Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 19

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 19
JON OGMUNDSSON: Þrír sfdudAgflr í sveit. ÞAR sem ég hefi heyrt að hinn ágæti ritstjóri Veiðimannsins, senr alltaf er að rnkka okkur veiðimenn nm veiðisögur og það jafnvel þótt við veiðum ekki neitt, ætli bráðlega að taka lögtaki að minnsta kosti eina sögu hjá hverjum veiðimanni, þá er ég nú seztur við skrifpúltið, til að vera ekki alveg blankur, þegar fógetinn kemur. Við vorum fjórir félagar, sem vorum svo lánsamir að fá úthlutað öllum laxi í Miðfjarðará og þverám hennar þrjá daga í júní sl. sumar. Og er þá bezt að kynna liöfuðpersónur sögunnar. Skal þá fyrst frægan telja Halldór Þórðarson véla- meistara, alræmda aflakló og ókrýndan aflakóng úr fjölmörgum veiðiferðum, (fuðna Guðmundsson gjaldkera SVFR flugufiskara mikinn, Karl Guðmundsson sigurverka sérfræðing, og svo sjálfan mig, Jón Ögmundsson, bílstjóra á „Harmón- ikkunni“, sem aldrei hefi komizt sérlega langt í þeirri göfugu íþrótt, að kasta föls- uðu skorkvikindi hátt í loft upp og láta það síðan detta niður ;í \ issan blett í óra- I jarlægð. Við vorum búnir að hlakka til í marga mánuði og ræða ve'ðurlag og veiðihorfur í hvert skipti, sem við hittumst. En þeg- ar fór að líða að hinni langþráðu stund, kom það í ljós, að úrsmiðurinn gat ekki farið vegna anna, og er ég hræddur um að vekjaraklukkurnar hafi verið heldur Höjundurinn með stórn laxinti og 12 punda „puttanriLjósm. Halldór Þórðarson. úrillar hjá honurn þá dagana, ekki sízt þar senr hann átti sín að hefna frá síð- asta ári, þegar hann gleymdi veiðiláninu heima í flýtinum að biia sig af stað. Við urðum því aðeins þrír og lögðum upp sinn úr hverri áttinni, því Halldór konr vestan úr Dölum, Guðni kom úr Reykja- vík fyrir Hvalfjörð, en ég konr frá íra- fossi og fór Uxahryggjaleið til Borgar- fjarðar. Var ákveðið að hittast í Dalsmynni í Norðurárdal kl. 12. Veðrið var dásanr- legt, glampandi sól og hiti svo ekki var 15 Vfiðtmaíh’Rinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.