Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 12

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 12
tali. Þetta er langur strengur um 70—80 m., veiðilegur og fiskisæll. Veiðist aðal- lega ofan til í honum, enda er þar nokkur straumur, ágætur flugustaður, og liefi ég þar marga liildi háð. Fyrir neðan Long Strong skiptir áin sér enn í tvær kvíslar. í nyrðri kvíslinni er veiðistaður, er ég kann ekki nafn á. Þá er Happastrengur, þar sem kvíslarnar renna saman, og hef- ur liann sennilega fengið nafnið af góðri veiði. Annars er mér ókunnugt um það, því Stangaveiðifélag Akraness hefur ána þarna á leigu báðum megin. Þá er Dall- ur, og sleppi ég áð lýsa honum, því þar mun lítil veiði. Þar eru landamerki bæj- anna Stóra-Skógs og Harrastaða að sunn- an, en Brautarholts og Lækjarskógs að norðan. Þar fyrir neðan bevgir áin til norðurs í kvíslum og fellur að holti einu, en undir holtinu er strengur, sem er breytilegur frá ári til árs. Veiðimenn sunnan árinnar hafa nefnt hann Afla, en einhvern veginn líkar mér ekki nafnið. Það mætti alveg eins nefna hann Nafla eða Naflastreng. Strengur þessi er nokkuð góður veiðistaður þegar fiskur er í göngu. Þá komum við að Gálgahamarshyl, eða Gálga, eins og við veiðimenn nefnmn liann oftast. Að norðan er hár hamar, en sandeyri að sunnan, lieldur leiðinlegur að mér finnst. Þar bönuðum við félagar 3 minkum sumarið 1957, eftir harða vi'ðureign, enda illa vopnaðir. Voru þeir þar í urð, og tókst okkur að hrekja þá út. í Gálga veiddum við einu sinni einn þann óásjálegasta fisk, er ég hefi séð. Hann var búinn að liggja þarna lengi á sama stað, eftir því sem veiðimenn sögðu, sem þarna voru á undan okkur. Var hann sýnilega að dauða kominn, svo okkur kom saman um að fjarlægja liann úr ánni, svo hann smitaði ekki aðra fiska, og tókst okkur það án mikillar fyrirhafn- Gdlgahamarshylur. — I.jósm. Sig. Haralds. ar. Hann var allur með sárum og skell- um. Það var óhugnanleg sjón. Nú er nokkur spölur að næsta veiði- stað, Harrastaðastreng, og þar rétt fyrir neðan er Bjarnarlögn, góðir veiðistaðir, og aðstaða ágæt beggja megin árinnar. Ur því er lítið um veiðistaði fyrr en kem- ur niður að Simafljóti, en þar má oft fá góða veiði skammt fyrir ofan ósinn, ög ekki er hann leginn sá, sem veiðist þar. Að síðustu er svo Sjávarfljótið, fremur lélegur veiðistaður. Þá erum við komn- ir á leiðarenda. Við setjum okkur nú niður, hvílum okkur og skyggnumst um. Það er oft fag- urt og friðsælt þarna við ósinn, Oft er þar íleira á ferð en lax og silungur, töluvert fuglalíf er þar og ber mest á æðarfugli. Einnig má oft sjá selshöfuð skjótast upp úr sjónum. Við vorum eitt kvöld í fyrra sumar niður við ós, og voru þá fjórir selkópar þar allan tímann að svamla.Fóru 8 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.