Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Blaðsíða 19
JON OGMUNDSSON:
Þrír sfdudAgflr í sveit.
ÞAR sem ég hefi heyrt að hinn ágæti
ritstjóri Veiðimannsins, senr alltaf er að
rnkka okkur veiðimenn nm veiðisögur
og það jafnvel þótt við veiðum ekki neitt,
ætli bráðlega að taka lögtaki að minnsta
kosti eina sögu hjá hverjum veiðimanni,
þá er ég nú seztur við skrifpúltið, til að
vera ekki alveg blankur, þegar fógetinn
kemur.
Við vorum fjórir félagar, sem vorum
svo lánsamir að fá úthlutað öllum laxi í
Miðfjarðará og þverám hennar þrjá daga
í júní sl. sumar. Og er þá bezt að kynna
liöfuðpersónur sögunnar. Skal þá fyrst
frægan telja Halldór Þórðarson véla-
meistara, alræmda aflakló og ókrýndan
aflakóng úr fjölmörgum veiðiferðum,
(fuðna Guðmundsson gjaldkera SVFR
flugufiskara mikinn, Karl Guðmundsson
sigurverka sérfræðing, og svo sjálfan mig,
Jón Ögmundsson, bílstjóra á „Harmón-
ikkunni“, sem aldrei hefi komizt sérlega
langt í þeirri göfugu íþrótt, að kasta föls-
uðu skorkvikindi hátt í loft upp og láta
það síðan detta niður ;í \ issan blett í óra-
I jarlægð.
Við vorum búnir að hlakka til í marga
mánuði og ræða ve'ðurlag og veiðihorfur
í hvert skipti, sem við hittumst. En þeg-
ar fór að líða að hinni langþráðu stund,
kom það í ljós, að úrsmiðurinn gat ekki
farið vegna anna, og er ég hræddur um
að vekjaraklukkurnar hafi verið heldur
Höjundurinn með stórn laxinti og 12 punda
„puttanriLjósm. Halldór Þórðarson.
úrillar hjá honurn þá dagana, ekki sízt
þar senr hann átti sín að hefna frá síð-
asta ári, þegar hann gleymdi veiðiláninu
heima í flýtinum að biia sig af stað. Við
urðum því aðeins þrír og lögðum upp
sinn úr hverri áttinni, því Halldór konr
vestan úr Dölum, Guðni kom úr Reykja-
vík fyrir Hvalfjörð, en ég konr frá íra-
fossi og fór Uxahryggjaleið til Borgar-
fjarðar.
Var ákveðið að hittast í Dalsmynni í
Norðurárdal kl. 12. Veðrið var dásanr-
legt, glampandi sól og hiti svo ekki var
15
Vfiðtmaíh’Rinn