Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 11

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 11
tvær kvíslar, og þar sem þær koma saman heitir Systrapollur, skemmtilegur og sér- kennilegur veiðistaður. Bergklöpp og klettadrangar að norðanverðu, en háir bakkar og berghólar að sunnan. Aðstaða Systrapollur. — I.jósm. Sig. Haralriss. þarna til veiði er góð og oft góð veiði. Annars á það við flesta veiðistaðina í Haukadalsá, að það eru áraskipti hvað vel veiðist á hverjum stað, til dæmis þar sem vel veiddist eitt árið, getur verið laxlaust árið eftir og öfugt. Fyrir neðan Systrapoll fellur áin til norðvesturs og myndar breiðu, sem hefur í seinni tíð verið nefnd Simabreiða, því þar liggur símalínan yfir ána. Þar er oft sæmileg veiði. Þá er Kirkjufljótið. Það er svo um flesta veiðistaðina í Hauka- dalsá, að þeir eru svo þétt, að það eru aðeins brot, sem skilja á milli. Norðan við Kirkjufljótið er hátt berg og illt að veiða þeim megin, nema helzt á maðk, en að sunnan er malareyri og ágæt áð- staða. Næst er Steinbogafljótið, einn af mínum uppáhalds veiðistöðum og hefur oft gefi'ð mér góða veiði. Aðstaða ágæt að norðanverðu og skemmtilegt að þreyta þar leik við fisk. Að sunnan er há berghæð oar aðstaða verri. Töluverður straumur O er efst í fljótinu og því ágætur flugustað- ur, en dýpra og lygnara er neðar dregur. Fyrir neðan Steinbogafljótið skiptir áin sér, er syðri kvíslin vatnsmeiri, og efst í henni er snotur strengur, sem oft gefur veiði. Þar sem áin kemur saman aftur er fljót, sem nefnt er Oddavörðufljót, langur og fallegur strengur, en ekki eft- ir því veiðisæll. Þó má stundum fá þar góða veiði, þegar fiskur er í göngu. Neð- an við strenginn breiðir áin úr sér og fellur í grunnu broti niður i Grjótin, sem bera nafn af því, hvað þar er stak- steinótt og festuhætt. Hefir margur slitið þar úr fiski og tapað veiðarfærum. En hann tekur þar vel, þegar hittir á liann. Birgisfljótið, þar er bergnef að norðan en eyri að sunnan. Liggur laxinn oft við bergið og hefur oft veiðst þar allvel, en ég hefi aldrei verið svo heppinn að fá Langi Strengur. — Ljósm. Bjarni R. Gcstsson. fisk þar, og hefi ég þó fengið fisk í flest- um veiðistöðunum í ánni. Næstur er Langi Strengur, éða Long Strong, eins og liann er nefndnr í daglegu Veiðimaðurinn 7

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.