið betur en ég, og
án þess að geta fullyrt það virðist
það vera bæði að skannarnir séu
hægvirkir og hugbúnaðurinn sé
gallaður.“ n
Segir snjallforritið Klappið enn vera
að glíma við byrjunarörðugleika
6 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR