Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Qupperneq 33

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Qupperneq 33
mér alveg ljóst að 2 löxum landaði ég eftir að það skeði. \rið höfðum sett okkur niður við ána í fögrum hvammi, því í töskum okkar voru nokkrar brauðsneiðar, sem við gæddum okkur nú á, en flestum þykir nokkuð þurrt að renna því niður með munnvatninu einu saman, og var það góð og gild ástæða til að láta Svarta- dauðaflöskuna ganga milli manna eftir þörfum, og nú fannst mér ég vera fær í flestan sjó, þegar ég stóð upp og til- kynnti félögum mínum, að nú kæmi ekki til mála að ég sæti hér lengur í leti og ó- mennsku, þreif veiðitösku mína og stöng og hraðaði mér stytztu leið niður að ánni. Þetta sáu hinir og hugsuðu sér nú að \ erða á undan mér í þá veiðistaði, sem ekki höfðu verið reyndir fyrr. Þeir voru nokkuð margir ofar í ánni. Nú fór ég að ókyrrast, því eins og ég sagði áðan, líkaði mér ekki að verða of seinn í beztu veiðistaðina. Hugsa ég nú ráð mitt nokkra stund, því einn var sá hylur í ánni, sem ég vildi fyrir hvern mun heimsækja á undan hin- um. Nokkuð var langt upp að honum og vissi ég að þeir yrðu lengi að komast þangað, ef mín yrði ekki vart. Eg heið því þar til þeir voru allir horfnir ]>ak við svokallaðar Hulduborgir. Þá skálmaði ég af stað. Bússurnar voru brettar niður, svo að þær tefðu minna fyrir. Stefnan var tekin þvert frá ánni yfir móa, liolt og mýrar, og nú fann ég það bezt, hvað blessaður Svartidauðinn var farinn að örva blóðið, því að svo var ég léttur á mér og ferðin mikil, að hrossa- gaukarnir lentu hvað eftir annað fyrir aftan mig, þegar þeir í angist sinni flugu upp til að forða sér undan fótum mín- um, og vita þó allir, sem til þekkja, hvað viðbrögð þeirra eru snögg. Ég hafði lmgsað mér að ganga inn með Skuggabrekkum, á bak við Snæháls, og komast með því móti skemmri leið að Gljúfurhyl en hægt var meðfranr ánni. Ekki var mér kunnugt um neinar hætt- ur eða hindranir á þessari leið, en st.utt hafði ég farið inn með hálsinum, þegar fyrir mér varð rammleg girðing. Ekki lét ég liana tefja mig neitt, tók aðeins gott tilhlaup, lagði hægri höndina á einn stólpann og sveiflaði mér léttilega yfir. Nú þrammaði ég áfram, leit hvorki til liægri né vinstri, því hugurinn snérist um þetta eina: Skyldi hann nú verða við í Gljúfurhyl? Ég var kominn góðan spcil frá girðing- unni, þegar ég tók eftir ferlegum gaura- gangi að baki mér, rétt eins og þar væru margar jarðýtur að ríf i og tæta allt í sund- ur, stynjandi og blásandi af sínum trölls- legu átökum, en nú barst hljóð að eyrum mínurn — þetta ægilega hljóð, sem mér liefur alla tíð ógnað mest af öllum hljóð- um, senr framleidd eru hér innanlands, og nú varð mér það Ijóst í einni svipan, að ég hafði lent inn í nautagirðingu. Þegar ég í angist minni lít við, með kalt vatn rennandi milli skinns og hör- unds, titrandi á fótum, méð allar æðar þandar til liins ýtrasta af liinum öra slætti hjartans, þá sé ég hvar tvö naut koma æðandi, með hausinn niður við jörð, augun blóðhlaupin og ægileg, en froðan vall úr vitum þeirra um leið og þau gáfu frá sér aegileg hljóð. Við þessa ofboðslegu sýn lamaðist allur minn þróttur sem snöggvast, en lífsbjarg- Vf.ibimaðurinn 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.