Fréttablaðið - 17.02.2023, Síða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 17. febrúar 2023
starri@frettabladid.is
Flautukór Menntaskóla í tónlist
(MÍT) heldur tónleika í Hörpu-
horni á sunnudag, 19. febrúar, og
hefjast þeir kl. 16. Á tónleikunum
verða flutt verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson, boðið upp á fjörugan
dans eftir Brahms, flæðandi tóna-
ljóð eftir Smetana, ljúfa prelúdíu
eftir Chopin, hressandi tangó
og margt fleira að sögn Bjargar
Brjánsdóttur stjórnanda. „Flautu-
kórinn er skipaður flautunemend-
um Menntaskólans í tónlist, MÍT.
Flautuleikararnir mæta á flautu-
kórsæfingar öll mánudagskvöld
og við æfum alls konar músík og
þjálfum okkur í hinum ýmsu sam-
spilsþáttum,“ segir Björg.
Í vetur hefur Flautukórinn
komið fram á tónleikum í Ráðhús-
inu og Dómkirkjunni auk þess sem
hópurinn fór í nokkrar hjúkrunar-
heimilaheimsóknir fyrir jól og hélt
jólatónleika fyrir íbúa þar.
Einleikari kvaddur
Einleikari á tónleikunum á
sunnudag er Lilja Hákonardóttir.
Hún er flautunemandi við MÍT og
útskrifast í vor og hefur háskóla-
nám í þverflautuleik í London í
haust. „Því fannst okkur tilvalið að
kveðja hana með því að fá hana til
að flytja fallegu Siciliönu Þorkels
Sigurbjörnssonar með okkur. Þetta
verk er hluti af f lautukonserti Þor-
kels, Kólumbínu, sem hann samdi
fyrir Manuelu Wiesler árið 1982.“
Aðgangur er ókeypis.
Nánar á harpa.is. n
Flautuveisla í
Hörpu um helgina
Flautukór Menntaskóla í tónlist
kemur fram í Hörpu á sunnudag.
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir segir að með útgáfu ljóðabókarinnar ögri þær sér og berskjaldi. MYNDIR/GUNNLÖÐ JÓNA RÚNARSDÓTTIR
Það virðast allir elska okkur
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir er einn sex meðlima spunahópsins Eldklárar og eftirsóttar.
Hópurinn samanstendur af sex eldklárum og mjög fyndnum konum. Þær takmarka sig
ekki við spunasýningar en ljóðabókin Óumbeðin ástarbréf er væntanleg. 2
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is